01.04.2009
Síðuskóli tekur þátt í Evrópuverkefni sem kennt er við Comenius. Þessu fylgir að nemendur og kennarar fara milli
þátttökulanda í heimsókn. Í þessu verkefni eru skólar frá Ítalíu, Slóveníu, Þýskalandi og Noregi
auk okkar. Kennarar og nemendur úr Síðuskóla hafa farið í heimsókn til Ítalíu og Noregs og nú erum við með 9 kennara og 15
nemendur í heimsókn í Síðuskóla. Nemendurnir gista á heimilum okkar nemenda og taka þeir þátt í skólastarfinu með
þeim. Einnig eru kynningar á verkefnum sem þau hafa verið að vinna að og heimahögum þátttakenda. Auk þess fer hópurinn í
kynnisferðir um Akureyri og nágrenni. Í dag er ferðinni heitið í Mývatnssveit og Húsavík.
Verkefnið er þroskandi og lærdómsríkt fyrir alla sem að því koma og hefur verið ánægjulegt að hafa þessa góðu
gesti í skólanum.
Lesa meira
24.03.2009
Árshátíð Síðuskóla verður
haldin 2. og 3. apríl og af því tilefni breytist stundaskrá þessa daga. Ekki verður kennt fyrir hádegi en sýningar eru eftir hádegi sem
hér segir.
Fimmtudaginn 2.
apríl
Klukkan 12:30 verður sýning fyrir nemendur í 1. - 5. bekk. Skemmtikraftar á þeirri sýningu verða nemendur í 5. EJK2, 7.
bekkur, 8. KLM, 8. BJ og 10. bekkur. Verð er 200 kr. og verður ball og sjoppa eftir sýningu. Tómstunda- og leikherbergi verða opin.
Klukkan 16:00 verður sýning fyrir foreldra. Skemmtikraftar á þeirri sýningu
verða nemendur í 2. SÁ, 1. SES, 4. HL, 3. SS, 5. EJK2, 7. bekk, 7. bekk (töfram.), 8. KLM og 10. bekkur.
Verð á sýninguna er 500 kr. fyrir fullorðna og 300 kr. fyrir börn.
Kaffisala verður eftir sýningu. Verð í kaffi 600 kr. fyrir nemendur í 8. - 10. bekk og fullorðna og 300 kr. fyrir börn í 1. -7. bekk. Frítt
fyrir 6 ára og yngri.
Boðið er upp á barnagæslu meðan á sýningu stendur.
Föstudagurinn 3.
apríl
Klukkan 15:00 verður sýning fyrir foreldra. Skemmtikraftar á þeirri sýningu
verða 4. SEB, 1. MB, 3. SG, 2. ASR, 5. EJK1, 8. BJ og 10. bekkur.
Verð á sýninguna er 500 kr. fyrir fullorðna og 300 kr. fyrir börn.
Kaffisala verður eftir sýningu. Verð í kaffi 600 kr. fyrir nemendur í 8. - 10.bekk og fullorðna og 300 kr. fyrir börn í 1. - 7. bekk. Frítt
fyrir 6 ára og yngri.
Boðið er upp á barnagæslu meðan á sýningu stendur.
Klukkan 19:30 verður sýning fyrir nemendur í 6. - 10. bekk. Skemmtikraftar á
þeirri sýningu verða 7. bekk, 7. bekk (töfram.), 8. KLM, 8. BJ og 10. bekkur.
Verð: 500 kr. fyrir 6. og 7. bekk, 700 kr. fyrir 8. - 10. bekk. 500 kr. bara á ball.
Ball, sjoppa og kaffihús eftir sýningu. Tómstundaherbergi verður opið eftir sýningu.
Lesa meira
20.03.2009
Kallað var á sal í morgun til að heiðra nokkra nemendur vegna glæsilegrar frammistöðu í ýmsum greinum.
Fyrst las Herdís Elín Þorvaldsdóttir ljóð sem hún las í stóru upplestrarkeppninni þar sem hún var í 2.
sæti.
Svo voru nokkrir íþróttamenn kallaðir á svið:
Fyrir Skólahreysti:
Hákon Valur Dansson
Heiðrún Dís Stefánsdóttir
Unnur Lára Halldórsdóttir
Arnór Þorri Þorsteinsson
Fyrir frjálsar íþróttir:
Kolbeinn Höður Gunnarsson
Fyrir Íshokkí:
Ingólfur Tryggvi Elíasson
Jóhann Már Leifsson
og fengu hrós klapp og rós fyrir afrek sín.
Myndir má sjá hér.
Lesa meira
19.03.2009
Þann 13. mars síðastliðinn kepptu nemendur í Síðuskóla í Skólahreysti.
Síðuskóli lenti í 2. sæti með 36 stig, rétt á eftir Þelamerkurskóla.
Keppendur stóðu sig með mikilli prýði og má til gamans geta að við vorum með besta tímann í hraðabrautinni.
Við óskum keppendum öllum til hamingju með þennan árangur.
Þeir sem tóku þátt fyrir hönd Síðuskóla voru:
Hákon Valur Dansson (10.H.F)
Heiðrún Dís Stefánsdóttir (10.H.F)
Unnur Lára Halldórsdóttir (9.S.A)
Arnór Þorri Þorsteinsson (9.S.J)
Varamenn voru:
Hákon Guðni Hjartarson (9.S.J)
Oddný Gunnarsdóttir (9.S.A)
Lesa meira
17.03.2009
Í gær 16. mars fóru fram úrslit í Stóru upplestrarkeppninni 2008/2009 í 7. bekk.
Keppendur sem valdir voru til að keppa á Hólum, M.A. voru:
Einar Aron Fjalarsson, Herdís Elín Þorvaldsdóttir og Elfa Jónsdóttir til vara.
Stóðu keppendur sig með prýði og urðu úrslit sem hér segir:
1. verðlaun hlaut Eva Laufey Eggertsdóttir (Giljaskóla)
2. verðlaun hlaut Herdís Elín Þorvaldsdóttir (Síðuskóla)
3. verðlaun hlaut Aldís Greta Bergdal (Grunnskólanum í Hrísey)
Við óskum öllum keppendum til hamingju með þennan árangur.
Lesa meira
12.03.2009
Matseðill fyrir apríl er kominn inn og viljum við minna á að opið er fyrir skráningar í mat.
Matseðilinn má finna hér.
Lesa meira
11.03.2009
Komnar eru inn myndir frá söngsal 1-5 bekkjar. Stjórnandi er Gunnar Halldórsson. Myndirnar má sjá hér.
Lesa meira
11.03.2009
Undanúrslit Síðuskóla í stóru upplestrarkeppninni fóru fram þriðjudaginn 10. mars. Þar kepptu 14 nemendur úr báðum 7.
bekkjunum og stóðu sig með prýði.
Þeir sem komust áfram og keppa til úrslita eru:
Herdís Elín Þorvaldsdóttir 7.B og
Einar Aron Fjalarsson 7.B
Til vara: Elfa Jónsdóttir 7.H.H
Allir nemendur 7. bekkja fá viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna í vetur.
Lokakeppnin verður mánudaginn 16. mars í Kvosinni, Hólum M.A. klukkan 17-19.
Þar taka þátt allir grunnskólar á Akureyri auk Hríseyjar.
Við hvetjum nemendur 7. bekkjar ásamt foreldrum og forráðamönnum 7. bekkinga sem og aðra aðstandendur til þess að mæta.
Lesa meira
06.03.2009
Fleiri myndir eru komnar inn frá námskeiði 6. bekkjar á Friðrik V.
Myndirnar má sjá hér.
Lesa meira
24.02.2009
Lestrarkeppnin í ár var
hörkuspennandi og skemmtileg. Hún stóð
frá 2. til 18. febrúar.
Alls lásu nemendur hvorki
meira né minna en 50.218 blaðsíður eða
að meðaltali
577 bls. á mann.
Viðurkenningar fyrir mjög góðan árangur hljóta:
Axel
Þór Jónasson 4. bekk HL
Bára
Dís Sigmarsdóttir 4.
bekk HL
Jörundur
G. Sigurbjörnsson 4. bekk SEB
Jelena
Kovacevic 5. bekk 2
Viðurkenningar fyrir miklar framfarir hljóta:
Jenný
Björnsdóttir 4. bekk SEB
Lena Sóley Þorvaldsdóttir 5.
bekk 1
Sigmar
Pálsson 5. bekk 1
Svavar
S. Sigurðarson 5. bekk 1
Harpa
Lind Hjálmarsdóttir 5. bekk 2
Lestrarhestar og þeir sem
sýndu mestar framfarir fá í verðlaun bókina Undur náttúrunnar, eftir David Burnie. Bókin er mjög falleg og segir frá nokkrum merkilegum stöðum og dýrum á jörðinni.
Lestrarhestur í 4. bekk HL er: Valgerður Pétursdóttir
Mestar framfarir í 4. bekk HL
sýndi: Ingólfur Þór Hannesson
Lestrarhestur í 4. bekk SEB
er: Hafþór Már Vignisson
Mestar framfarir í 4. bekk SEB
sýndi : Anna Margrét Bragadóttir
Lestrarhestur í 5. bekk 1.
er: Fríða Björk
Einarsdóttir
Mestar framfarir í 5. bekk 1
sýndi: Rósa Guðbjört Austfjörð
Lestrarhestur í 5. bekk 2.
er: Ingibjörg Íris
Kristjánsdóttir
Mestar framfarir í 5. bekk 2
sýndi Aron Marvin Þórarinsson
Og hvort var það svo 4. eða
5. bekkur sem vann þessa keppni..............:)
Það
er.............................................. 5. bekkur, en þau lásu hvorki meira né minna
en 34789 blaðsíður samtals.
Lesa meira