11.12.2008
Hér eru sýnishorn af verkefnum sem 4. og 5. bekkir unnu saman í náttúrufræði. Unnið var með fugla og í tengslum
við GETA-verkefnið sem er þróunarverkefni hér í skólanum í umhverfismennt. GETA er liður í alþjóðlegri viðleitni til
að efla og útbreiða menntun til sjálfbærrar þróunar .
Markmiðið er að:
o Skapa þekkingu og færni í þágu menntunar til sjálfbærni heima og heiman
o Stuðla að aukinni virðingu fyrir náttúru og umhverfi, fyrir margbreytni og gildum sem stuðla að
sjálfbærni í samskiptum mannsins við umhverfi sitt og innbyrðis á milli manna og samfélaga.
o Efla skilning á samábyrgð okkar á framtíð mannkyns og að komandi kynslóðir hafi
möguleika á að fullnægja þörfum sínum.
Meðal verkefna sem nemendur unnu er skilti sem leiðbeina á um umgengni á varplandi fugla og auglýsingabæklingur fyrir
veiðimenn. En myndirnar tala sínu máli.
Myndirnar má sjá hér.
Lesa meira
10.12.2008
Matseðill fyrir janúar 2009 er kominn inn og viljum við minna á að opið er fyrir skráningar í mat.
Matseðilinn má nálgast hér.
Lesa meira
09.12.2008
Anette Kristensen sendikennari frá Odense í Danmörku er nú stödd í Síðuskóla. Hún dvelur á Akureyri þetta
skólaár og er u.þ.b. 5 vikur í hverjum grunnskóla bæjarins. Koma sendikennara hingað er samstarfsverkefni á milli
menntamálaráðuneytanna í Danmörku og á Íslandi. Anette er búin að vera hjá okkur í 3 vikur og lýkur kennslu sinni í
Síðuskóla í næstu viku. Hún hefur kennst dönsku í 7.-10. bekk og lagt megináherslu á talað mál. Nemendur hafa tekið
henni mjög vel og verið duglegir og ófeimnir að taka þátt í þeim verkefnum sem hún hefur lagt fyrir.
Verkefnin sem unnið hefur verið með hafa verið fjölbreytt og skemmtileg, má þar m.a. nefna vinnu með íslenskar og danskar jólahefðir, kynningu
á danskri og íslenskri tónlist og söng.
Þetta er í fjórða sinn sem sendikennari kemur til skólans og er von okkar að framhald verði á þessu samstarfsverkefni.
Lesa meira
05.12.2008
Nú er komið að því að skrá börnin í mat fyrir janúar n.k., skáningu þarf að vera lokið fyrir 15. desember.
(Fyrir þá sem ekki eru með annaráskrift í mat).
(Vinsamlegast smellið á "lesa meira" fyrir frekari upplýsingar).
Lesa meira
02.12.2008
Hin árlega spurningakeppni eldri deildar var haldin í 11. sinn þann 1. desember og má því segja að mikil hefð sé orðin fyrir henni.
Nú voru nemendur í 7. bekk með í fyrsta skipti en þeir eru hluti af eldri deild. Keppnin var jöfn milli 9. og 10. bekkjar og höfðu nemendur 10. bekkjar
sigur þetta árið.
Lesa meira
26.11.2008
Nemendur í 6. bekk fóru fyrir skömmu í siglingu með Húna. Eftir ferðina tóku nemendur þátt í getraun þar sem þau
svöruðu nokkrum spurningum um það sem þau höfðu lært í ferðinni.
Dregið var úr réttum svörum og var það Atli Rúnar Heiðarsson sem varð fyrir valinu.
Verðlaunin eru ekki af verri endanum en hann vann matreiðslunámskeið fyrir allan bekkinn á Friðrik V.
Við óskum Atla og bekkjarfélögum hans til hamingju.
Lesa meira
18.11.2008
Síðuskóli hefur fengið fræðslusýninguna Sjálfbær þróun á heimsvísu sem byggð er á hugmyndum
Sáttmála jarðar en hann var saminn af nefnd skipaðri af Sameinuðu þjóðunum. Sýningin samanstendur af veggspjöldum sem innihalda
fróðleik um sjálfbæra þróun og umhverfismál. Sýningin var upprunalega sýnd á Heimsfundinum um sjálfbæra
þróun í Jóhannesarborg árið 2002 en SGI á Íslandi þýddi sýninguna og prentaði.
Sýningin var svo opnuð í dag þriðjudaginn 18. nóvember á Glerártorgi. Við hvetjum alla til þess að líta þar við og
skoða.
Lesa meira
18.11.2008
Þann 11. og 12. nóvember voru haldnir þemadagar í Síðuskóla. Yfirskrift þemadagana var "Fjölgreindaleikar Síðuskóla".
Óhætt er að segja að nemendur stóðu sig sérstaklega vel.
Starfsfólk skólans þakkar nemendum kærlega fyrir ánægjulega og góða leika þessa daga.
Myndir má finna hér.
Lesa meira
16.11.2008
Nú er matseðlillinn fyrir desember kominn inn og viljum við því minna fólk á að opið er fyrir skráningar í mat.
Matseðilinn má sjá hér.
Lesa meira
13.11.2008
Í síðustu viku var farin ferð á vegum skólans til Ítalíu, nánar tiltekið til Rómarborgar. Ekki voru margir
rómverskir riddarar á sveimi þar en íslenskir, þýskir, slóvenskir og norskir kennarar með nemendur hittust vegna Comeniusarverkefnisins
„Litir“. Gerður var mjög góður rómur af verki íslensku nemendanna sem lögðu hönd á plóg.
Ingólfur Tryggvi Elíasson 10.bekk og Sólveig María Árnadóttir úr 9.bekk fóru fyrir hönd nemenda skólans og kynntu þau verk
sem skólinn lagði til. Þau stóðu sig mjög vel og voru til fyrirmyndar í öllu því sem þau tóku sér fyrir
hendur.
Bibbi og Hrönn fóru fyrir hönd kennara og lögðu þar drög að framhaldi verkefnisins. Næst liggur fyrir að fara til Noregs í byrjun
febrúar og í lok apríl munu nemendur og kennarar frá þessum löndum sækja okkur heim.
Í Róm var ýmislegt skoðað og það sem bar hæst var Vatíkanið með öllu því sem þar bar fyrir sjónir
og Colesseum (hringleikahúsið) þar sem menn öttu kappi við ljón til forna. Ljónin voru því miður ekki á staðnum þannig
að norrænir víkingar gátu ekki tekist á við þau að þessu sinni. Það bíður betri tíma.
Ferðin tókst í alla staði mjög vel og verður okkur ferðalöngunum minnistæð þangað til við gleymum henni.
Bibbi
Lesa meira