29.01.2013
100 miða leikurinn gengur vel!
Nemendur um allan skóla eru að vanda sig sérstaklega
í hegðun og framkomu þessa dagana. Allir vilja vera með í 100 miða leiknum og eiga möguleika á að vera í lokaröðinni sem fær
vinninginn - sem enginn veit hver er ennþá.
Eins og sjá má hefur miðunum fjölgað á
töflunni enda aðeins þrír dagar eftir!
Lesa meira
24.01.2013
Í vetur hefur verið boðið upp á
skákkennslu í Síðuskóla. Á vorönninni verður boðið upp á fasta tíma fyrir nemendur í 1.-4. bekk á fimmtudögum
kl. 14 í stofu 22 á meðan áhugi er fyrir hendi. Sigurður Arnarson sér um kennsluna.
26. janúar er skákdagurinn mikli um land allt en
þann dag árið 1935 fæddist Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari Íslendinga. Þar sem daginn ber nú upp á laugardag mun dagurinn
verða haldinn hátíðlegur þriðjudaginn 29. janúar í Síðuskóla. Þá mun Sigurður Arnarson tefla fjöltefli
við þá nemendur unglingadeildar sem þess óska. Fjölteflið fer fram í stofu 22 og hefst kl. 10.20.
Lesa meira
21.01.2013
Í dag þann 21. janúar hófst skólafærnileikurinn/100 miða leikurinn og stendur hann til 1. febrúar.
Tilgangur leiksins er að hvetja nemendur til að leggja sig fram um að sýna fyrirmyndarhegðun á almennum svæðum skólans. Leikurinn gengur út
á það að 10 nemendur á dag fá sérmerkta hrósmiða sem fimm starfsmenn gefa. Miðunum geta nemendur skipt út fyrir númer á
ákveðnu númeraspjaldi hjá ritara. Fyrirfram er búið að ákveða hvaða röð á spjaldinu vinnur en það veit enginn nema
skólastjórinn.
Þegar leiknum er lokið er kunngert á sal hvaða röð vinnur og hvað er í vinning.
Lesa meira
18.01.2013
Tvær stelpur úr 6. bekk Hrafntinna Nótt Laufdal og Karen Hrund
Kristjánsdóttur notuðu vetrarfríið sitt úr skólanum fyrr í vetur til að útbúa bókamerki sem þær gengu með
í hús og seldu. Þær færðu síðan Sjúkrahúsinu á
Akureyri andvirði söfnunarinnar, 13.174 krónur.
Vinkonurnar afhentu Bjarna Jónassyni forstjóra
sjúkrahússins gjöfina, sem fer í Gjafasjóð sjúkrahússins og verður hún merkt barnadeildinni.
Lesa meira
10.01.2013
Í tilefni af degi íslenskrar tungu 16. nóvember efndi
Námsgagnastofnun til vísnasamkeppni meðal grunnskólanemenda, Vísubotn 2012. Nemandi
í 4. bekk Síðuskóla, Tinna Huld
Sigurðardóttir, hlaut fyrstu verðlaun á yngsta stigi.
Í verðlaun fékk hún bók og
verðlaunaskjal eins og sést á myndinni. Við óskum Tinnu Huld hjartanlega til hamingju með þennan frábæra árangur.
Vísan er svona:
Lítill hundur leikur sér
lætur boltann skoppa.
Flaðrar upp og fagnar mér
fögur er hans snoppa.
Lesa meira
20.12.2012
Starfsfólk Síðuskóla óskar nemendum og foreldrum
gleðilegra jóla og farsældar á nýju
ári
og þakkar samstarfið á árinu sem er að
líða.
Skólinn hefst aftur eftir jólaleyfi þriðjudaginn
5. janúar klukkan 8:00. Mánudagurinn 4. janúar er skipulagsdagur
og Frístund opin frá 8-13 en lokuð eftir hádegi.
Lesa meira
18.12.2012
Í vetur hafa nemendur 7. bekkjar unnið að verkefni í dönsku og textilmennt um Flumbru, en islandsk troldemor sem er dönsk þýðing á
Ástarsaga úr fjöllunum.
Nemendur hafa fræðst um Flumbru og tröllastrákana hennar sem á dönsku heita Småskøn, Storskøn, Kæmpeskøn, Troldskøn,
Underskøn, Overskøn, Næppeskøn og Skæppeskøn. Þetta eru yndislegir strákar sem breyttust eins og Flumbra sjálf í stein. Nemendur
bjuggu til brúður sem þeir notuðu til að tala og æfa sig í dönsku.
Við buðum 2. og 6. bekk á sýningar hjá bekkjunum sem tókust mjög vel. Nemendurnir sem léku brúðurnar sögðu hvað
brúðan heitir, í hvaða lit hún er, hvort hún er með hár og þá litinn á því. Einnig sögðu börnin
frá þvi ef brúðan var með t.d. gleraugu, stórt nef, sjal o.fl. Þau fræddu áhorfendur um af hverju tröllastrákarnir urðu að
steinum. Eftir börnin liggja skemmtilegar teikningar úr sögunni. Ekki er hægt að segja annað en að vel hafi tekist til með þetta verkefni.
Hér má sjá nokkrar myndir frá sýningunum.
Lesa meira
17.12.2012
í vetur fórum við á stað með hringekju í
6. og 8. bekk.
Hringekjan er hugsuð þannig að nemendur velja sér meira
inní greinarnar þ.e.a. s. smíðar, textilmennt og myndmennt og eru ákveðnar vikur í hverri grein.
8. bekkur hefur verið að smíða fígúrur og er
það verkefni búið eftir það fóru þau í brúðuleikhúsgerð sem er samþætt með dönskunni. Þemað er
ævintýrið Eldfærin.
6. bekkur hefur verið í greinunum til skiptis. Síðustu vikur
hafa nemendur verið að gera gipsgrímur, smíðavinnu og vinna með leir
Hér má sjá myndir
frá vinnunni þeirra.
Gunnella, Guðfinna og Gulli
Lesa meira
14.12.2012
Í dag var jólaföndur á yngsta stigi.
Margir foreldrar litu við og boðið var upp á vöfflukaffi. Mörg listaverk litu dagsins ljós eins og jólamyndir, jólatré, snjókorn
og margt fleira tengt jólahátíðinni sem nálgast óðfluga.
Myndir má sjá hér.
Lesa meira
13.12.2012
Nemendur úr 3. og 4. bekk hafa undanfarnar 4 vikur farið í Skautahöllina og fengið skautakennslu með frábærum árangri. Nemendurnir lögðu
sig mikið fram og lærðu heilmikið. Allir stóðu sig virkilega vel og höfðu mjög gaman af þessari tilbreytingu.
Rainer Jessen íþróttakennari, sem kenndi þeim á skautum, tók nokkrar myndir sem hægt er að skoða hér.
Lesa meira