Hrekkjavökuball verður haldið í Síðuskóla fyrir nemendur í 1. -7. bekk fimmtudaginn 28. október.
1.-2. bekkur kl. 16:15-17:15 Aðgangseyrir 500 kr. lítill popppoki og svali innifalinn.
3.-4. bekkur 17:30-18:30 Aðgangseyrir 500 kr. Sjoppa opin.
5.-7. bekkur 18:40-20:00 Aðgangseyrir 500 kr. Sjoppa opin.
Verðlaun fyrir besta búninginn!
Ágóðinn rennur í ferðasjóð 10. bekkjar.
10. bekkur
Í morgun komu allir nemendur saman á sal skólans. Umhverfisnefnd og nemendaráð skólans kynntu sig, nokkur lög voru sungin og einnig voru veittar viðurkenningar fyrir keppnina Náttúrufræðingur Síðuskóla. Viðurkenningu fyrir góðan árangur fengu Una Lind í 4. bekk, Arnór Elí i 5. bekk, Gunnar Brimir í 8. bekk og Sigrún Freygerður í 10. bekk. Náttúrufræðingur Síðuskóla árið 2021 er Máni Þorsteinsson í 9. bekk. Við óskum þeim öllum innilega til hamingju með árangurinn. Myndin sem fylgir fréttinni er af Mána, náttúrufræðingi skólans.
Í umhverfisvikunni var 9. bekkur með hönnunardag. Þá var unnið með endurnýtingu og endurhönnun.
Afraksturinn var skemmtilegur og hér má sjá sýnishorn af vinnu nemenda.
Í umhverfisvikunni unnu 3. og 4. bekkur saman verkefni tengd loftslagsmálum, fengu fræðslu um loftslagsbreytingar, ástæður og afleiðingar þeirra. Meðal annarra verkefna þessa viku, var unnið með list- og verkgreinakennurum einn dag þar sem útbúin var jörð, lofthjúpur, sól og það sem er gott og slæmt fyrir jörðina. Afraksturinn sem var stórkostlegur fór upp á vegg á C-gangi.
Á degi íslenskrar náttúru fór 4.bekkur upp í Naustaborgir. Nemendur lögðust þar niður í náttúruna og ímynduðu sér að þeir væru fyrstu manneskjurnar á jörðinni og réðu hvernig náttúran í kringum þá liti út. Þeir týndu ýmsar plöntur og annað sem fannst í Naustaborgum og eftir matinn teiknuðu þeir mynd af sér í sínu uppáhaldsumhverfi.
Á degi læsis var 3. og 4. bekk skipt niður í nokkra bókaklúbba. Hver klúbbur las saman eina bók, sögðu frá innihaldi hennar og teiknuðu mynd sem lýsti vel bókinni.
Hér má sjá myndir frá vinnunni í 3. og 4. bekk ásamt myndum frá 1. og 2. bekk.
Í tilefni af Degi íslenskrar náttúru þann 16. september fóru nemendur skólans í vettvangsferðir og fræddust um náttúruna.
Nemendur í 2. bekk fóru með strætó í bæinn og löbbuðu í Lystigarðinn þar sem þau fóru í ratleik. Krakkarnir í 3. bekk fóru í Kjarnaskóg í umhverfisbingó ásamt því að safna birkifræjum. 5. bekkur heimsótti gömlu gróðrastöðina og 9. bekkur heimsótti Gámaþjónustana og labbaði Lögmannshlíðarhringinn.
Hér er að finna skemmtilegar myndir frá ferðum þessara hópa.
Á fimmtudaginn fóru nemendur og starfsfólk skólans í gönguferð. Farið var með rútum upp á Súlubílastæði og þaðan var genginn hringur um Glerárdal, svonefndur stífluhringur. Nemendur í 1. -5. bekk voru sóttir að skotsvæði en eldri nemendur gengu alla leið í Síðuskóla.
Þessi dagur var upphaf umhverfisviku þar sem unnið er með loftslagsmál og einnig upphaf átaksins Göngum í skólann. Gönguferðin gekk vel og lék veðrið við okkur. Frábær dagur í alla staði þar sem nemendur sýndu dugnað og seiglu.
Í morgun fengum við góða gesti en Lalli töframaður kom og skemmti nemendum í 5.-7. bekk á sal. Heimsóknin var hluti af verkefninu List fyrir alla sem er m.a. ætlað að miðla listviðburðum til barna og ungmenna um land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.
Ný umhverfisnefnd hefur tekið til starfa í skólanum. Fyrsti fundur var haldinn í dag og gekk hann mjög vel. Farið var yfir áherslur og helstu verkefni vetrarins.
Eftirfarandi eiga sæti í umhverfisnefndinni skólaárið 2021-2022:
Á fimmtudaginn verður farið í gönguferð þar sem nemendur og starfsfólk ganga efri Glerárdalshring sem oft er nefndur stífluhringur. Farið verður með rútum upp á Súlubílastæði. Nemendur í 1.-5. bekk verða sóttir en eldri nemendur labba til baka í Síðuskóla. Gönguferðin er upphaf þemaviku þar sem unnið verður með loftlagsmál sem er þemað okkar í Grænfánaverkefninu og einnig upphaf átaksins Göngum í skólann.
Kennarar í skólanum hafa verið duglegir að nýta sér góða veðrið síðustu daga. Til að mynda fóru list- og verkgreinakennarar með nemendur á miðstigi út í garð og kenndu þar í veðurblíðunni í vikunni. Nemendur lærðu að tálga, bökuðu lummur, myndskreyttu steina, máluðu útitafl og smíðuðu taflmenn.