05.01.2011
Kæru nemendur og foreldrar
Mánudaginn 10. janúar og þriðjudaginn 11. janúar verður
námsmat afhent með viðtali við nemendur og foreldra. Viðtölin er skipulögð þannig að 10. janúar eru viðtöl hjá 1. -6. bekk en
kennt í 7. – 10. bekk. 11. janúar eru viðtöl í öllum bekkjardeildum skólans og ekki kennsla þann dag.
Nemendur fá tilkynningu um viðtal rafrænt frá umsjónarkennara og
ef sá tími hentar ekki þá vinsamlega hafið samband við umsjónarkennara eða ritara sem allra fyrst.
Ef foreldrar eða kennarar vilja ræða einhver mál án þess að nemandinn sé viðstaddur þá er einfalt að verða við
því.
Æskilegt er að vera búin að fara yfir leiðsagnarmatið sem unnið var í
skólabyrjun og á miðri önninni svo hægt sé að hafa þau til hliðsjónar í viðtölunum.
Meðan á viðtölum stendur verða faggreinakennarar, sérkennarar og
skólastjórnendur til viðtals í skólanum auk annars starfsfólks.
Foreldrar barna í 1. – 4. bekk eru beðnir að hafa samband ef þeir vilja nota
frístund fyrir hádegi viðtalsdagana. Síminn í frístund er 461 3473.
Foreldrar eru beðnir að athuga hvort börn þeirra eigi föt eða aðra muni í
óskilum í skólanum.
Lesa meira
22.12.2010
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs um leið og við þökkum fyrir gott samstarf á árinu sem er að
líða.
Starfsfólk Síðuskóla
Nú kemur þú brosandi í bæinn
blessaða nýja ár,
með ferska framtíðarblæinn
sem fortíðar þerrar tár.
Því finnst mér að framundan létti
og fyrnist óhöppin skeð.
Því hægri hönd mína rétti,
með hinni það liðna kveð.
H.G.
Lesa meira
17.12.2010
Foreldrar eru beðnir að sækja yngstu börnin í skólann þegar kennslu er lokið. Miða er við 1. til 5. bekk og eldri börn sem eiga heima langt
frá skólanum.
Lesa meira
17.12.2010
Skólaball sem átti að vera í kvöld, föstudag 17. desember, klukka 20 í Síðuskóla fellur niður vegna veðurs.
Lesa meira
16.12.2010
Á þemadögum í nóvember söfnuðu
nemendur í 5. og 10. bekk peningum með því að selja knús. Þeir gáfu einnig út skólablað sem þeir hafa verið að selja.
Með þessu tókst krökkunum að safna kr. 45.000.- og hefur peningunum nú verið varið í að kaupa gjafabréf fyrir vatnstank handa börnum
í Úganda.
Vatn er undirstaða alls lífs en sumstaðar er það
vandfundið. Munaðarlausu börnin í Úganda eyða mörgum klukkustundum á dag í að sækja það. Með gjafabréfinu spörum
við þeim tíma og fyrirhöfn þar sem byggður verður vatnstankur við heimili þeirra. Af bárujárnsþökum má safna
rigningarvatni sem dugar 3-4 mánuði inn í þurrkatímann. Í stað þess að eyða deginum í að sækja vatn geta börnin
sótt skóla!
Á heimasíðunni http://gjofsemgefur.is/ má sjá
fleiri gjafabréf sem fólk getur keypt handa bágstöddum.
Lesa meira
14.12.2010
Kæru foreldrar og
nemendur í Síðuskóla
Nú er aðventan gengin
í garð og jólin nálgast. Það er verið að skreyta skólann og nemendur að vinna að ýmsum verkefnum tengdum þessum
árstíma. Verkefnin eru breytileg eftir árgöngum og sem dæmi má nefna lestur jólabóka á bókasafninu, 6. bekkur æfir
jólaleikrit, nokkrir árgangar baka laufabrauð og ekki má gleyma jólaföndri. Aðventuferðir í Minjasafns- og Glerárkirkju tilheyra
þessum árstíma líka.
Litlu jólin
Litlu jólin eru 20.
desember. Nemendum er skipt í tvo hópa. Fyrri hópurinn kemur klukkan 8:30 og sá seinni klukkan 10:30. Niðurröðun bekkja má sjá hér
á eftir og einnig á heimasíðunni. Litlu jólin verða með svipuðu sniði og undanfarin ár. Nemendur hlusta á jólahugvekju, horfa
á jólaleikrit 6. bekkjar og í íþróttasalnum dönsum við í kringum jólatréð. Nemendur fara síðan með
umsjónarkennurum í bekkjastofur og eiga þar góða stund saman. Jólasveinar koma í stofurnar með glaðning handa þeim. Nemendum er
frjálst að senda bekkjarfélögum jólakort en póstkassar verða fyrir hvern bekk.
Niðurröðun bekkja á litlu jólin
Kl. 8: 30
2. bekkur, 3. bekkur, 4. bekkur
TS5. bekkur SB, 6. bekkur JÁ, 8.
Bekkur9. bekkur B, 10. bekkur KLM.
Kl. 10:30
1. bekkur, 4. bekkur
ASR5. bekkur
ÁEK, 6. bekkur HH7. bekkur, 9. bekkur HF, 10. bekkur SA.
Þeir sem ætla að
nýta sér frístund fyrir hádegi þann 20. desember eru beðnir um að hafa samband við Jóhönnu Jessen í síma 4613473 eða
á netfangið sidufristund@akmennt.is fyrir 16. desember.
Skólinn hefst aftur eftir jólaleyfi þriðjudaginn 4.
janúar klukkan 8:00.
Viðtalsdagar í
Síðuskóla eru 10.og 11. janúar 2011.
1.-6. bekkur eru í
viðtölum báða dagana og 10. janúar er kennsla hjá 7.-10. bekk. 11. janúar er viðtalsdagur hjá öllum nemendum og ekki kennsla þann
dag. (Sjá skýringar við skóladagatal á heimasíðu skólans).
Starfsfólk Síðuskóla óskar nemendum og foreldrum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári og
þakkar samstarfið á árinu sem er að líða.
Lesa meira
13.12.2010
Þann 1. desemeber fór fram árleg spurningakeppni í 8. -10. bekk en þessi keppni hefur verið árviss viðburður
hér í skólanum síðan 1998. Allir keppendur stóðu sig af stakri prýði en sigurvegararnir þetta árið voru nemendur í 10.
bekk. Við óskum þeim til hamingju með sigurinn.
Myndir frá spurningakeppninni má sjá hér.
Lesa meira
07.12.2010
Vikuna 29.nóvember til 3.desember voru í heimsókn í Síðuskóla nemendur og
kennarar frá Grikklandi, Spáni, Ungverjalandi og Belgíu. Nemendur voru í kennslustundum með nemendum í 9. og
10.bekk en kennarar hittust og ræddu málin. Heimsóknin var í tengslum við samstarf skóla frá þessum
löndum. Síðuskóli vinnur að því með hinum skólunum að nýta tölvutæknina meira
í kennslu. Nemendur sem koma að þessu verkefni munu uppfræða kennara um það hvernig þeir geti nýtt
sér tölvutæknina til að gera kennslustundirnar fjölbreyttari og vonandi bæði skemmtilegri og meira hvetjandi fyrir nemendur til að læra.
Þessi heimsókn er fyrsta verkefnið í verkefninu ICT4U sem styrkt er af Evrópusambandinu og í framhaldinu munu kennarar og nemendur við Siðuskóla
sækja aðra þátttakendur heim.
Nemendur sem komu hingað gistu hjá nemendum og fjölskyldum þeirra og báru mikið lof á allar aðstæður
og vildu þeir helst ekki yfirgefa landið þegar kom að brottfarardegi. Við viljum þakka þeim fjölskyldum sem
opnuðu heimili sín fyrir erlendum nemanda þessa viku og tóku undir sinn verndarvæng. Þetta verkefni hefði aldrei
gengið svona vel nema vegna velvilja foreldra.
Takk fyrir það.Bibbi, umsjónarmaður Comeniusverkefnisins fyrir hönd
Síðuskóla.
Hér má sjá
eldri myndir frá Comeniusarverkefninu
Lesa meira
06.12.2010
Nemendur í 4. -10. bekk hafa verið að vinna að hinum
ýmsu verkefnum í textilmennt.
Nemendur í 4. bekk hafa verið að sauma út og búa til
lítinn púða. Þeir hafa verið að vinna með efni og saumað á saumavél.
Nemendur í 5. bekk hafa verið að búa til bakpoka sem
þeir sauma í merki eða myndir.
Nemendur úr 6. bekk hafa verið að sauma svuntur.
Nemendur í 7. bekk hafa verið að sauma stafi í
handklæði ásamt því að vera með verkefni sem þeir velja sjálfir.
Í valinu sem í eru nemendur úr 8. 9. og 10.bekk vinna
þeir verkefni fyrir Rauðakrossinn sem heitir Föt sem framlag en í því verkefni er verið að sauma ungbarnaföt og ungbarnateppi.
Í október var kennaranemi hjá okkur sem kenndi 5. til 10. bekk bútasaum. Nemendur
lærðu að skera efni og raða saman munstri og sauma saman. Flestir gerðu kodda og töskur en elstu nemendurnir eru að vinna að bútasaumsteppum sem gefin
verða til Rauðakrossins.
Til að sjá fleiri skemmtilegar myndir smellið hér.
Lesa meira
06.12.2010
Leitinni að Grenndargralinu er lokið og að þessu sinni vann Glerárskóli keppnina, eins og áður hefur komið fram og
óskum við þeim til hamingju. Í Síðuskóla voru tvær stúlkur sem náðu glæsilegum árangri og luku keppninni en
þær eru Elfa Jónsdóttir og Katrín Lóa Traustadóttir í 9. bekk. Þær fengu í morgun viðkenningar fyrir árangurinn og
til hamingju stelpur þetta var frábært hjá ykkur.
Lesa meira