ÍSAT

Vetrarfrí

Dagana 1., 2. og 3. mars verður vetrarfrí í Síðuskóla. Nemendur verða í fríi þessa daga og mæta aftur til starfa mánudaginn 6. mars.
Lesa meira

7. bekkur að Reykjum

Á mánudagsmorgun lögðu nemendur 7. bekkjar ásamt umjónarkennurum af stað að Reykjum í Hrútafirði þar sem þeir dvelja þessa vikuna við leik og störf. Hópurinn lagði af stað heim til Akureyrar kl. 8.50 í morgun og er væntanlegur í Síðuskóla milli  klukkan 11:00 og 11:30. 
Lesa meira

Bókabingó

Nú er landsleikurinn Allir lesa í fullum gangi og tæplega 2.000 þátttakendur hafa lesið í rúmlega 20.400 klukkustundir, en það jafngildir 850 dögum á þeim 13 dögum sem af eru keppni. Nóg er eftir og enn bætast við nýir notendur daglega. Til að gera lesturinn enn skemmtilegri er hér í viðhengi bókabingó Allir lesa sem hægt er að prenta út. Þetta er fyrst og fremst til gamans gert og tilvalið fyrir yngri lesendur sem vantar lestrarhvatningu en eldri lesendur geta líka fundið margt við sitt hæfi á bingóspjaldinu.  Hér má nálgast bókabingó.
Lesa meira

Árshátíð Síðuskóla 2017

Árshátíð Síðuskóla verður haldinn fimmtudaginn 9. og föstudaginn 10. febrúar nk. Á fimmtudag hefst skóli klukkan 8:00 og stendur til um kl. 13:00 hjá yngsta stigi. Athugið að 1. bekkur dvelur í skólanum fram að sýningu kl. 14:30 þennan dag sem þeir taka þátt í. Eldri nemendur ljúka skóla um hádegi en það getur verið aðeins breytilegt eftir því hvernig stendur á. Klukkan 14:30 hefst fyrsta foreldrasýning og þá tekur við dagskrá samkvæmt meðfylgjandi skipulagi. Á föstudag er ekki kennsla heldur mæta nemendur í skólann miðað við skipulag. Skipulag árshátíðar. Myndir frá sýningu fimmtudagsins kl. 16:30
Lesa meira

Landsliðskonur í knattspyrnu í heimsókn

Á dögunum fengum við nokkrar stúlkur úr landsliði Íslands í knattspyrnu í heimsókn. Þær heimsóttu nemendur í 10. bekk í íþróttatíma en aðrir nemendur áttu kost á að koma og hitta þær, spjalla og fá eiginhandaáritun. Þetta eru flottar fyrirmyndir og gaman að þær höfðu tök á að heimsækja nemendur í Síðuskóla. Hér má sjá myndir frá heimsókninni.
Lesa meira

Viðtalsdagar 23. og 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar og þriðjudaginn 24. janúar eru foreldraviðtöl. Foreldrar hafa skráð sig í viðtal hjá umsjónarkennara og mæta á þeim tíma með sínum börnum. Stjórnendur og aðrir kennarar verða í skólanum þessa daga og ef foreldrar óska eftir að ná tali af fleiri starfsmönnum en umsjónarkennurum er það sjálfsagt mál. Miðvikudaginn 25. janúar er hefðbundinn skóladagur.
Lesa meira

Maríuhæna

Í janúar barst þessi fallega maríuhæna til skólans. Árvökull nemandi kom með hana en hún hafði borist til landsins með dönskum nordmannsþin sem er eitt algengasta jólatré landsins. Ekki varð maríuhænan langlíf í haldi og fór kennari með hana til Akureyraseturs Náttúrufræðistofnunar. Þar var staðfest að þessi tegund maríuhænu heitir sjödeppla og er ein algengasta tegundin í Mið-Evrópu. Á fræðimáli kallast hún Coccinella septempunctata. Hún hefur áður borist til landsins með varningi en ekki er vitað til þess að hún hafi numið hér land. Þetta er í fyrsta skipti sem þessi tegund finnst á Akureyri. Nánar má fræðast um tegundina á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar. http://www.ni.is/biota/animalia/arthropoda/hexapoda/insecta/coleoptera/coccinellidae/sjodepla-coccinella
Lesa meira

20.000 miða hátíð

Í morgun var 20.000 miða hátíðin hjá okkur í skólanum. Hún er haldin þegar nemendur hafa safnið þessum fjölda hrósmiða og þá er haldin hátíð þar sem allir nemendur skólans njóta góðs árangurs. Í ár var Magni Ásgeirsson tónlistarmaður fenginn til að koma og skemmta. Mikil gleði ríkti í salnum í morgun og tóku nemendur hraustlega undir með söngnum hjá Magna. Hér má sjá myndir frá hátíðinni.
Lesa meira

Rauður dagur

Þessa vikuna hafa nemendur og starfsfólk mætt í öðruvísi fötum en venjulega, í gær var t.d. rauður dagur og í dag er náttfatadagur. Í tilefni rauða dagsins í gær tókum við nokkrar myndir af nemendur sem sjá má hér.
Lesa meira

Heimsókn í íþróttir

Síðuskóli hefur átt mörg undanfarin ár farsælt samstarf við leikskóla í hverfinu. Einn þáttur þess samstarfs eru heimsóknir. Ein slík var í morgun þegar hluti elstu nemenda af leikskólanum Öspinni – Krógabóli komu og tóku þátt í íþróttatíma hjá 1. bekk. Myndin sem fylgir fréttinni sýnir allan hópinn í lok tíma.
Lesa meira