ÍSAT

Síðuskóli vinnur Akureyrarriðil Skólahreysti 2016

Miðvikudaginn 16. mars var keppt í Skólahreysti í Íþróttahöllinni á Akureyri. Síðuskóli á titil að verja en skólinn hefur sigrað Akureyrarriðilinn síðustu þrjú ár. Skemmst er frá því segja Síðuskóli vann Akureyrarriðilinn með 47,5 stig sem er glæsilegur árangur. Keppendur voru Ágústa Dröfn Pétursdóttir, Hulda Karen Ingvarsdóttir, Guðni Jóhann Sveinsson og Ragúel Pinó Alexandersson. Varamenn voru Sævar Fylkisson og Embla Dögg Sævarsdóttir. Óskum þessum flottu fulltrúum skólans innilega til hamingju. Myndir: Liðsmyndir, myndir frá keppninni á Akureyri
Lesa meira

Útivistardagur í Hlíðarfjalli 17. mars

Næsta fimmtudag verður útivistardagur í Hlíðarfjalli ef veður leyfir. Fylgist með á heimasíðunni ef tvísýnt er með veður þennan morgun. Engin hefðbundin kennsla verður þennan dag og valgreinar verða ekki kenndar eftir hádegi. Mæting er á venjulegum tíma, klukkan 8:00 og fyrsta rúta fer frá skólanum klukkan 8:15. Myndir frá útivistardeginum
Lesa meira

Starfskynning 8. bekkjar

Í dag voru nemendur 8. bekkjar með kynningu á hinum ýmsu fyrirtækjum og starfsgreinum. Þeir heimsóttu fyrirtæki og kynntu sér starfsemina og útbjuggu veggspjöld og kynningarbása. Hér má sjá myndir.
Lesa meira

Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk 2016

Mánudaginn 7. mars var Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk. Nemendur 7. bekkjar og foreldrar ásamt nemendum 6. bekkjar komu saman á sal skólans við hátíðlega athöfn. Þar lásu 11 fulltrúar nemenda sem valdir höfðu verið í forvali í vikunni á undan upp kafla úr sögunni Ertu Guð afi eftir Þorgrím Þráinsson og ljóð að eigin vali. Tveir nemendur, þau Sigrún Reem Abed og Arnar Logi Viðarsson voru valin til að taka þátt í lokakeppninni sem haldin verður í Menntaskólanum á Akureyri þann 6. apríl nk. Björn Smári Gunnarsson verður til vara ef forföll verða meðal keppenda. Dómarar voru Helga Hauksdóttir og Sigríður Ása Harðardóttir. Hér má sjá fleiri myndir frá keppninni.
Lesa meira

Kynning nemenda á einhverfu og ADHD

Í dag var skemmtileg kynning frá nemendum á sal. Það voru þau Halldór Birgir í 7. bekk og Kristlaug  Eva í 6. bekk sem kynntu einhverfu og ADHD og sögðu stuttlega frá sinni reynslu af þeim röskunum. Þau stóðu sig vel og kynningin var haldin fyrir nemendur á miðstigi sem fylgdust áhugasöm með og fengu að lokinni kynningu að spyrja nokkurra spurninga. Meðfylgjandi mynd er tekin á kynningu Halldórs.
Lesa meira

Nemendur Síðuskóla taka þátt í listsýningu

Laugardaginn 5. mars kl. 15 verður opnuð í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi samsýningin Sköpun bernskunnar 2016.Þátttakendur eru Hríseyjarskóli, Leikskólarnir Hólmasól, Sunnuból og Pálmholt, grunnskólarnir Naustaskóli og Síðuskóli, Leikfangasýningin í Friðbjarnarhúsi og listamennirnir Áki Sebastian Frostason, Anne Balanant, Björg Eiríksdóttir, Elsa Dóra Gísladóttir, Egill Logi Jónsson og James Earl Ero Cisneros Tamidles. Sýningarstjóri: Guðrún Pálína Guðmundsdóttir.
Lesa meira

Árshátíð Síðuskóla 2016

Árshátíð Síðuskóla er 25. og 26. febrúar. Þessa daga sýna flestir bekkir atriði á sviði bæði fyrir nemendur á hátíð nemenda og á sérstökum foreldrasýningum. Þá eru einnig böll fyrir nemendur á öllum stigum, miðstig á fimmtudagskvöldi, yngsta stig á föstudagsmorgni og unglingastig á föstudagskvöldi.   Nánara skipulag er hér. Hér má sjá myndir frá sýningum og böllum. Undirbúningur   Foreldrasýning 1   Foreldrasýning 2   Foreldrasýning 3  Árshátíð yngsta stigs  Árshátíð miðstigs Árshátíð unglingastigs og myndataka Gulla.
Lesa meira

Árshátíð Síðuskóla 2016

Árshátíð Síðuskóla fer fram fimmtudaginn 25. og föstudaginn 26. febrúar. Nemendur eru í skólanum til kl. 13:00 á fimmtudaginn en fyrsta sýning fyrir foreldra byrjar kl. 14:30 þann dag og kaffisala að henni lokinni. Ekki er greiddur aðgangseyrir á sýningar en borga þarf inn á böll á miðstigi kr. 500 og unglingastigi kr. 1000.  Hér má sjá myndir: Undirbúningur Fyrri foreldrasýning á fimmtudag Seinni foreldrasýning á fimmtudag Árshátið miðstigs á fimmtudag Árshátíð yngsta stigs á föstudag Foreldrasýning á föstudag
Lesa meira

Skólinn opinn fyrir foreldra verðandi 1. bekkinga

Fimmtudaginn 18. febrúar nk. verður Síðuskóli með opið hús milli kl. 9:00 og 11:00 fyrir foreldra sem eiga börn fædd árið 2010. Á Akureyri hafa foreldrar verðandi 1. bekkinga haft val um hvaða skóla þeir velja fyrir þau börn sem eru að hefja nám í 1. bekk. Skólastjórnendur verða til viðtals og færi gefst á að skoða skólann og kynnast húsnæðinu lítillega og því starfi sem fram fer.
Lesa meira