Fréttir

Skólabyrjun

Ágætu foreldrar / forráðamenn nemenda í Síðuskóla Senn líður að skólabyrjun en skólinn verður settur þann 22. ágúst. Undanfarin ár höfum við hafið skólastarfið á viðtölum við alla nemendur og foreldra en nú verður breyting á því. Að venju verða foreldrar barna sem eru að byrja í 1. bekk boðaðir í viðtal með bréfi frá umsjónarkennurum. Aðrir árgangar mæta á sal skólans sem hér segir:   2. - 4. bekkur mætir kl. 9:00       5. - 7. bekkur mætir kl. 9:30      8. - 10. bekkur mætir kl. 10:00   Á sal verður rætt stuttlega við nemendur og þeir fara síðan með umsjónarkennurum sínum í stofur og fá þar stundatöflur og kynningu á því sem framundan er. Foreldrar eru hvattir til að koma með börnum sínum á skólasetninguna. Foreldrar barna sem verða í Frístund eru minntir á að koma í skólann og  staðfesta vistunartíma barna sinna þann 13. ágúst og skrifa undir vistunarsamning.  
Lesa meira

Námsgagnalistar 2013-2014

Námsgagnalistar fyrir veturinn hafa verið settir á síðuna og má finna þá hér.
Lesa meira

Með sumarkveðju

Nú er skólaárið á enda og lauk því með umhverfisdögum þar sem námið fór fram utandyra. Það má með sanni segja að veðrið hafi leikið við okkur þessa daga en seinni daginn var endað á grillveislu í stóra inngarðinum. Hér má sjá myndir frá henni. Útskrifaðir voru 42 nemendur frá skólanum og óskum við þeim til hamingju og velfarnaðar á nýjum vettvangi. Að lokum viljum við þakka ykkur fyrir ánægjulegt samstarf í vetur og vonum að þið hafið það gott í sumarleyfinu. Skólinn hefst að nýju með skólasetningu þann 22. ágúst. Með sumarkveðju Starfsfólk Síðuskóla
Lesa meira

Rýmingaræfing

Í morgun var síðasta rýmingaræfing vetrarins og voru nemendur ,,óundirbúnir“ sem og starfsfólk. Æfingin tókst vel og skólinn var rýmdur á rúmri mínútu. Þessar æfingar eru nauðsynlegar og starfsfólk og nemendur eru orðin nokkuð vel þjálfuð. Alltaf kemur eitthvað smávægilegt upp sem reynt er að laga og erum við nokkuð ánægð með árangurinn. Slökkviliðið kom á staðinn og gefur það æfingum sem þessari meira vægi í augum nemenda.
Lesa meira

Skólalok framundan

Nú fer þessu skólaári senn að ljúka og hér eru upplýsingar um það helsta sem framundan er fram að skólalokum. Síðasti kennsludagur er fimmtudaginn 6. júní en skólaslit verða 7. júní eftir því sem hér segir:  1.-4. bekkur kl. 09:00  5.-9. bekkur kl. 10:00 Nemendur fara fyrst á sal en fara síðan með umsjónarkennurum í sínar stofur. Skólaslit hjá 10. bekk verða í Glerárkirkju kl. 17:00. Í morgun fór 10. bekkur af stað í skólaferðalag og kemur til baka á föstudaginn þann 31. maí. Ljóst er að veðrið mun leika við ferðalangana og ekki slæmt að ljúka grunnskólagöngunni í blíðviðrinu. Þetta árið er ferðinni heitið til Skagafjarðar og verður þar margt til gamans gert. Umhverfisdagar verða í skólanum miðvikudaginn 5. júní og fimmtudaginn 6. júní. Þá daga fer annars konar nám fram hjá nemendum, nám sem er ekki síður mikilvægt en hið hefðbundna sem fram fer í skólastofunum. Skólatíminn er frá kl. 8:00 þessa daga og lýkur kl. 12:30. Frístund er opin fyrir þá sem þar eru skráðir. Nemendur þurfa að vera klæddir til útiveru þessa daga. Hér má sjá skipulag Umhverfisdaganna. Hér má sjá töflu sem sýnir hverjir verða umsjónarkennarar bekkjanna á næsta skólaári. Skólasetning næsta árs verður 22. ágúst. Skóladagatal 2013-2014 kemur á heimasíðuna á næstu dögum.
Lesa meira

Matarboð

Foreldrar nemenda í 10 bekk buðu börnunum og umsjónarkennrum þeirra í fínan mat á sal skólans kvöldið fyrir skólaferðalagið þeirra.   Hér má sjá myndir frá kvöldverðinum sem tókst í alla staði mjög vel.
Lesa meira

Fjöruferð

Fyrsti bekkur er að læra um fjöruna og hafið. Af því tilefni fórum við í gönguferð í fjöruna til að skoða lífríki hennar. Leið okkar lá um gangstéttir bæjarins yfir móa, mela og þúfur. Síðan  komum við að klöppum þar sem allir fengu að spreyta sig í klettaklifri.  Þar sem krakkarnir stóðu efst upp á klettinum blasti við þeim þessi flotta vík sem í daglegu tali er talað um Sílabás, en þangað lá leið okkar. Veðurguðir voru okkur hliðhollir og við dvöldum lengi þarna, nemendur óðu misdjúpt í leit að fjársjóði og fyrir vikið voru þeir misblautir á heimleiðinni. Allir stóðu sig vel og við gátum ekki merkt annað en að allir hefðu skemmt sér vel.  Hér má sjá fullt af skemmtilegum myndum úr ferðinni.
Lesa meira

4. bekkur heimsótti Kiðagil

Dagana 13.-15. maí voru nemendur fjórða bekkjar í skólabúðum á Kiðagil í Bárðardal. Þeir heimsóttu fjárhúsin á Svartárkoti bæði á mánudag og þriðjudag og fengu að spreyta sig við ýmis störf tengd sauðburði. Farið var í gönguferð um staðinn og krakkarnir fræddir um húsendur og reykhúsið. Svo fengu þeir sem vildu, að fara á hestbak. Á miðvikudagsmorgun var fjósið á Halldórsstöðum heimsótt þar sem nemendur fengu að prófa að mjólka. Ferðin tókst vel og komu allir heim reynslunni ríkari. Hérna má sjá myndir úr ferðinni.
Lesa meira

Gönguferð í veðurblíðunni

Fyrsti bekkur fór í gönguferð í veðurblíðunni föstudaginn 24. maí.  Markmiðið með ferðinni var að skoða kindur og lömbin þeirra. Geiri Vald sem á fjárhús leyfði okkur að koma og skoða hjá sér. Fjárhúsið hans er rétt hjá Trésmíðaverkstæðinu Hyrnu.  Börnin voru mjög áhugasöm og fengu einnig að kíkja á hestana. Hér má sjá myndir frá heimsókninni.
Lesa meira

Kveðjukaffi

Í dag þriðjudaginn 21. maí buðu nemendur í 10. bekk og foreldrar þeirra öllu starfsfólki Síðuskóla í kaffi. Einn nemandi hélt ræðu þar sem hann fyrir hönd 10. bekkingana þakkaði starfsfólkinu frábæra umönnun sl. 10 ár. Starfsfólk og nemendur gæddu sér svo saman  á stórglæsilegu kaffihlaðborði eins og sést á meðfylgjandi myndum.
Lesa meira