100 miðaleikurinn

Hópurinn í heimsókn á Kaffi Q
Hópurinn í heimsókn á Kaffi Q
100 miðaleikurinn er árlegur viðburður. Leikurinn gengur út á það að í 10 daga eru gefnir 10 hrósmiðar til nemenda sem sýna góða hegðun og eru til fyrirmyndar. Til að fá góða dreifingu á hrósmiðana gefa 5 starfsmenn 2 miða hvern dag, aldrei sömu starfsmennirnir. Miðarnir eru númeraðir og eru þeir settir á spjald með 10 x10 = 100 reitum. Skólastjóri ákveður fyrir keppnina vinningsröð sem enginn nema hann veit um. Verðlaun eru veitt þeim nemendum  sem lenda í vinningsröðinni og í ár voru verðlaunin að fara fram í Kaffi Q og borða þar og skoða fjósið. Mikil ánægja var hjá verðlaunahöfum og eru hér myndir af þeim  frá Kaffi Q sem Sigurgeir Sigurgeirsson tók.

100 miðaleikurinn er árlegur viðburður.

Leikurinn gengur út á það að í 10 daga eru gefnir 10 hrósmiðar til nemenda sem sýna góða hegðun og eru til fyrirmyndar. Til að fá góða dreifingu á hrósmiðana gefa 5 starfsmenn 2 miða hvern dag, aldrei sömu starfsmennirnir. Miðarnir eru númeraðir og eru þeir settir á spjald með 10 x10 = 100 reitum.


Skólastjóri ákveður fyrir keppnina vinningsröð sem enginn nema hann veit um. Verðlaun eru veitt þeim nemendum  sem lenda í vinningsröðinni og í ár voru verðlaunin að fara fram í Kaffi Q og borða þar og skoða fjósið. Mikil ánægja var hjá verðlaunahöfum og eru hér myndir af þeim  frá Kaffi Q sem Sigurgeir Sigurgeirsson tók.