Kynningarmyndbönd um grunnskólakerfið á Akureyri hafa verð gerð á 4 erlendum tungumálum auk íslensku, það er ensku, pólsku, spænsku og rússnesku Jafnframt er hægt að finna þau hér á síðunni undir grunnskólar – móttaka nemenda. Vonum við að myndböndin komi að góðum notum við að kynna grunnskólakerfið okkar og að bjóða erlenda nemendur og foreldra þeirra velkomin til Akureyrar. Stefnt er að því að bæta fleiri þýðingum inn í sjóðinn okkar á næstu árum.
(Tekið af www.erlendir.akmennt.is)
Litlu jólin verða þann 21. desember. Það koma allir í skólann kl. 9.00 og fara heim um kl. 11.00. Fyrst verður hópnum skipt í salinn þar sem nemendur í leiklistarvali á miðstigi sýna jólaleikrit og heimastofur en eftir það hittast svo allir í íþróttasalnum og ganga saman í kringum jólatréð.
Frístund er opin þennan dag frá kl. 7.45-9.00 og 11.00-16.15 fyrir þá sem þar eru skráðir.
Í gær vorum við svo heppin að fá tvo rithöfunda í heimsókn til þeirra, það voru þeir Ævar Þór Benediktsson og Bjarni Fritzson. Ævar las fyrir 7.-10 bekk úr nýjustu bók sinn, Drengurinn með ljáinn. Bjarni Fritz las úr báðum nýju bókunum sínum, Orri óstöðvandi - Draumur Möggu Messi og Salka - Tímaflakkið. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna.
Í dag var jólaföndurdagur hjá okkur í skólanum. Búnir voru til alls konar fallegir hlutir og skrifuð jólakort. Nemendur fengu svo heitt kakó í frímínútunum. Hér má sjá skemmtilegar myndir frá deginum.
4. bekkur var með rafmagnslausan dag í dag og fóru nemendur m.a. út með vasaljós í göngutúr í morgun.
Litla upplestrarkeppnin í 4. bekk og Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk voru settar á sal skólans í dag. Ákveðið var að fresta setningunni sem venjulega ber upp á 16. nóvember á Degi íslenskrar tungu. Ástæðan er sú að nemendur og starfsfólk var upptekið í vinnu við árshátíð í síðustu viku.
Keppnin snýst um að æfa upplestur, framburð og framkomu.
Bekkirnir komu á sal og Ólöf Inga skólastjóri ávarpaði hópinn og þau Alrún Eva og Marinó, fulltrúar okkar á síðustu lokahátíð, lásu upp.
Í morgun fengum við góða gesti þegar leikhópurinn Hnoðri í norðri kom með sýninguna Ævintýri á aðventunni sem er hluti af List fyrir alla verkefninu. 1. – 4. komu á sal og horfðu og skemmtu sér vel. Hér má sjá nokkrar myndir af sýningunni.
Hér er að finna myndir frá árshátíðardögum, fleiri myndir eru væntanlegar.
Foreldrasýning kl. 13 - fimmtudagur
Foreldrasýning kl. 15 - fimmtudagur
Nemendasýning miðstigs - fimmtudagur
Nemendasýning yngsta stigs - föstudagur
Mánudaginn 21. nóvember er skipulagsdagur í Síðuskóla. Þá er engin kennsla en Frístund er opin allan daginn.
Monday 21 th of November the students will not come to school since the staff works on planning next weeks.
Frístund is open for those children who are registered. If you are not sure about registering your child, you should make contact to Silfá.