25.11.2010
10. bekkingar hyggjast hafa markaðsdag í skólanum laugardaginn 27. nóvember n.k. og mun allur ágóði hans renna í
fjáröflunarsjóð bekkjanna fyrir útskriftar-ferð þeirra vorið 2011. Hugmyndin er sú að hafa þetta eingöngu endurnýtanlegan
efnivið í anda þeirrar umhverfisstefnu sem ríkjandi er í Síðuskóla. Leitum við nú til ykkar með efnivið á
markaðinn og nú er akkúrat tíminn til að skoða í skápa, geymslur og háaloftið eftir varningi sem hentar á markað sem
þennan.
Tekið er við eftirtöldu á markaðinn:
Fatnaði af öllum gerðum og stærðum.
Skóm og töskum af öllum gerðum og stærðum.
Skartgripum, úrum og öðru skrautlegu.
Bókum, DVD diskum og geisladiskum.
Vinsamlegast afhendið fatnað flokkaðan; Stúlku-, drengja-, unglinga-, konu- og karlaföt.
Tekið verður á móti varningi, miðviku-, og fimmtudag 24.-25. nóvember frá kl. 17-19.
Með fyrirfram þökk til allra sem geta lagt okkur lið,
nemendur og foreldrar 10 bekkja 2010-2011
Ath: Ef það verður eitthvað eftir af varningi í lok markaðsdags mun það renna óskipt til Mæðrastyrktsnefndar á Akureyri.
Lesa meira
24.11.2010
Á fimmtudaginn, 25. nóvember kl. 17-19 ætlum við að hittast í matsal skólans og föndra jólakort. Bára Waag er að framleiða
alls kyns föndurefni fyrir jólakort og ætlar að selja það á vægu verði:
Blandað efni í 5 kort kr. 500,- og í 10 kort kr. 800,-
Stimplað á 5 kort kr. 50,-
Alls konar munstraður bakgrunnur kr. 30,-
Foreldrafélagið ætlar að gefa karton til kortagerðarinnar.
Við viljum biðja ykkur um að skrá þátttöku ykkar og taka fram nafn barns, bekk og hve mikið þið viljið fá af
föndurgerðarefni. Þessar upplýsingar megið þið gjarnan senda bæði á keilusida6@simnet.is og á bara@internet.is. (ATH. þeir sem
búnir eru að skrá sig þurfa ekki að gera það aftur)
Bára er með facebook síðu - Handverk Báru - ef þið viljið kynna ykkur hvernig kort hún verður með.
Við bjóðum starfsfólk skólans að sjálfsögðu velkomið líka.
Vonandi sjáum við sem flesta
Kær kveðja
Stjórn FOKS
Lesa meira
17.11.2010
Nemendur og margir kennarar í Síðuskóla héldu upp á Norræna loftslagsdaginn þann 11. nóvember, eins og margir aðrir skólar
á Norðurlöndum, með því að fjalla um loftslagsmál og taka þátt í spurningaleikjum. Þetta er annað árið í
röð sem þessi dagur er valinn sérstaklega og er markmið hans að auka þekkingu nemenda á loftslagsmálum og virkja börn og ungmenni til
þátttöku í aðgerðum í loftslagsmálum sem og að efla samstarf milli kennara á Norðurlöndum. Dagurinn er sameiginlegt
verkefni allra norrænu menntamálaráðherranna.
Í ár var dagurinn í samvinnu við norrænt tungumálaátak og gafst nemendum tækifæri á að taka þátt í
samnorrænni keppni sem að hluta til var unnin á dönsku, sænsku eða norsku. Slóðin inn á keppnina var www.klimanorden.org en auk þess að taka þátt í þeirri keppni þá
voru nemendur hvattir til að skila svörum sínum líka skriflega (á sérstökum skráningablöðum) og fengu þeir spurningarnar og
svarmöguleikana þýdda á íslensku.
Í morgun voru nemendur síðan kallaðir á sal og rétt svör skoðuð á sýningartjaldi. Í framhaldi af því
voru nöfn þeirra nemenda sem svöruðu öllum spurningum rétt sett í skál og dregin út fjögur nöfn (tveir nemendur
úr yngri deild og tveir úr þeirri eldri). Alls voru það 12 nemendur í 3. - 6. bekk sem svöruðu öllu rétt og 53 nemendur í 7. -
10. bekk. Það voru Hákon Karl Sölvason í 3. MB, Jóna Guðný Pálsdóttir í 5. SEB, Andri Páll Helgason í 7. KJK2 og
Kjartan Atli Ísleifsson í 8. bekk sem höfðu heppnina með sér og fengu þau öll gjöf frá skólanum. Við óskum
þeim til hamingju með árangurinn.
Lesa meira
15.11.2010
Sigurvegarar í leitinni að grenndargralinu!
Leitinni að grenndargralinu árið 2010 lauk síðasta þriðjudag 9. nóvember. Sigurvegarnir voru Mjölnismennirnir Aron Elvar og Baldvin Kári
úr Glerárskóla. Sjá nánar hér.
Lesa meira
05.11.2010
Við höfum gert okkur dagamun í skólanum með því að hafa furðufatadag en í fyrra var ekki furðufatadagur heldur Öðruvísidagar
í eina viku. Ákveðið var að hafa þetta með sama hætti og í fyrra vegna þess hve vel tókst til. Óskað var eftir tillögum
frá nemendaráði sem brást snöfurmannlega við og sendi eftirfarandi tillögur sem samþykktar voru:
Mánudagur: Bannað að mæta í svörtu.
Þriðjudagur: Gleraugnadagur.
Miðvikudagur: Lopapeysudagur.
Fimmtudagur: Hatta/húfu/hettudagur.
Föstudagur: Strákar mæta í stelpufötum og öfugt.
Foreldrar eru beðnir að hvetja börn sín til að taka þátt í þessu gamni.
Lesa meira
30.10.2010
1. nóvember fer tilraunaverkefni af stað, þar sem nemendum í 1. til 6. bekk er gefinn kostur á að taka þátt í
íþróttavaltíma eftir hádegi. Markmið er að auka hreyfingu barnanna, stuðla að hollum lífsvenjum, efla líkams- og
félagsþroska og einfaldlega að vera saman og hafa gaman í leik og samveru. Þessir tímar eru fyrir utan hefðbundna skólatíma og
það er alveg frjálst að taka þátt.
Tímarnir eru 1 sinni í viku í 60 mínútur, fara fram í íþróttahúsinu í Síðuskóla og eru
ókeypis.
Tímasetning er eftirfarandi:
1. og 2. bekkur á mánudögum kl.13:20-14:20
5. og 6. bekkur á mánudögum kl.14:20-15:20
3. og 4. bekkur á fimmtudögum kl. 13:15-14:15
Umsjón með tímunum hefur Rainer Jessen íþróttakennari og ef upp koma spurningar varðandi þessa tíma þá vinsamlegast hafið
samband við rainer@akmennt.is .
Allir nemendur frá 1.-6. bekk eru velkomnir í
þessa tíma sem byrja mánudaginn 1.
nóvember.
Lesa meira
28.10.2010
Kosið hefur verið í nemendaráð Síðuskóla í fyrsta skiptið í mörg ár.
Fulltrúar koma úr 6. - 10. bekk skólans og eru:
Formaður - Valgeir Andri Ríkharðsson, 10. bekk
Varaformaður - Anton Freyr Jónsson, 10. bekk
Ritari - Helena Rut Pétursdóttir, 9. bekk
Meðstjórnendur -
Ómar Berg Jóhannesson, 9. bekk,
Kjartan Atli Ísleifsson 8. bekk,
Hrannar Ingi Óttarsson 7. bekk,
Haukur Örn Valtýsson 6. bekk.
Lesa meira
19.10.2010
Ágætu foreldrar
Við minnum á það að á fimmtudag og föstudag næstkomandi eru skipulagsdagar í skólanum. Flestir starfsmenn skólans fara í
skólaheimsóknir í Reykjavík og Hafnarfirði ásamt því að fara á fyrirlestra um skólamál.
Á mánudag og þriðjudag í næstu viku er svo haustfrí í skólanum. Engin kennsla verður þessa daga en miðvikudaginn 27.
október mætum við aftur í skólann og tökum til við nám og kennslu af fullum krafti aftur eftir haustleyfið.
Vonandi hafið þið tækifæri til að njóta þessara daga með börnunum ykkar.
Lesa meira
18.10.2010
Það var mikið að gerast hjá nemendum skólans á þemadögum. Teknar voru mjög margar myndir og má sjá hvað var í gangi
hér.
Lesa meira
11.10.2010
Þemadagar verða í skólanum í þessari viku eða 13. og 14. október sem eru miðvikudagur og fimmtudagur. Efni þemans í þetta sinn
er um SMT skólafærni og vinna nemendur með ýmislegt því tengdu og ekki síst einkunnarorðin ábyrgð - virðing - vinátta.
Markmiðið er að skerpa sýnina á SMT og einnig að brjóta upp skólastarfið vinna með öðrum hætti en venjulega sem gefur svo kost
á fjölbreyttari kennsluháttum. Margir nemendur njóta sín sérstaklega vel í starfi eins og er á þemadögum
Talsverður undirbúningur hefur verið og er nemendum skipt upp í hópa þannig að 1. og 6. bekkur vinna saman, 2. og 7. bekkur, 3. og 8. bekkur, 4. og 9. bekkur og
5. og 10. bekkur. Spennandi verður að sjá hvernig ólíkum aldurshópum gengur að vinna saman og hafa nemendur í sumum hópum hittst nú
þegar til að kynnast svolítið.
Skólatíminn breytist þessa daga og lýkur honum hjá öllum aldurshópum klukkan 13:15.
Lesa meira