14.01.2015
Síðastliðinn miðvikudag var samverustund á miðstigi.
Það voru krakkarnir í 6. bekk sem komu þar fram og sýndu verkefni sem þeir höfðu unnið um plánetur og vetrarbrautir. Einnig
sögðu og léku nokkrir nemendur brandara og endað var á að allir krakkarnir á miðstigi dönsuðu af miklum móð og skemmtu sér vel
áður en tekist var á við verkefni dagsins. Hér má sjá nokkrar myndir frá
þessari samverustund.
Bestu þakkir fyrir skemmtilega stund 6. bekkur.
Lesa meira
06.01.2015
Fyrsta fréttabréfið á árinu 2015 hefur nú verið sent út. Fréttabréfið má nálgast
hér undir flipanum "FRÉTTIR" ásamt öðrum eldri eintökum.
Lesa meira
19.12.2014
Litlu-jólin hjá 8.bekk enduðu á óhefðbundinn hátt í dag, því krakkarnir örkuðu upp í Lögmannshlíð -
eldri borgara heimilið við skólann, sungu fyrir íbúa þar, færðu þeim smákökur og spjölluðu við þá um
jólin fyrr og nú. Komust að mörgu fróðlegu t.d. að einn íbúinn hafði í sinni æsku fengið jólatré sem
faðir hennar hannaði og smíðaði úr mörgum trjágreinum.
Það var gaman að sjá hvað íbúarnir glöddust yfir þessari stuttu heimsókn og krakkarnir höfðu líka gaman af
þessu. Hér eru
myndir af heimsókninni.
Lesa meira
18.12.2014
Í dag lauk kynningu hjá 5. bekk á landafræðiverkefni sem nemendur hafa verið að vinna síðustu vikur. Þetta var hópverkefni þar sem
nemendur skiptu Íslandi á milli sín og unnu kynningu á hverjum landshluta fyrir sig.
Má sjá myndir frá kynningunni hér.
Lesa meira
17.12.2014
Þegar Svíarnir, sem eru í samstarfi við okkur í forritun, komu hingað í nóvember tóku þeir ferðina upp og hafa nú gert
myndband um heimsóknina í Síðuskóla. Þeir sem hafa áhuga geta kíkt á
þetta hér.
Lesa meira
15.12.2014
Nú er síðasta vika fyrir jólafrí. Kennsla verður með
hefðbundunum hætti þessa viku nema föstudaginn 19. desember þegar litlu jól nemenda verða haldin. Allir nemendur mæta í sínar heimastofur
klukkan 9:00. Um helmingur dvelur í stofum með umsjónarkennara en hinir fara á sal og horfa á helgileik 6. bekkinga og síðan er skipt. Að lokum dansa
allir saman kringum jólatré í íþróttasalnum og lýkur þeirri skemmtun klukkan 11:00. Þá hefst jólafrí nemenda en
nemendur mæta aftur í skólann þriðjudaginn 6. janúar klukkan 8:00.
Lesa meira
15.12.2014
Búið er að laga samantekt á niðurstöðum samræmdra prófa í Síðuskóla síðustu ár eftir leiðréttingu
Námsmatsstofnunar.
Hér má sjá þessa samantekt
Lesa meira
11.12.2014
Ný gjaldskrá
Frá og með áramótum hækka gjaldskrár Frístundar og mötuneytis um 4%.
Það þýðir að verð á máltíð í annaráskrift verður kr. 411, ávaxtaáskrift mun kosta kr. 6.656 önnin og
hver klukkustund í Frístund kostar kr. 343.
Lesa meira
11.12.2014
Skólahaldi í Síðuskóla er aflýst
í dag vegna ófærðar þar sem lögreglan mælir eindregið með því að fólk sé ekki á ferli. Ekki er vitað
hvenær búið verður að hreinsa allt snjómagnið af götunum.
Lesa meira
08.12.2014
Síðuskóli stefnir á að hefja að nýju samstarf við erlenda skóla á næsta ári.
Lesa meira