ÍSAT

Útivistardagur í Hlíðarfjalli

Fimmtudaginn 12. mars var útivistardagur í Hlíðarfjalli. Nemendur og starfsfólk skólans fjölmenntu í fjallið og renndu sér á skíðum, brettum, sleðum og þotum eða léku sér í góða veðrinu á annan hátt. Dagurinn var hinn ánægjulegasti eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. 
Lesa meira

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

Í gær var lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar á Akureyri haldin í hátíðarsal Menntaskólans á Akureyri. Fulltrúar Síðuskóla, þau Birgitta Rún Steingrímsdóttir og Róbert Orri Gautason stóðu sig með prýði eins og allir keppendur. Tónlistaratriði frá nemendum Tónlistaskólans settu hátíðlegan svip á dagskrána.  Hér má sjá myndir frá keppninni.
Lesa meira

Síðuskóli sigraði Skólahreysti

Í dag sigraði lið Síðuskóla Akureyrarriðilinn í Skólahreysti 2015. Þetta er þriðja árið í röð sem Síðuskóli vinnur þennan titil. Við í Síðuskóla megum vera ákaflega stolt af þessum duglegu og flottu krökkum og samgleðjumst þeim innilega með árangurinn í dag. Hér má sjá fleiri myndir úr keppninni og enn fleiri myndir hér.
Lesa meira

Úrslit í Skólahreysti - Akureyrarriðill

Úrslit í Norðurlandsriðli í Skólahreysti fara fram miðvikudaginn 11. mars í íþróttahöllinni og hefst keppnin kl. 13:00.  Fyrir hönd Síðuskóla keppa Helga Klemenzdóttir, Snævar Atli Halldórsson, Hrund Nilima  Birgisdóttir, Sævar Þór Fylkisson, Ágústa Dröfn Pétursdóttir og Elmar Blær Hlynsson. Snævar og Hrund keppa í hraðabraut, Ágústa í armbeygjum og hreystigreip og Elmar í upphífingum og dýfum. Helga og Sævar eru svo varamenn.
Lesa meira

Samvinna

Nemendur í 1. bekk heimsóttu nemendur í 5. bekk og áttu gæðastund með þeim. Eldri nemendurnir lásu fyrir þá yngri og var ánægjulegt að sjá hvað hóparnir virkuðu vel saman. Allir virtust njóta þess vel að hittast og kynnast og efla vináttuna. Hér má sjá myndir frá heimsókninni.
Lesa meira

Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk

Í dag var stóra upplestrarhátíðin í Síðuskóla. Níu fulltrúar nemenda úr 7. bekk lásu kafla úr sögu og ljóð fyrir samnemendur í 7. bekk, 6. bekk og foreldra. Þarna voru valdir tveir nemendur, Róbert Orri Gautason og Birgitta Rún Steingrímsdóttir og einn til vara, Viktor Már Árnason.  Þau verða fulltrúar Síðuskóla í aðalkeppninni á Akureyri sem haldin verður þann 11. mars næstkomandi í hátíðarsal Menntaskólans á Akureyri að Hólum. Hér má sjá myndir frá keppninni.
Lesa meira

100 miða leikur

Í dag var tilkynnt um úrslit í 100 miða leiknum. Það var ein lína, eða 10 krakkar dregnir út úr 100 miða töflunni. Því miður var einn nemandi af þeim sem dregnir voru út veikur í dag en viðkomandi fær í staðinn glaðning í næstu viku. Þessir flottu krakkar fóru með stjórnendum í Ísbúð Akureyrar og fengu ís í viðurkenningarskyni.
Lesa meira

Myndir frá sýningunum

Árshátíð skólans fór mjög vel fram og voru allar sýningar vel sóttar. Myndir voru teknar af öllum sýningum og á böllunum líka. Þær myndir má finna hér, þær bætast við fljótlega eftir að hverri sýningu lýkur.
Lesa meira

Árshátíð - ýmsar upplýsingar

Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að framundan er árshátíð Síðuskóla. Dagarnir 12. og 13. febrúar verða vonandi fullir af gleði og skemmtun fyrir alla sem að árshátíðunum koma. Athugið að hefðbundið skólastarf fellur niður þessa daga en nemendur mæta á sínar sýningar og árshátíð hvers stigs. Ákveðnir bekkir taka þátt í undirbúningi og mæta á fimmtudagsmorgni. Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um kostnað á árshátíðinni. Kaffihlaðborðið víðfræga verður á sínum stað og kostar kr. 1.000 fyrir fullorðna og 500 fyrir börn á grunnskólaaldri. Árshátíð 1.-4. bekk enginn aðgangseyrir. Árshátíð 5.-7. bekk kr. 500 á ballið. Árshátíð 8.-10. bekk kr. 1.000 á ballið. Sjoppan verður opin og verð á sælgæti er: Bland í poka 150 kr. Sleikjó 50 kr. Mars 150 kr. KitKat 150 kr. Þristur 100 kr. Refreshers 100 kr. Svali 100 kr. Gosdós 200 kr. Kristall og Mix 250 kr.
Lesa meira

Árshátíð Síðuskóla 2015 - Skipulag

Hér má sjá skipulag á sýningum á árshátíð Síðuskóla 2015, þar kemur fram að foreldrasýningar eru á fimmtudag og föstudag. Vinsamlegast farið yfir til að sjá hvenær ykkar börn eru að sýna og hvenær þau eru á sinni árshátíð.
Lesa meira