Jól í skókassa

Gunnar, Nói og Wut með skókassann sinn
Gunnar, Nói og Wut með skókassann sinn
Sjöundi bekkur tók þátt í verkefninu ,,Jól í skókassa“ ásamt umsjónarkennurum sínum. Pakkarnir sem söfnuðust verða sendir til Úkraínu til barna sem búa við slæm skilyrði. Nemendur söfnuðu í skókassa, gjöfum handa stelpu eða strák á ákveðnum aldri. Beðið er um ákveðna hluti í pakka eins og tannbursta og tannkrem. Svo mátti setja skóladót, leikföng, húfu, vettlinga, trefil, sápu, þvottapoka, eða hvað annað sem krökkunum datt í hug. Við óskuðum eftir nammi hjá  Nóa/Síríus þar sem óskað er eftir slíku í kassana. Sölustjóri þeirra Norðanlands tók vel í beiðnina og tók þátt í verkefninu með okkur. Við þökkum þeim kærlega fyrir það. Textilkennarinn tók líka þátt í verkefninu og leyfði nemendum að sauma t.d. hárbönd, húfur, bolta eða annað sem gæti verið gaman að gefa. Á mánudag gengu allir nemendur 7. bekkjar ásamt kennurum sínum í Sunnuhlíð og skiluðu af sér kössunum.  Hér má sjá myndir frá þessu verkefni nemenda. Hér er krækja á verkefnið sem hægt er að skoða.  

Sjöundi bekkur tók þátt í verkefninu ,,Jól í skókassa“ ásamt umsjónarkennurum sínum. Pakkarnir sem söfnuðust verða sendir til Úkraínu til barna sem búa við slæm skilyrði.

Nemendur söfnuðu í skókassa, gjöfum handa stelpu eða strák á ákveðnum aldri. Beðið er um ákveðna hluti í pakka eins og tannbursta og tannkrem. Svo mátti setja skóladót, leikföng, húfu, vettlinga, trefil, sápu, þvottapoka, eða hvað annað sem krökkunum datt í hug.

Við óskuðum eftir nammi hjá  Nóa/Síríus þar sem óskað er eftir slíku í kassana. Sölustjóri þeirra Norðanlands tók vel í beiðnina og tók þátt í verkefninu með okkur. Við þökkum þeim kærlega fyrir það. Textilkennarinn tók líka þátt í verkefninu og leyfði nemendum að sauma t.d. hárbönd, húfur, bolta eða annað sem gæti verið gaman að gefa. Á mánudag gengu allir nemendur 7. bekkjar ásamt kennurum sínum í Sunnuhlíð og skiluðu af sér kössunum. 

Hér má sjá myndir frá þessu verkefni nemenda.

Hér er krækja á verkefnið sem hægt er að skoða.