26.10.2016
Í dag, 26.október, hófst skólinn eftir haustfrí hjá nemendum
á unglingastigi með félagsvist. Spilað var á 28 borðum í matsal
skólans. Félagsvistin tókst vonum framar og verður eflaust endurtekin
fljótlega á meðan krakkarnir muna enn reglurnar.
Lesa meira
17.10.2016
Myndir frá bleika deginum föstudaginn 14. október.
Það var ánægjulegt hver margir klæddust bleiku á föstudaginn. Það á bæði við um nemendur á starfsfólk. Jói fór í göngutúr með myndavélina og myndaði nokkra bleika og brosandi.
Lesa meira
13.10.2016
Í foreldraviðtölum í næstu viku munu nemendur í 10.bekk
bjóða peysur til sölu. Peysurnar eru merktar Síðuskóla og fást í nokkrum litum. Einnig stendur til boða að merkja peysurnar með nöfnum eða
gælunöfnum. Merkingarnar eru líka í nokkrum mismunandi
litum. Peysurnar eru bæði til heilar og renndar. Heilar kosta
6000 og fást í s – xxl og renndar kosta 6500 krónur og sömu stærðir í
boði. Öllum nemendum skólans stendur til boða að kaupa sér
peysu. Hér eru myndir
Lesa meira
12.10.2016
Fyrir skömmu voru gerð myndbönd um hlutverk skólaráða og
nemendafélags í grunnskólum. Heimili og skóli ásamt fleiri hagsmunaaðilum stóðu
að gerð myndbandananna. Hægt er að smella hér til að sjá myndbandið um
nemendaráð og hér til að sjá skólaráðsmyndabandið.
Lesa meira
11.10.2016
Föstudaginn 14. október eru nemendur og starfsmenn hvattir til að klæðast bleiku en þannig sýnum við Krabbameinsfélaginu stuðning í baráttunni gegn brjóstakrabbameini.
Lesa meira
11.10.2016
Í dag var fyrsti söngsalurinn þetta skólaárið. Það voru nemendur í 1. og 6. bekk sem völdu lögin að þessu sinni. í samráði við nemendaráð var ákveðið að hafa lögin á söngsal alltaf íslensk. Að venju var byrjað á Síðuskólasöngnum en svo tóku við ýmis lög, bæði gömul og ný. Undirspilari var ívar Helgason söngkennari en hann mun koma að tónlistarviðburðum og tónlistakennslu í einhverjum mæli í skólanum í vetur. Hér má sjá fleiri myndir fá söngsal.
Lesa meira
10.10.2016
Nú er opið fyrir frammistöðumat í mentor. Foreldrar eru beðnir um að aðstoða nemendur við að fylla út matið í síðasta lagi fimmtudaginn 13. október. Föstudaginn 14. október er hægt að skoða mat kennara. Athugið að frammistöðumatið hefur verið einfaldað nokkuð frá því í fyrra í 5. - 10. bekk þar sem námsgreinum í matinu er fækkað.
Við minnum einnig á að skrá viðtalstíma í foreldraviðtöl sem verða dagana 19. og 20. október. Vinsamlegast skráið ykkur á tíma í síðasta lagi föstudaginn 14. október.
Lesa meira
07.10.2016
Í dag var haldin önnur rýmingaræfing í skólanum á þessu skólaári. Við æfðum rýmingu á D gangi, þar sem sérdeild, myndmenntarstofa, 3. og 5. bekkur hafa aðsetur. Æfingin gekk mjög vel og náðist að rýma allar kennslustofur með því að fara út úm neyðarop á 2,16 sek, frá því bjallan hringdi og þangað til allir stóðu úti á lóð í röð tilbúnir í nafnakall. Hér má sjá myndir frá æfingunni.
Lesa meira
03.10.2016
Síðuskóli hlaut á dögunum styrk frá Erasmusplus á
Íslandi. Styrkurinn sem verekefið „Traces of Europe“ hlaut hljóðar
upp á rúmlega 184.000 evrur sem skiptist á milli 6 skóla í Evrópu.
Samstarfsskólar Síðuskóla í þessu verkefni eru í Póllandi, Englandi, Noregi,
Ítalíu og í Rúmeníu. Verkefnið er til þriggja ára.Í þessu verkefni munu kennarar fara í heimsóknir og fræðast
um það sem samstarfsskólarnir eru að gera vel. Þar ber helst að
nefna upplýsingatækni, nám í gegnum leik, að fá nemendur til að vera virkir í
þjóðfélagsumræðunni, umhverfismennt og útikennsla, ásamt ýmsu öðru sem verður
numið í heimsóknum í þessa skóla. Síðuskóli mun leggja sitt af mörkum með
Byrjendalæsi. Í vor munu erlendir kennarar koma til Akureyrar og
fræðast um Byrjendalæsið.Við hlökkum til við að takast á við þetta verkefni og
vonumst til þess að þetta skili sér í breyttum kennsluháttum og fjölbreyttari
nálgun á námsefnið þegar fram líða stundir.
Lesa meira
23.09.2016
Hér má sjá nokkrar skemmtilegar myndir frá list- og verkgreinakennslu í 1. og 2. bekk
Lesa meira