30.09.2012
Síðuskóli er í Comeniusarsamstarfi við skóla
í Englandi, Þýskalandi, Frakklandi og á Spáni og komu kennarar og nemendur þessara skóla í heimsókn hingað í síðustu
viku.
Unnið var með þemað ,,sjálfbær borg" Nemendur unnu
að því í vikunni að hanna borg sem væri sem mest sjálfbær og skipulögðu þeir borgina með hliðsjón af
stjórnmálum, mannvirkjum, orkumálum, samgöngum, skólamálum og fleiru sem þeir töldu að sjálfbær borg ætti að hafa
yfir að ráða.
Nemendur og kennarar gerðu sér margt til dægrarstyttingar og
fóru þeir bæði í innanbæjartúr um söfn - Minjasafnið og Iðnaðarsafnið og skoðuðu áhugaverða staði -
Lögmannshlíðarkirkja og Jólahúsið ásamt því að fara í heimsókn til bæjarstjórans. Einnig var farin dagsferð
með íslenskum nemendum í Mývatnssveit þar sem farið var á hestbak, í Dimmuborgir, Kröflu og jarðböðin.
Á fimmtudegi og föstudegi 27. og 28. sept voru gestirnir kvaddir með
tárum.
Lesa meira
24.09.2012
Á föstudaginn 28. september er skipulagsdagur í Síðuskóla.
Þá er engin kennsla og Frístund er lokuð allan daginn eins og sjá má á skóladagatali Síðuskóla.
Ólafur B Thoroddsen
Skólastjóri
Lesa meira
13.09.2012
Leitin að Grenndargralinu 2012 er
hafin!
Leit nemenda að Grenndargralinu er hafin fimmta árið í
röð. Þátttakendur eru nemendur í 8.-10.bekk í grunnskólum á Akureyri. Nemendur í Giljaskóla leituðu að gralinu í fyrsta
skipti haustið 2008. Árið 2009 tók Síðuskóli líka þátt. Það ár fundu gralið þær Guðrún
Baldvinsdóttir og Lovísa Rut Stefánsdóttir nemendur við skólann. Síðan þá hefur Síðuskóli tekið þátt
og fleiri skólar hafa jafnframt bæst í hópinn.
Takmark þátttakenda er að finna bikar, hið svokallaða
Grenndargral, sem búið er að koma fyrir á vissumstað á Akureyri. Leitin að gralinu tekur 10 vikur og
hún fer þannig fram að nemendur, ýmist einir eða tveir saman, fá eina þraut til lausnar í viku hverri. Þraut sem tengist sögu eða
menningu Akureyrar og/eða Eyjafjarðar. Við lausn hverrar þrautar fá nemendur einn bókstaf. Markmið þeirra er að safna að lágmarki tíu
bókstöfum sem fást við úrlausn þrautanna sem þeir svo nota til aðmynda ákveðið orð. Orðið er nokkurs konar lykilorð og er
þekkt úr sögu Eyjafjarðar. Þegar krakkarnir ná að raða saman bókstöfunum og mynda sjálft lykilorðið öðlast þeir
rétt til að hefja leit að Grenndargralinu.
Þrautirnar tíu munu birtast á
heimasíðu Leitarinnar á föstudögum auk þess sem fréttir og tilkynningar munu birtast á facebook-síðu Leitarinnar. Öll vinna nemenda fer
fram utan skólatíma og því er um frjálsa þátttöku að ræða. Allar upplýsingar um Leitina má finna á
heimasíðu verkefnisins www.grenndargral.is.
Framundan eru 10 vikur fullar af spennandi viðfangsefnum og ljóst að
keppnin harðnar með hverju árinu. Við viljum hvetja foreldra og aðra sem koma að uppeldi þeirra sem taka þátt í Leitinni til að
aðstoða þau við úrvinnslu þrautanna. Leitin er góður vettvangur fyrir fjölskylduna að koma saman og vinna að sameiginlegu verkefni þar sem
allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Allir geta tekið þátt.
Umsjónarmaður Leitarinnar í Síðuskóla er
Sigrún Sigurðardóttir kennari á unglingastigi.
Lesa meira
12.09.2012
Norræna skólahlaupið fór fram
fimmtudaginn 6. september.
Eftir hlaup var farið í mat / sturtu og verðlaunafhending hófst
í íþróttasalnum kl. 12:10. Þar voru tvær stúlkur úr Íslandsmeistaraliði Þórs-KA mættar og hjálpuðu til
við verðlaunaafhendinguna. Kærar þakkir fyrir það Sandra María Jessen og Karen Nóadóttir.
Árangur nemenda Síðuskóla, og kennara auðvitað, var
mjög góður. Úrslitin eru hér fyrir neðan og myndir frá hlaupinu og verðlaunaafhendingunni má finna hér.
1.-4. bekkur strákar1. Ragnar Óli
Ragnarsson 4. LHS 17.402. Rúnar Freyr Egilsson 4. SÁ
17.423. Manuel Árni Manuelsson 3. TS 18.45
1.- 4. bekkur stelpur1. B. Írena Sunna Björnsdóttir 3.
TS 19.032. Þorgerður Katrín Jónsdóttir 2. SES 20.123. Kristlaug Eva Wium Elíasdóttir 3. EBJ
20.55
5.-7. bekkur strákar1. Haukur Brynjarsson 7.SEB
9.302. Karl Ragúel Pino Alexandersson 6. JÁ 9.503. Sindri Már Sigurðarson 6. HB 9.57
5.-7. bekkur stelpur1. Hulda Karen Ingvarsdóttir 6. HB 2. 10.10 2.Aldís María Jóhannsdóttir 6. HB 11.263. Andrea Ýr Reynisdóttir 5. JS 11.57
8.-10. bekkur strákar1. Jörundur Guðni Sigurbjörnsson 8. HK
8.482. Andri Björn Sveinsson 9. SA 8.493.
Þorvaldur Ágúst Jónsson 9. B 9.12
8.-10. bekkur stelpur1. Erla Sigríður Sigurðardóttir 10.
bekkur 10.052. Guðrún Brynjólfsdóttir 9. B.
10.303. Rakel Baldvinsdóttir 10. bekkur 10.36
Lesa meira
03.09.2012
Fimmtudaginn 6. september hefst átakið "Göngum í
skólann" sem stendur yfir til 3. okt. Þann tíma eru allir í skólanum, nemendur og starfsmenn hvattir til að koma gangandi eða hjólandi
í skólann (1. bekkur má ekki koma hjólandi).
Íþróttakennarar skólans munu fylgja þessu eftir
í íþróttatímum og gera smá könnun á stöðunni í upphafi og við lok tímabilsins.
Sjá meira um átakið hér.
Lesa meira
31.08.2012
Þá er komið að peysusölunni sem auglýst var
á viðtalsdögum.
Nemendur 10. bekkjar eru að safna fyrir skólaferðalagi vorið 2013 og
mun allur ágóði af peysusölunni renna í ferðasjóð þeirra.
Peysurnar verða seldar
þriðjudaginn 4. sept og miðvikudaginn 5. sept frá 16:00- 19:00 í stofu 31 og 32 á B -gangi (gengið inn um
íþróttahúsið). Peysurnar kosta kr. 5500 og einungis er hægt að borga með
peningum. Ef keyptar eru tvær eða fleiri peysur þá kostar peysan kr. 5000. Peysur þarf að greiða við pöntun.
Hér má sjá fleiri myndir af peysunum.
Kær kveðja
Nemendur og foreldrafulltrúar í 10. bekk Síðuskóla
Lesa meira
29.08.2012
Norræna skólahlaupið verður haldið fimmtudaginn 6. september og hefst klukkan 11.
Eftir hlaup er farið í mat / sturtu og verðlaunafhending verður í íþróttasalnum kl. 12:10. Þennan sama dag hefst átakið
"Göngum í skólann" sem stendur yfir til 3. okt. Þann tíma eru allir nemendur hvattir til að koma gangandi eða hjólandi í
skólann (1. bekkur má ekki koma hjólandi).
Íþróttakennarar munum fylgja þessu eftir í íþróttatímum og gera smá könnun á stöðunni í upphafi og
við lok tímabilsins.
Lesa meira
28.08.2012
Boðið verður upp á hafragraut í skólanum fyrir
nemendur, þeim að kostnaðarlausu. Fyrsti grautardagurinn verður mánudaginn 3. september og verður tilbúinn klukkan 7:45.
Það verður gaman að sjá hvernig til tekst og hvort framhald
verður á.
Lesa meira
28.08.2012
Miðvikudaginn 29. ágúst verða mikil
hátíðahöld á Akureyri og allir skólar fara þá um morguninn niður á torg. Skólabörnin færa Akureyrarbæ
mósaikverk sem þau gerðu í vor, skemmtiatriði verða á sviði og allir fá af afmælisköku Akureyrarbæjar og mjólk í
boði MS.
Mikilvægt er að búa börnin eftir veðri því
að allur skólinn mun ganga fylktu liði frá Síðuskóla og niður á torg. Skólarnir hafa valið sér liti og
Síðuskóli er GRÆNN. Vinsamlega klæðið börn ykkar í eitthvað grænt eða látið þau bera eitthvað grænt ef ekki
eru til föt í þeim lit. Húfur, treflar eða
eitthvað sem grænt er.
Lagt verður af stað frá skólanum upp úr klukkan
níu og þá verða nemendur búnir að borða nestið. Við hvetjum alla nemendur til að mæta með góða skapið og skemmta sér
með öllum hinum grunnskólunum.
Lesa meira
20.08.2012
Kæru foreldrar, forráðamenn og starfsmenn Síðuskóla.
Á viðtalsdögum ætlar 10. bekkur
að selja/taka pantanir á klósettpappír og eldhúsrúllupappír fyrir þá sem vilja. Einnig
ætla þeir að sýna/kynna peysur sem þeir munu selja 4. og 5. sept.
Nemendur eru að safna fyrir skólaferðalagi
vorið 2013 og mun það sem selst á þessum dögum rennur í sameiginlegan sjóð þeirra. Hægt verður að kaupa pappír
á staðnum eða fá sent heim seinnipart fimmtudags/föstudags.
Klósettpappír, 36 rúllur í
pakkningu, þriggja laga hvítur á kr. 4000. Eldhúspappír 15 rúllur í pakkningu, hvítar kr. 3200
Nemendur verða staðsettir í anddyri
íþróttahússins frá 8:00-16:00 á viðtalsdögunum, miðvikudag og fimmtudag.
Kær kveðja
Foreldrafulltrúar og nemendur í 10. bekk
Síðuskóla
Lesa meira