06.02.2015
Nemendur og kennarar í 7. bekk er komnir til baka eftir vel heppnaða dvöl að Reykjum í Hrútafirði.
Hér má sjá nokkrar myndir úr ferðinni.
Lesa meira
03.02.2015
Hér má finna nýútkomið fréttabréf Síðuskóla, bréf 7, 01.02.2015.
Lesa meira
02.02.2015
Þorgrímur Þráinsson rithöfundur kom í árlega heimsókn til nemenda í 10. bekk í morgun.
Hann ræddi við unglingana um lífið og tilveruna og að hver og einn væri ábyrgur fyrir því að gera sitt besta úr sínu
lífi. Á myndunum má sjá áhugasama nemendur fylgjast með fyrirlestrinum.
Lesa meira
02.02.2015
Í morgun lögðu glaðir og reifir 7. bekkingar af stað í skólabúðir í Reykjaskóla í Hrútafirði. Í vikunni munu
nemendur m.a. fara að Bjargi í Miðfirði á fæðingarstað Grettis ,,sterka" Ásmundssonar. Þar er nemendum sögð sagan og þeir
fá innsýn í starf bóndans á Bjargi. Aðrir dagskrárliðir eru að mestu óbreyttir en nú er samkennsla í
náttúrufræði og stöðvaleik þar sem nemendur fá fræðslu um fjöruna og Reykjatangann, þ.e. um Héraðsskólann,
hersetuna, heita vatnið og margt fleira. Þessi fræðsla fer fram bæði inni og úti eins og heimsóknin að Bjargi.
Við óskum krökkunum ánægjulegrar dvalar í Reykjaskóla og hlökkum til að sjá
þá aftur n.k. föstudag um fjögurleytið.
Hér má sjá nokkrar myndir sem voru teknar
þegar krakkarnir voru að koma sér af stað í myrkrinu í morgun.
Lesa meira
29.01.2015
9. bekkur fékk í dag góða gesti í
lífsleikni. Þar voru á ferðinni Lísa Björk Gunnarsdóttir læknaritari og Eggert Sæmundsson flugmaður. Erindi
þeirra var að kynna nám sitt og starf og tengist það náms- og starfsfræðslu sem námsráðgjafi hefur veg og vanda að í
samráði við umsjónarkennara.
Nemendur voru að vanda áhugasamir og spurðu heilmikið enda
áhugaverð störf, sjá myndir hér.
Lesa meira
25.01.2015
Í vetur hefur nemandi í 9. bekk verið að vinna í að endunýta gamla hluti. Hann tók sig
til og smíðaði bókahillur úr vörubrettum og hengdi upp í leskrók sérdeildar. Þessar hillur koma vel út og nú þegar
hefur verið óskað eftir margskonar hillum í fleiri kennslustofur.
Lesa meira
22.01.2015
Góð þátttaka hefur verið á öðruvísi dögum hjá bæði nemendum og starfsfólki skólans. Margar myndir hafa verið
teknar og greinilegt að svona tilbreytingu fylgir gleði og ánægja, myndirnar má sjá hér.
Lesa meira
16.01.2015
Vikuna 19. - 23. janúar stendur nemendaráð fyrir ,,öðruvísi dögum". Þá hvetjum við nemendur og starfsfólk til að leggja mismunandi
áherslur í klæðaburði hvern dag. Hægt er að sjá alla dagana á dagatalinu, hér til hægri, en þeir eru:
Mánudagur: Íþróttaföt
Þriðjudagur: Bangsadagur
Miðvikudagur: Gulur dagur
Fimmtudagur: Búningadagur
Föstudagur: Spariföt
Við vonum að sem flestir taki þátt :)
Lesa meira
15.01.2015
Mjög gaman var í morgun þegar allir nemendur
og starfsfólk skólans safnaðist inn í íþróttasal og dansaði undir stjórn Elínar Halldórsdóttur danskennara. Tilefnið
var að safnast höfðu 15.000 hrósmiðar og þá er venjan að brjóta skólastarfið upp með einhverjum hætti til að halda upp
á að markinu er náð.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum náði Elín að láta bæði unga og aldna gleyma sér
í dansinum.
Lesa meira
15.01.2015
Úrslit í vísnasamkeppni Námsgagnastofnunar.
Í haust efndi Námsgagnastofnum til
vísnasamkeppni í tilefni af Degi íslenskrar tungu. Gunnar Þór Sigurðarson nemandi í 1. bekk sigraði á yngsta stigi með eftirfarandi
botni:
Ljósin falleg lýsa brátt
líða fer að jólum.
Kennararnir
hlæja hátt
og halda jól í
skólum.
Í verðlaun fékk Gunnar bókina Fuglaþrugl og
nafnakrafl eftir Þórainn Eldjárn sem og viðurkenningarspjald. Við óskum Gunnari
Þór hjartanlega til hamingju.
Lesa meira