12.02.2010
Fimmtudaginn 11. febrúar fengum við til okkar hann Sigurð Arnar frá blakdeild KA til þess að kynna fyrir nemendum þessa skemmtilegu
íþrótt.
Nokkrar myndir voru teknar í tíma hjá 4. bekk og þær má sjá hér.
Lesa meira
05.02.2010
Aðfaranótt föstudagsins 5. febrúar fengu nemendur í 7. bekk að gista á bókasafni skólans þar sem lesið var langt fram eftir
nóttu. Um morguninn fengu þau morgunmat í matsal skólans og fóru svo beint í tíma.
Gekk þetta allt ágætlega og skemmtu allir sér mjög vel.
Myndir má sjá hér.
Lesa meira
05.02.2010
Nýjar myndir eru komnar inn á myndasíðu 5. bekkjar.
Myndirnar má sjá hér.
Lesa meira
03.02.2010
-Stuðningssíða fyrir nemendur með lesraskanir á vef skólavefsins-
Á Skólavefnum er að finna ógrynni námsefnis sem skólar og einstaklingar hafa nýtt
sér með góðum árangri í 10 ár. 93% allra grunnskóla og um 2000 heimili eru með
áskrift að vefnum og nýta sér fjölbreytt námsefnið með margvíslegum hætti.
Námsefni af Skólavefnum er notað víða í kennslu auk þess sem við erum einn stærsti
einkaaðilinn í útgáfu námsbóka á Íslandi.
Lesa meira
01.02.2010
Fyrir áramót voru nemendur 5. og 7. bekkjar í dagblaðaverkefni í myndmennt. Nemendur höfðu nóg að gera við að lesa, klippa, skoða,
rífa og líma myndir úr blöðunum. Fróðleiksfúsir sökktu sér í blaðalestur sér til gagns og gamans áður en
hafist var handa við að tæta blöðin í sundur!
Myndir má sjá hér.
Í haust var ákveðið að setja upp smt-tré fyrir allan skólann. Þar safnast saman hversu marga hrósmiða nemendur hafa fengið í
heildina frá því í haust. Vaskir nemendur úr 5. bekk hjálpuðu til við að hengja tréið á sinn stað.
Myndir má sjá hér.
Lesa meira
01.02.2010
Matseðill fyrir febrúar er kominn inn, hann má nálgast hér.
Lesa meira
27.01.2010
Í dag miðvikudaginn 27. janúar var haldin danskeppni hjá nemendum í 4. SS. Krakkarnir völdu sér danskeppni sem umbun.
Myndir má sjá hér.
Lesa meira
25.01.2010
Nýjar myndir eru komnar inn í myndaalbúm 6. bekkjar.
Náttúrufræðikynning frá því í desember
&
Enskutími hjá 6.1
Lesa meira
25.01.2010
Föstudaginn 16. janúar spiluðu 2. og 3. bekkur saman.
Krakkarnir í 3. bekk voru að kenna krökkunum í 2. bekk á nýju spilin sem við höfum verið að fá í skólann núna
í vetur. Það var mikið líf og fjör hjá krökkunum.
Myndir má sjá hér.
Lesa meira
20.01.2010
Fjölskyldudeild Akureyrarbæjar og ADHD samtökin í samvinnu við Þroska– og hegðunarstöð HH bjóða börnum með ADHD að taka
þátt
í námskeiði til að efla færni á ýmsum sviðum. Námskeiðið er fyrir börn fædd árin 200 og 2001 og eru 6 börn í
hverjum hópi. Áhersla er
lögð á að auka færni barna í félagslegum samskiptum, skapstillingu, sjálfstjórn og að bæta athyglisgetu þeirra.
Eftirfarandi þættir verða teknir fyrir í hópunum:
Tilfinninga– og reiðistjórnun, félagsfærni, sjálfstjórn og þrautalausnir.
Námskeiðið verður frá 22. febrúar til 24. mars n.k. Kennt verður mánudaga og miðvikudaga kl. 16.– 17.30, alls 10 skipti.
Umsóknir berist til gudrunkr@akureyri.is eða bjorg@akureyri.is eða hringið í síma 460-1420
Nánari upplýsingar er að finna hér http://naustaskoli.is/news/snillingarnir_-_namskeid/
Lesa meira