14.02.2014
Þjálfun í
samskiptum, tilfinningastjórn og athygli barna með ADHD
Fjölskyldudeild Akureyrarbæjar
býður börnum með ADHD að taka þátt í námskeiði til að efla færni á ýmsum sviðum. Námskeiðið er fyrir
börn fædd árið2004 og 2005 og eru 6 börn í hverjum hóp. Áhersla er lögð á að auka færni barna í
félagslegum samskiptum, skapstillingu, sjálfsstjórn og að bæta athyglisgetu þeirra. Hópurinn hittist tvisvar í viku 2 tíma í senn,
í 5 vikur (10 skipti alls) með tveimur þjálfurum. Eftirfarandi þættir eru teknir fyrir með börnunum í litlum hópum:
Tilfinninga- og reiðistjórnun: Börnunum eru kenndar ýmsar aðferðir við að stilla tilfinningar sínar þegar
það er ekki viðeigandi að sýna þær, m.a. reiðistjórnun í samskiptum. Þar að auki læra þau um tilfinningar, svipbrigði
og áhrif aðstæðna á líðan þeirra og annarra. Sú þekking mun nýtast þeim í samskiptum við aðra.
Félagsfærni:
Farið er yfir atriði eins og hvernig og hvenær er viðeigandi að hefja samskipti við
aðra, samskiptareglur og aukna færni í að setja sig í spor annarra.
Sjálfsstjórn:
Kenndar eru aðferðir sem nýtast við að hamla hvatvísi og auka stjórn á
eigin hegðun.
Þrautalausnir: Farið er yfir aðferðir við að leysa ýmis vandamál sem upp koma á skynsamlegan
hátt. Í því felst að finna valmöguleika í stöðunni, hugsa um mögulega útkomu hvers valmöguleika og velja bestu lausnina til að
ná ákveðnu markmiði.
Athyglisþjálfun:
Í hverjum tíma eyðir hvert barn u.þ.b. 20 mínútum í tölvuforriti sem er ætlað að auka athyglisgetu, vinnsluminni og
vinnsluhraða.
Þjálfarar á námskeiðinu verða Helga
Vilhjálmsdóttir og Guðný Dóra Einarsdóttir sálfræðingar við Sérfræðiþjónustu skóla á
Fjölskyldudeild.
Námskeiðið verður 10. mars–9. apríl, 2014 á mánudögum og
miðvikudögum kl. 16:15-18:15, 10 skipti alls.
Til að sækja um Snillinganámskeiðið vinsamlegast sendið umsókn
á þar til gerðu umsóknarblaði og sendið á Fjölskyldudeild fyrir 24. febrúar.
Umsóknarblað geta forráðamenn fengið hjá skóla eða á Fjölskyldudeild. Nánari upplýsingar hjá Helgu
Vilhjálmsdóttur og Guðnýju Dóru Einarsdóttur í síma 460-1420 eða með tölvupósti á helgav@akureyri.is eða
gudnydora@akureyri.is
Þátttökugjald: kr. 7.000 fyrir námskeiðið
Lesa meira
05.02.2014
Skólaval – innritun nemenda í 1. bekk grunnskóla
Í febrúarmánuði fer fram innritun nemenda sem hefja nám í 1. bekk í
grunnskólum Akureyrar haustið 2014.
Á heimasíðu skóladeildar, http://www.akureyri.is/skoladeild, undir hnappnum Skólaval - grunnskólar, má finna upplýsingar um
grunnskólana á Akureyri, sértæka þjónustu, viðmiðunarreglur um inntöku, rafræn umsóknareyðublöð og fleira. Hver
skóli er með kynningarfund, opið hús,
fyrir foreldra barna sem hefja nám í grunnskóla haustið 2014 og eru foreldrar hvattir til að notfæra sér það tækifæri.
Kynning/opið hús, verður í
grunnskólum Akureyrar í febrúar frá kl. 9:00-11.00:
Glerárskóli og Lundarskóli 11.
febrúar
Giljaskóli og Naustaskóli 12. febrúar
Oddeyrarskóli og Síðuskóli 13. febrúar
Brekkuskóli
14. febrúar
Með kveðju,Ólína Rebekka
Stefánsdóttir, ritariSkóladeild AkureyrarbæjarSími 460-1455Netfang: olina@akureyri.is
Í hverju barni býr
fjárssjóður
Lesa meira
05.02.2014
Gjafir frá foreldrafélaginu
Á dögunum kom Heimir formaður FOKS og færði skólanum fjórar
spjaldtölvur til notkunar í sérkennslu.
Stjórn FOKS hefur hitt forráðamenn ýmissa fyrirtækja á Akureyri og óskað
eftir styrkjum til verkefnisins. Vel var tekið undir þessa beiðni hjá mörgum fyrirtækjum og afraksturinn varð þessi. Spjaldtölvurnar munu nýtast
vel í sérkennslunni því mikið úrval kennsluforrita er til. Myndin er tekin þegar Heimir afhenti Huldu í sérdeildinni
spjaldtölvurnar.
Lesa meira
01.02.2014
Út er komið 6. fréttabréf skólaársins, fréttabréf
febrúar mánaðar.
Lesa meira
29.01.2014
Í dag, miðvikudag 29.jan., var haldin rýmingaræfing
í vistuninni í Síðuskóla. Þetta er í fyrsta skipti sem eingöngu er höfð æfing í vistun.
Æfingin gekk í alla staði mjög vel nemendur voru snöggir
að fara í skó og koma sér í röð fyrir utan skólann. Það tók þau
1:22 frá því að bjallan byrjaði að hringja og þar til sá síðasti var kominn í röð.
Glæsilegt hjá krökkunum og starfsfólki vistuninnar.
Lesa meira
27.01.2014
Skilafrestur á tillögum rennur út á föstudaginn
31.jan.
Síðuskóli stendur fyrir teiknisamkeppni um hönnun á
lukkudýri eða persónu. Listaverkið mun verða ákveðið kennileiti fyrir skólann.
Markmið samkeppninnar er að:
Hanna lukkudýr/tákngerving/persónu sem verður merki eða tákn
í umhverfismálum og öðru í skólanum. Myndin verður sett á merkingar, leiðbeiningar og auglýsingar og búningur jafnvel saumaður
þannig að lukkudýrið geti verið með þegar stærri uppákomur eru s.s. íþróttakeppni eða
vorhátíð.
Allir í skólasamfélaginu geta skilað inn hugmynd (nemendur,
starfsfólk og foreldrar). Umhverfisnefnd skólans velur úr innsendum tillögum og ef berst fleiri en ein
góð tillaga þá verður kosið á milli þeirra. Skila skal hugmyndum á A5 blaði
(teikningu, tölvumynd, klippimynd eða annað) í umslag á skrifstofu skólans. Skrá númer myndar aftan á blaðið og nafn höfundar
á skráningarblað hjá ritara.
Lokaskiladagur er 31. janúar 2014.Umhverfisnefnd
Lesa meira
22.01.2014
Það er mikið líf og fjör hjá 7. bekk á Reykjum. Það hafa allir nóg að gera, verkefnin eru fjölbreytt og greinilegt að allir eru
að njóta sín vel. Veðrið leikur við okkur, kyrrt og milt en hálkan er mikil og við staulumst á milli húsa.
Við höfum tekið aðeins af myndum og má finna þær hér.
Lesa meira
10.01.2014
Í næstu viku verða ,,Öðruvísidagar" í
Síðuskóla.
Nemendaráð er búið að skipuleggja dagana og eru þeir sem hér
segir:
Mánudagur: Hatta/húfu og
gleraugnadagurÞriðjudagur: 80 áratugurinn (eighties)Miðvikudagur: Dýradagur t.d. bara mála sig eða koma í búningi.Fimmtudagur: Sumardagur - sumarfötFöstudagur: Náttfatadagur eða bara notaleg
föt.
Vonandi finna allir eitthvað við sitt hæfi, allt er þetta til
gamans gert.
Lesa meira
06.01.2014
Fréttabréf Síðuskóla janúar 2014 má finna hér.
Lesa meira
18.12.2013
Litlu jólin verða föstudaginn 20.
desember frá 9:00-11:00
Það mæta allir á sama tíma. Við hlustum á helgileik í salnum í umsjón 6. bekkjar. Nemendur fara í stofur með kennurunum
sínum og síðan hittast allir í íþróttahúsinu og dansa saman í kringum jólatreð.
Frístund er opin þennan dag til kl. 13:00 fyrir alla nemendur í 1.-4. bekk.
Frá 13:00-16:15 er opið í frístund fyrir þá sem þar eru skráðir. Greiða þarf sérstaklega fyrir þennan tíma.
Skólinn hefst aftur eftir jólaleyfi þriðjudaginn 7. janúar samkvæmt stundatöflu.
3. janúar er skipulagsdagur og frístund lokuð allan daginn.
6. janúar er skipulagsdagur og er frístund opin til kl. 13:00 fyrir alla nemendur í 1.-4.bekk.
Frá 13:oo-16:15 er opið í frístund fyrir þá sem þar eru skráðir. Greiða þarf sérstaklega fyrir þennan tíma.
Starfsfólk Síðuskóla óskar nemendum og foreldrum
gleðilegra jóla og farsældar á nýju
ári
og þakkar samstarfið á árinu sem er að líða .
Lesa meira