Fréttir

Öðruvísi dagar framundan

Í næstu viku verða ,,Öðruvísidagar" í Síðuskóla.  Nemendaráð er búið að skipuleggja dagana og eru þeir sem hér segir: Mánudagur: Hatta/húfu og gleraugnadagurÞriðjudagur: 80 áratugurinn (eighties)Miðvikudagur: Dýradagur t.d. bara mála sig eða koma í búningi.Fimmtudagur: Sumardagur - sumarfötFöstudagur: Náttfatadagur eða bara notaleg föt. Vonandi finna allir eitthvað við sitt hæfi, allt er þetta til gamans gert.
Lesa meira

Fréttabréf Síðuskóla

Fréttabréf Síðuskóla janúar 2014 má finna hér.
Lesa meira

Litlu jólin

Litlu jólin verða föstudaginn 20. desember frá 9:00-11:00 Það mæta allir á sama tíma. Við hlustum á helgileik í salnum í umsjón 6. bekkjar. Nemendur fara í stofur með kennurunum sínum og síðan hittast allir í íþróttahúsinu og dansa saman í kringum jólatreð. Frístund er opin þennan dag til kl. 13:00 fyrir alla nemendur í 1.-4. bekk. Frá 13:00-16:15 er opið í frístund fyrir þá sem þar eru skráðir. Greiða þarf sérstaklega fyrir þennan tíma. Skólinn hefst aftur eftir jólaleyfi þriðjudaginn 7. janúar samkvæmt stundatöflu. 3. janúar er skipulagsdagur og frístund lokuð allan daginn. 6. janúar er skipulagsdagur og er frístund opin til kl. 13:00 fyrir alla nemendur í 1.-4.bekk. Frá 13:oo-16:15 er opið í frístund fyrir þá sem þar eru skráðir. Greiða þarf sérstaklega fyrir þennan tíma.   Starfsfólk Síðuskóla óskar nemendum og foreldrum    gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári    og þakkar samstarfið á árinu sem er að líða .  
Lesa meira

Fréttabréf Síðuskóla

Nýtt fréttabréf Síðuskóla finnurðu hér.
Lesa meira

Spurningakeppni í unglingadeild

Það er gömul hefð í Síðuskóla að halda spurningakeppni í tilefni af fullveldisdegi Íslands 1. desember. Spurningakeppnin var haldin í dag þar sem 1. des. lendir á sunnudegi. Keppnin var skemmtileg og spennandi en 10. bekkur fór með sigur á endanum. Hér má sjá myndir frá keppninni.
Lesa meira

Þemadagar

Á morgun og hinn, þriðjudag og miðvikudag, eru þemadagar í skólanum. Þemað var valið af nemendum og í þetta sinn snýst þemað um drauga. Venjuleg stundaskrá er leyst upp og vinna nemenda verður um drauga frá klukkan 8 að morgni til klukkan 13. Ekki eru tímar eftir hádegi þessa daga.
Lesa meira

Ball hjá 5.-7. bekk

Fimmtudaginn 14.nóvember verður haldið ball fyrir miðstigsnemendur í Síðuskóla 5. – 7.bekkur. Ballið hefst klukkan 17:30 og því lýkur klukkan 19:30. Það kostar 300 krónur inn á ballið. Þetta ball er haldið af 10.bekkingum til styrktar vorferð þeirra. Sjoppan verður opin en þar er hægt að fá Svala, gos, bland í poka og stök nammistykki. Verðskráin er:   Svali                      100 kr. Gosdós                 150 kr. Bland í poka          150 kr. Súkkulaði              150 kr. Annað                   150 kr. Með kveðju,Bibbi og Björk, umsjónarkennarar 10.bekkjar
Lesa meira

Einkunnir í samræmdum prófum

Hér má sjá einkunnir í samræmdum prófum árin 2007-2013, normaldreifingu í samanburði við aðra skóla í landinu.
Lesa meira

Bókaverðlaun barnanna 2013

Nemendur á aldrinum 6 – 12 ára áttu þess kost að taka þátt í vali á bestu barnabókinni, sem kom út á árinu 2012.  Kosningu er nú lokið og besta barnabókin á síðasta ári að mati þessa aldurshóps er bókinAukaspyrna á Akureyri eftir Gunnar Helgason og besta þýdda bókin að þeirra mati var Dagbók Kidda klaufa- svakalegur sumarhitieftir Jeff Kinney í þýðingu Helga Jónssonar.   Gunnar Helgason og Helgi Jónsson fengu viðurkenningar, fyrir vinsælustu íslensku barnabókina 2012 og vinsælustu þýddu bókina 2012 Viðurkenningarnar voru afhentar við hátíðlega athöfn á Borgarbókasafninu í Reykjavík. Einn nemandi í hverjum skóla, sem tók þátt í þessu verkefni,  var dreginn út og fékk viðurkenningu og bókaverðlaun. Í Síðuskóla var það Sindri Már Sigurðsson í 7. bekk, sem hlaut viðurkenningu og nýju RipleY's bókina í verðlaun, Ripley's - Ótrúlegt en satt, STUÐANDI STAÐREYNDIR. Vinningshafar í Bókaverðlaun barnanna 2013Arna Sirrý Erlingsdóttir, 11 ára               Lundarskóli            Sindri Már Sigurðsson, 12 ára                          Síðuskóli                Marín, 10 ára                                       Glerárskóli             Sandra Dögg, 12 ára                             Brekkuskóli            María Björk, 9 ára                                         Giljaskóli              Snævar Bjarki Davíðsson, 6 ára              Hríseyjarskóli          Bókaverðlaun barnanna 2013 1.      Aukaspyrna á Akureyri                                                                2.      Dagbók Kidda Klaufa – Svakalegur sumarhiti                          3.      Krakkinn sem hvarf                                                           4.      Kafteinn ofurbrók og tiktúrurnar í tappa teygjubrók                 5.      Skúli skelfir og uppvakningsvampíran                                    6.      Stelpuhandbókin                                                                        7.      Aþena að eilífu, kúmen                                                               8.      Blávatnsormurinn                                                                      9.      Messi                                                                             10.   Ronaldo                                                                           
Lesa meira

Fyrstu bekkingar í skólanum

Það er alltaf mikið að gera hjá nemendum í fyrsta bekk og margt sem er nýtt og óþekkt. Kennarar hafa tekið myndir reglulega í skólastarfinu og hér má finna nokkrar þeirra. Það er gaman að sjá áhugann og einbeitnina sem skín úr andlitunum á þessum ungu nemendum. Inni í MYNDIR hér fyrir ofan má finna tengil sem heitir '07 / árgangur 2007 og þar má finna myndir frá þessum árgangi.
Lesa meira