07.03.2013
Stóra upplestrarkeppnin fór fram á miðvikuda í Háskólanum á Akureyri og stóðu okkar nemendur, Bryndís Huld og Rakel Anna sig af
mikilli prýði.
Hér má sjá nokkrar myndir frá keppninni.
Lesa meira
04.03.2013
Dagana 5. og 6. mars fara fram foreldraviðtöl í Síðuskóla.
Þriðjudaginn 5. mars eru viðtöl í 1. - 10. bekkjum og miðvikudaginn 6. mars eru viðtöl í 1. - 7. bekkjum en 8. - 10. bekkur er í kennslu
samkvæmt stundaskrá.
Lesa meira
03.03.2013
Undanúrslit Síðuskóla fyrir Stóru upplestrarkeppnina fóru
fram miðvikudaginn 27. febrúar.
Þar kepptu tólf nemendur úr
báðum 7. bekkjunum og stóðu sig með prýði. Þeir sem komust áfram og keppa til úrslita eru: Rakel Anna Boulter, Bryndís Huld Þórarinsdóttir og til vara Snævar Atli Halldórsson.
Lokakeppnin fer fram í Hólum í
Menntaskólanum á Akureyri og hefst dagskráin kl. 17:00.
Hér má
sjá fleiri myndir frá keppninni.
Lesa meira
01.03.2013
Vegna óstöðugleika í Mentor í gær og í dag hefur ekki gengið sem skyldi að setja inn leiðsagnarmatið. Nemendur og kennarar hafa lent
í vandræðum við að fylla inn og jafnvel ekki náðst að vista það sem næst þó að skrá.
Við hvetjum fólk til að gefast ekki upp við að skrá inn en það mun ekki verða kveikt á perunni fyrr en um hádegi á morgun,
laugardag.
Lesa meira
27.02.2013
Föstudaginn 22. febrúar fengu krakkarnir í 3. bekk góða
heimsókn en þá kom Martha slökkviliðsmaður til að afhenda verðlaun í eldvarnargetraun sem 3. bekkur tekur þátt í
árlega.
Telma Þorvaldsdóttir var svo heppin að vera annar af tveimur
krökkum á Akureyri sem voru dregin út. Hún fékk reykskynjara og I-pod sem örugglega eiga eftir að nýtast hennni vel.
Til hamingju Telma!
Lesa meira
27.02.2013
Tilkynnt voru úrslit í 100 miða leiknum og þeir heppnu voru:
Gabríel Ómar Stefánsson 9. BSteinunn María
Auðunsdóttir 8. HFElísa Embla Viðarsdóttir 7. SEBMargrét Anna Kristófersdóttir 6. HBKristján Loftur Jónsson 8.
HFHerdís Ruth Brynjarsdóttir 5. KHKatrín Harpa
Sævarsdóttir 2. SESKjartan Arnar Guðmundsson 6. HBLovísa Brynjarsdóttir 9. SAAldís María María
Jóhannsdóttir 6. HBJóhannes Fei Birgisson 1. Bekkur
Hér má sjá myndir frá tilkynningunni. Hópurinn fór
síðan og fagnaði viðurkenningunni á pizzahlaðborði Greifans.
Lesa meira
19.02.2013
Nemendur 5. bekkjar (árgangur 2001) gerðu vegleg
teppi á skólaárinu 2011-2012 í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrarbæjar. Þriðjudaginn 12. febrúar fór fram formleg afhending
á teppunum til Minjasafns Akureyrar þar sem allur skólinn mætti á sal og fylgdist með. Hulda Karen Ingvarsdóttir flutti stutt ávarp og sagði
frá sögu teppanna og afhenti þau með aðstoð fjögurra bekkjarfélaga.
Teppin voru unnin í textilmennt, nemendur hönnuðu, klipptu og saumuðu
í saumavélum og eiga teppin að lýsa fjölbreytileika mannlífsins á Akureyri og þegar
við komum saman myndum við eina heild. Hér má sjá myndir frá afhendingunni
og einnig þegar nemendur skráðu allir nöfnin sín í sérstakt skjal sem verður varðveitt á Minjasafninu með teppunum.
Lesa meira
13.02.2013
Dagana 13.-15. febrúar er vetrarfrí í skólanum. Frístund er opin þessa daga. Skóli hefst aftur mánudaginn 18. febrúar samkvæmt
stundaskrá.
Megið þið eiga góða daga í fríinu
Lesa meira
08.02.2013
Árshátíðin 2013 í Síðuskóla gekk í alla staði mjög vel. Nemendur á öllum aldri sýndu frábæra takta
á skemmtilegum sýningum, 10. bekkingar stóðu fyrir ótrúlega flottu hlaðborði og náðu að safna vel í ferðasjóðinn.
Hér má sjá myndir frá sýningunum og starfinu í skólanum þessa daga.
Lesa meira
07.02.2013
Árshátíð byrjar í Síðuskóla í dag, sýningar og dansleikir í dag og á
morgun.
Nemendur eru búnir að æfa allskonar leikrit og söngleiki, kennarar stoltir leikstjórar, skreytingar eru komnar upp og skipulagsnefndin getur verið stolt af
undibúningnum.
Hér má sjá dagskrána þar sem fram kemur hver á að sýna, hver á að mæta, hvar og
hvenær og til að horfa á hverja!
Lesa meira