Loksins útivistardagur í dag
Í dag ætlum við að fara í fjallið. Allir mæta í skólann og fara þaðan með rútum í Hlíðarfjall þar sem við ætlum að eiga skemmtilegan dag saman. Munið eftir hlýjum fötum og góðu nesti.
Í dag ætlum við að fara í fjallið. Allir mæta í skólann og fara þaðan með rútum í Hlíðarfjall þar sem við ætlum að eiga skemmtilegan dag saman. Munið eftir hlýjum fötum og góðu nesti.
Sæl verið þið
Þið eruð nú væntanlega að verða öllu vön hvað varðar útivistardag í Hlíðarfjalli. Nú er spáin fyrir morgundaginn ekki góð og í samráði við svæðisstjóra var tekin sú ákvörðun að við munum ekki fara á morgun. Við erum að skoða föstudaginn og látum við um leið og sú ákvörðun liggur fyrir.
Kveðja,
stjórnendur
Í vetur hafa nemendur í 5.-7. bekk verið með tvöfaldan valtíma einu sinni í viku. Hver lota hefur staðið í 3-4 vikur og hefur verið leitast við að bjóða alltaf upp á eitthvað nýtt. Í fyrstu lotu eftir áramót var boðið upp á að taka þátt í að gera skólablað undir handleiðslu Jóhönnu Ásmundsdóttur. Sautján nemendur úr 5. og 6. bekk völdu að vera með í því og nú er komið út fyrsta tölublað í netútgáfu. Vonandi verður þetta fastur liður hjá okkur að gefa út skólablað.
Blaðið er virkilega skemmtilegt og var gaman að fylgjast með hve nemendur voru áhugasamir.
Njótið lestursins!
Nú þurfum við að fresta útivistardeginum enn eina ferðina. Kannski tekst okkur þetta á endanum, hver veit.
Við byrjuðum daginn á því að safnast saman á söngsal þar sem nemendur tóku vel undir við undirleik Hemma Ara. Í hádeginu var svo 20.000 miða hátíð, hún er haldin þegar nemendur hafa safnað 20.000 hrósmiðum. fjölda hrósmiða og þá er haldin hátíð þar sem allir nemendur skólans njóta góðs árangurs. Að þessu sinni var boðið upp á grillaða hamborgara, franskar og ís í eftirrétt. Þetta var góð tilbreyting og virkilega skemmtilegt að geta komið öll saman á sal aftur.
Undankeppni í Upphátt, áður stóru upplestrarkeppninni, var haldin á sal skólans í morgun. Þar lásu 9 nemendur úr 7. bekk sem komust áfram eftir fyrstu umferð sem haldin var í bekknum sl. þriðjudag. Allir stóðu sig með prýði og voru sér og skólanum til sóma. Velja þurfti tvo nemendur og einn til vara til að taka þátt í úrslitakeppninni sem haldin verður miðvikudaginn 23. mars í Kvosinni í Menntaskólanum á Akureyri. Þar mætast fulltrúar allra grunnskólanna á Akureyri. Fulltrúar okkar í ár verða þau Alrún Eva Tulinius og Arnþór Einar Guðmundsson og Marinó Steinn Þorsteinsson til vara. Við óskum þeim til hamingju með árangurinn en hér má sjá myndir frá keppninni í morgun.
Ákveðið hefur verið að fresta útvistardegi að nýju vegna vinds í Hlíðarfjalli.
Í ljósi slæmrar veðurspár hefur verð ákveðið að fresta útivistardegi á morgun. Við höfum verið í sambandi við svæðisstjóra Hlíðarfjalls og ef spáin gengur eftir þá reiknar hann ekki með að hægt verði að opna lyftur á morgun. Það verður ekki heldur farið á skauta.
Við ætlum að halda því opnu að fara á þriðjudaginn, veðurútlitið er betra þá. Það er því hefðbundinn skóladagur á morgun. Við látum vita á morgun hvernig málin þróast.
Kveðja,
starfsfólk Síðuskóla
Búningaball í Síðuskóla þriðjudaginn 1. mars!
Böll verða þriðjudaginn 1. mars fyrir nemendur í 1.-7. bekk. Aðgangseyrir er 500 krónur og er sjoppa opin.
1.-2. bekkur klukkan 16-17:15
3.-4. bekkur klukkan 17:30-18:45
5.-7. bekkur klukkan 19-20:30
Ágóðinn rennur í ferðasjóð 10. bekkjar Síðuskóla
Með bestu kveðjum og þökk fyrir stuðninginn,
10 bekkingar
Í gær fékk 3. bekkur skólans góða heimsókn er fulltrúar frá slökkviliði Akureyrar komu og veittu nemanda í bekknum verðlaun vegna 112 dagsins. 112 dagurinn er haldinn 11. febrúar á hverju ári þar sem lögð er áhersla á kenna neyðarnúmerið og minna á mikilvægi kunnáttu í skyndihjálp. Fulltrúar frá slökkviliðinu komu í heimsókn fyrr í mánuðinum og lögðu fyrir getraun í 3. bekk eins og gert er í þessum árgangi á öllu landinu og síðan er dregið úr réttum svörum. Nemandinn sem svaraði öllu rétt og dreginn var út er Tinna Ósk Pálsdóttir og óskum við henni til hamingju! Á myndinn með fréttinni má sjá þegar fulltrúar frá slökkviliðinu komu og afhentu Tinnu viðurkenningarskjal en hún fékk að auki inneign á Storytel hljóðbókasafnið.