08.10.2014
Viðtalsdagar verða í skólanum 22. og 23. október. Foreldrar geta valið viðtalstíma þessa daga á Mentor en
þurfa að skrá þá í síðasta lagi 17. október. Hægt er að nálgast leiðbeiningar um hvernig foreldrar skrá
frammistöðumatið hér.
Jafnframt er búið að opna fyrir frammistöðumat í Mentor þar sem nemendur meta sína stöðu með
aðstoð foreldra. Ljúka þarf við frammistöðumatið fyrir 19. október en hægt er að skoða
mat kennara frá og með 20. október.
Lesa meira
02.10.2014
Í dag var þriðja fréttabréf skólans sent út.
Hér má sjá bréfið í heild sinni.
Lesa meira
24.09.2014
Nemendur í 1. – 7. bekk á Akureyri
tóku þátt í valinu á bestu barnabókinni 2013. Einn nemandi í hverjum grunnskóla á Akureyri fékk
bókaverðlaun og í Síðuskóla hlaut Rúnar Freyr Egilsson í 6. bekk í verðlaun bókina Stiklað á stóru
um býsna margt eftir Bill Bryson í þýðingu Guðna Kolbeinssonar. Amtsbókasafnið á Akureyri sér um verðlaunaafhendingu til nemenda í grunnskólum Akureyrar.
Herdísi Friðfinnsdóttur
barnabókavörður á Amtsbókasafninu á Akureyri sem afhenti Rúnari Frey verðlaunin.
Rúnar og Herdís með 6.bekk.
Lesa meira
24.09.2014
Bókaverðlaun barnanna voru afhent við
hátíðlega athöfn í Borgarbókasafni við Tryggvagötu í gær, sunnudaginn 21. september. Bókin Ragnstæður í Reykjavík eftir Gunnar Helgason hlaut flest atkvæði í
flokki íslenskra barnabóka og Amma glæpon eftir David Walliams, í
þýðingu Guðna Kolbeinssonar, í flokki þýddra barnabóka.
Tæplega fjögur þúsund börn af
öllu landinu tóku þátt í valinu, sem fór fram á heimasíðu Borgarbókasafns og í grunnskólum og bókasöfnum um
allt land.
Handhafar bókaverðlaunanna sjálfra fengu
bók Ragnars Axelssonar Fjallaland að gjöf frá safninu.
Lesa meira
22.09.2014
Í þessari viku eru samræmd könnunarpróf hjá 4., 7. og 10. bekk. Nemendur í 10. bekk byrja á íslenskuprófi á mánudag,
ensku á þriðjudag og stærðfræði á miðvikudag. Nemendur 4. og 7. bekkjar fara í íslenskupróf á fimmtudag og
stærðfræði á föstudag. Reynt er að halda stundatöflu eins og kostur er þessa daga, nema meðan prófin standa yfir. Því er
mæting í tíma að prófi loknu en nemendur 10. bekkjar hafa val um mætingar í valgreinar á mánudag og þriðjudag.
Lesa meira
18.09.2014
Í dag var tilkynnt um sigurvegara í keppninni um Náttúrfræðing Síðuskóla. Að þessu sinni var Sóley Brattberg
Gunnarsdóttir í 6. SEB hlutskörpust með 11 atriði rétt af 15.
Að auki fengu fimm nemendur viðurkenningu fyrir góða frammistöðu eða þau Aníta Mist Fjalarsdóttir í 2. bekk, Aldís
Þóra Haraldsóttir 4. SES, Sara Dögg Sigmundsdóttir 5. JÁ, Ásbjörn Guðlaugsson 7. KH og Fanney Rún Stefánsdóttir 8.
SFS.
Við óskum þessum krökkum til hamingju með frábæra frammistöðu.
Lesa meira
16.09.2014
Í dag 16. september er dagur íslenskar náttúru.
Í Síðuskóla var dagurinn haldinn hátíðlegur, allir nemendur skólans nutu náttúrunnar á einhvern hátt og
hefðbundið skólastarf var sett til hliðar. Hver árgangur fór á ákveðinn stað í bæjarlandinu eins og undanfarin
ár.
1. bekkur fór í Sílabás og nemendur 2. bekkjar gengu í trjálundinn milli Skarðshlíðar og Seljahlíðar og dvöldu þar
við leik og nám. Nemendur 3. bekkjar fóru í Krossanesborgir og 4. bekkur í Naustaborgir. Krakkarnir í 5. bekk heimsóttu gömlu
gróðrarstöðina í innbænum. Kennarar og nemendur 6. bekkjar gengu niður með Gleránni og 7. bekkur gekk svokallaðan fræðslustíg
frá Háskólanum á Akureyri, suður á Brekku og fékk á leiðinni ýmsa fræðslu og leysti verkefni. Krakkarnir í 8. bekk
fóru inn í Innbæ þar sem kennarar voru búnir að undirbúa spjaldtölvu og snjallsímavænan ratleik. 9. bekkingar heimsóttu
endurvinnsluna á Hlíðarvöllum og gengu Lögmannshlíðarhring á eftir og 10. bekkingar gengu á Súlur.
Eins og fyrri daginn þegar við í Síðuskóla ákveðum að bregða okkur út lék veðrið við okkur en það hefur
auðvitað mikið um það að segja hvernig svona dagar lukkast. Síðast en ekki síst má nefna að leitin að
Náttúrufræðingi Síðuskóla árið 2014 fór fram í morgun þar sem nemendur í 2. bekk og eldri spreyttu sig í
því að bera kennsl á fugla, plöntur og íslenskt landslag. Úrslit verða tilkynnt á fimmtudagsmorguninn þar sem stigahæsti nemandinn er
Náttúrfræðingur Síðuskóla 2014 en einnig eru veittar viðurkenningar fyrir góða frammistöðu eftir stigum.
Teknar eru myndir í ferðunum og má sjá þær hér.
Lesa meira
15.09.2014
Afmælishátíð Síðuskóla þann 11. september heppnaðist afar vel. Um morguninn glímdu nemendur við ýmis óhefðbundin
verkefni s.s. dans, parkour, spilaborgir, föndur og þrautir svo dæmi séu nefnd. Úti á nýja grillinu voru grillaðar pylsur sem vafðar voru inn
í deig. Gleðin skein úr hverju andliti og veðrið lék heldur betur við okkur. Um helmingur stöðvanna var utan dyra og þá skiptir miklu
máli að veðurguðirnir séu okkur hliðhollir. Seinni part dags tóku kennarar á móti nemendum en
þá fóru þeir elstu í ratleik en aðrir spiluðu og sungu.
Hátíðardagskrá hófst svo á sal þar sem skólastjóri flutti erindi og tók
á móti gjöfum. Margir tóku þátt í skrúðgöngu um hverfið og að henni lokinni fengu gestir að gæða sér
á glæsilegum afmælistertum sem matráður og aðstoðarmenn höfðu unnið hörðum höndum við að
útbúa.
Enn lék veðrið við okkur og margir kusu að dvelja utan dyra þar sem hægt var að hlusta á lifandi
tónlist, grilla sykurpúða og leika í hoppukastala, kríta og blása sápukúlur. Starfsfólk skólans þakkar öllum sem
lögðu hönd á plóginn og má þar sérstaklega nefna foreldrafélag skólans og þeim gestum sem glöddu okkur með nærveru
sinni.
Það var mikið á hátíðinni og má finna
myndir hér og enn er verið að bæta fleiri myndum við.
Lesa meira
09.09.2014
Í dag fór skólahlaupið fram í Síðuskóla. Þar hlupu margir efnilegir hlauparar og frábær árangur hjá
nemendum. Nemendum er skipt í 3 hópa, yngsta stig, miðstig og elsta stig og síðan kynjaskipt í
hópunum. Hlaupið fór í alla staði vel fram í frábæru veðri og hér fyrir neðan má sjá úrslitin í öllum
flokkum.
Fyrstu myndir frá hlaupinu eru komnar inn á síðuna.
ÚRSLIT
STRÁKAR 8. - 10. bekkur.
1. Ragúel Pino Alexandersson 8.B 08: 14
2. Haukur Brynjarsson 9.SJ 08:33
3. Hilmir
Kristjánsson 10.HK 08:42
STELPUR 8. -10. bekkur.
1. Hulda Karen Ingvarsdóttir 8.BJ 09:14
2. Ágústa Dröfn Petursdóttir 9.SJ
09:38
3. Helga Klemenzdóttir 10.HK 09:53
STRÁKAR 5. - 7. bekkur.
1. Sigfús Fannar
Gunnarsson 7.KH 09:07
2. Aron Ingi Magnússon 5.HB 09:14
3. Elmar Þór Jónssón 7.KH 09:20
STELPUR 5. - 7. bekkur.
1. Írena Sunna Björnsdóttir 5.HB
10:09
2. Andrea Ýr Reynisdóttir 7.KH 11:40
3. Vaka Jónsdóttir 7.KH 12:31
STRÁKAR 1. - 4. bekkur.
1. Ingimar Arnar Krístjánsson 4.MB
10:40
2. Viktor Smári Ingusson 3.MBT 10:54
3. Daníel Hrafn Ingvarsson 3.ASR 10:55
STELPUR 1. - 4. bekkur.
1. Kristel Eva Gunnarsdóttir 4.MB 10:58
2. Sólveig Alexandra Jónsdóttir 4.SES 11:20
3. Rakel Alda Steinsdóttir 4.MB 12:50
Lesa meira
11.09.2014
Boðskort
Í haust eru 30 ár frá því Síðuskóli hóf starfsemi
sína. Af því tilefni er foreldrum, fyrrum starfsmönnum og öðrum velunnurum boðið í hátíðardagskrá og kaffi þann 11.
september klukkan 16:30 í íþróttahúsinu. Allir velkomnir.
Lesa meira