Yngispiltadagurinn 2011 var haldinn hátíðlegur í 9.B, 25. mars s.l.
Stúlkurnar í bekknum bökuðu girnilegar kökur handa drengjunum sem þáðu þær með þökkum enda alltaf pláss fyrir gómsætar kökur hjá hungruðum piltum.
Þetta er þriðja árið í röð sem bekkurinn heldur upp á yngispiltadaginn og finnst nemendum það skemmtileg tilbreyting. Yngispiltadagurinn er fyrsti dagur Einmánaðar í hinu forna tímatali.
Stúlkurnar bíða núna spenntar eftir því hvað gerist í byrjun Hörpu.
Fleiri myndir hér.