ÍSAT

Jólafrí nemenda

Starfsfólk Síðuskóla óskar nemendum, foreldrum og öðrum velunnurum skólans gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með þökk fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. Nemendur mæta aftur í skólann þriðjudaginn 5. janúar samkvæmt stundaskrá. Mánudaginn 4. janúar er skipulagsdagur og Frístund er opin frá 8:00-13:00 þann dag.
Lesa meira

Bækur frá FOKS

Í gær kom foreldrafélag Síðuskóla færandi hendi og færði bókasafni skólans að gjöf 25 bækur. Það þarf vart að nefna mikilvægi lesturs í náminu og því kemur þessi gjöf að góðum notum. Við þökkum foreldrafélaginu kærlega fyrir þessa góðu gjöf um leið og vil hvetjum alla nemendur til að vera duglega að lesa í jólafríinu. Á myndinni má sjá þær Ólöfu Ingu skólastjóra og Guðrúnu, starfsmann bókasafns Síðuskóla, með hluta gjafarinnar.
Lesa meira

Litlu jólin 18. desember

Föstudaginn 18. desember verða litlu jólin í Síðuskóla. Allir nemendur mæta klukkan 9:00 og lýkur dagskrá klukkan 11:00. Nemendur mæta í sínar heimastofur en hluti fer síðan í salinn og horfir á jólaatriði 6. bekkjar. Að því loknu fara þeir í stofur og hinir sem byrja í stofum horfa á 6. bekk í matsalnum. Klukkan 10:10 verður haldið í íþróttasalinn þar sem allir sameinast kringum jólatréð og syngja og dansa saman.  Að litlu jólum loknum hefst jólafrí nemenda. Skóli hefst síðan aftur þriðjudaginn 5. janúar samkvæmt stundaskrá.
Lesa meira

Jólaföndur og söngsalur

Í dag byrjuðum við daginn á söngsal þar sem allir nemendur skólans komu saman og sungu jólalög. Að þessu sinni var það nemendaráðið sem valdi lögin og Systa okkar spilaði undir á gítar.  Að söngsal loknum hófst föndurstund á öllum stigum skólans. Yngsta stig sameinaðist í föndri, miðstig og unglingastig. Nemendur höfðu val um að búa til alls konar fallega muni og jólakort og önnur afþreying eins og skák og spil voru í boði fyrir þá sem ekki líkaði föndrið. Allir á mið- og unglingastigi fengu kakó og smákökur í boði skólans í frímínútum. Þetta var skemmtilegt stund og allir, bæði starfsfólk og nemendur lögðust á eitt við að láta daginn heppnast vel. Hér má sjá myndir frá föndrinu og söngsalnum.
Lesa meira

Hefðbundinn skóladagur verður í dag

Í dag verður hefðbundinn skóladagur þar sem veður hefur gengið niður.
Lesa meira

Slæmt veður gengur yfir landið

Þar sem spáð er mjög slæmu veðri í nótt og frameftir morgni biðjum við ykkur að fylgjast vel með tilkynningum á RÚV og Bylgjunni kl. sjö í fyrramálið um hvort einhverjar breytingar verða á skólahaldi. Einnig munu koma fram upplýsingar hér á heimasíðunni og í tölvupósti.
Lesa meira

Lestarkeppni miðstigs

Á samverustund miðstigs í morgun var tilkynnt um sigurvegara í lestrarkeppni nemenda á miðstigi. Að þessu sinni var það 6. bekkur sem sigraði en nemendur þar hafa lesið  í 8550 mínútur síðan keppnin hófst á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember síðastliðinn. Markmiðið var að byggja háan turn úr lestrarstrimlum en þegar nemendur höfðu lesið í samtals 30 mínútur fengu þeir afhendan strimil til að bæta í turinn. Þar sem allir á miðstiginu stóðu sig vel og lásu fjöldamargar bækur var ákveðið að allir fengju að njóta verðlaunanna sem verður bíómynd á sal skólans næsta mánudag. Sigurvegararnir í 6. bekk fá að velja myndina. 
Lesa meira

Hljóðfærakynning í 3. bekk

Í morgun fengum við góða heimsókn í skólann þegar þeir Jakub og Gert-Ott, kennarar frá Tónlistarskólanum á Akureyri, komu til okkar. Þeir voru að kynna tréblásturshljóðfæri og fengu nemendur fræðslu um hljóðfærin og fengu einnig prófa að blása í klarinett og saxofón. Þeir félagar koma svo aftur í næstu viku og heimsækja þá 4. bekk. Hérna má sjá fleiri myndir frá þessari skemmtilegu heimsókn.
Lesa meira

Grenndargralið í Síðuskóla

Leitinni að Grenndargralinu er lokið þetta skólaárið en það var nemandi í 10. bekk, Kristján Rúnar Kristjánsson sem fann Grenndargralið í ár. Að launum fær hann verðlaunapening og veglegan farandbikar sem geymdur verður í skólanum næsta árið eða þar til keppninni lýkur að ári. Þeir sem þátt tóku í leitinni og skiluðu svörum við öllum þrautunum fengu einnig afhent viðurkenningarskjal fyrir framúrskarandi þátttöku. 
Lesa meira

Spurningakeppni 1. des í unglingadeild

Í dag var haldin spurningakeppni á sal þar sem nemendur unglingastigs kepptu milli árganga. Keppnin var tvær umferðir og var dregið um hverjir myndu byrja. Fyrst voru það 9. og 10. bekkur  sem kepptu og þar vann 10. bekkur eftir spennandi lokasprett. Þá kepptu 8. bekkingar við sigurvegara fyrri umferðar en 10. bekkingar unnu nokkuð örugglega og hlutu að launum bikar, dagatal og bíómiða frá Borgarbíó. Myndir
Lesa meira