13.10.2009
Minnum á að matseðill fyrir nóvember er kominn inn.
Hann má nálgast hér.
Lesa meira
12.10.2009
Ína fyrrum nemandi í Síðuskóla kom í heimsókn í 8. bekk í landafræðitíma hjá Sigrúnu
Sigurðardóttur í morgun. Hún sagði frá dvöl sinni og starfi í Mósambik þar sem hún hefur verið á undanförnum
árum. Ína hefur verið við nám í kennaraskóla í Danmörku þar sem hluti af náminu fellst í því að
fara og kenna á ýmsum stöðum í heiminum.
Ína sagði skemmtilega frá og sýndi margar myndir frá lífinu í Mósambik. Nemendur hlustuðu af athygli og voru duglegir að
spyrja. Þetta var ekki fyrsta heimsókn Ínu til okkar og vonum við að hún geti komið til okkar aftur á næstu árum. Ína heldur
aftur til Mósambik í desember og óskum við henni alls góðs í framtíðinni.
Lesa meira
09.10.2009
Nýjar myndir eru komnar inn í myndaalbúm 6. bekkjar.
Myndirnar má sjá hér.
Lesa meira
18.09.2009
Laugardaginn 5. september var haldið upp á 25 ára afmæli Síðuskóla.
Myndir frá hátíðinni má sjá hér.
ATH: Bætt hefur verið við myndum frá afmælishátíðinni sem má nálgast hér.
Lesa meira
18.09.2009
Við í Síðuskóla tökum nú í annað sinn þátt í alþjóðlega verkefninu Göngum í
skólann. Október er alþjóðlegur skólagöngumánuður - og alþjóðlegi „göngum í skólann“ dagurinn er
9. október 2009. Á Íslandi ákvað verkefnisstjórn að verkefnið hæfist 9. september og ljúki formlega á
alþjóðlega Göngum í skólann deginum 9. október næstkomandi. Við settum verkefni okkar með árlegu skólahlaupi
okkar. Allir nemendur og starfsmenn hlupu eða gengu skólahringinn. Kennarar hafa síðan kannað í bekkjum sínum hversu margir nemendur koma gangandi,
hjólandi, með almenningsvögnum eða með einkabíl í skólann.
Í næstu viku (og einnig í vikunni 5. - 9. október) verður skráð í öllum bekkjum hvernig nemendur og starfsmenn koma í
skólann. Þá munu einnig verða svokallaðir skólatöskudagar því það er margt sem hafa þarf í huga þegar þessi
hlutur er notaður. Markmiðið er að læra hvað gott sé að hafa í huga við val á skólatösku, hversu þung taskan
megi vera, og hvernig æskilegast er að bera töskuna og raða sem best í hana. Nemendur þurfa að bera námsgögn á milli heimilis og
skóla og því er þetta verkefni valið að þessu sinni. Í skólanum starfar iðjuþjálfi sem mun fara á milli bekkja
með hjúkrunarfræðingi og námsráðgjafa. Þeir munu vigta töskur og nemendur og sjá um fræðsluna.
Við hvetjum alla nemendur og starfsmenn til að koma gangandi eða hjólandi til vinnu. Það er bæði umhverfisvænt og hollt. Því fylgir
góð hreyfing og útivera verður meiri.
Lesa meira
17.09.2009
Minnum á að matseðill fyrir september er kominn inn.
Hann má nálgast hér.
Lesa meira
17.09.2009
Á myndasíðu 6. bekkjar eru komnar inn nýjar myndir frá umhverfisdeginum, ferð niður að Hundtjörn og frá siglingu með HúnaII.
Myndirnar má sjá hér.
Lesa meira
14.09.2009
Hér vinstra megin á síðunni hefur verið settur inn hlekkur á viðbragðsáætlun Síðuskóla vegna inflúensu.
Viðbragðsáætlun þessi segir fyrir um skipulag og stjórn aðgerða í Síðuskóla í samræmi við áætlun
Almannavarna um viðbrögð við heimsútbreiðslu inflúensu.
Markmið viðbragðsáætlana skóla eru að tryggja skipulögð og samræmd viðbrögð allra
skólastofnana sem og starfsmanna þeirra þegar til inflúensufaraldurs kemur.
Biðjum við alla um að kynna sér þessa áætlun.
Viðbragðsáætlun vegna inflúensu
Lesa meira
09.09.2009
Í dag miðvikudaginn 9. september var Norræna skólahlaupið haldið. Hlaupið gekk mjög vel fyrir sig og stóðu nemendur sig mjög vel.
Verðlaun voru veitt fyrir fyrstu 3 sætin í hverjum aldursflokk og hér má sjá hverjir náðu bestu tímunum að þessu sinni.
Myndir má sjá hér.
Til að sjá úrslit hlaupsins smelltu þá á lesa meira.
Lesa meira
08.09.2009
F.O.K.S. býður upp á súpufund
fimmtudaginn 10. september 2009 klukkan 18:00
Dagskrá:Fundarsetning
Ávarp skólastjóra
Skýrsla stjórnar
Afgreiðsla reikninga
Alice Harpa Björgvinsdóttir, sálfræðingur flytur fyrirlesturinn.
Gaman saman: Mikilvægi jákvæðs hugarfars
Kosning í stjórn
Önnur mál
Gaman væri að sjá sem flesta
Stjórn F.O.K.S.
Lesa meira