19.03.2010
„Einelti á vinnustöðum, heimilum og skólum og sjálfsvíg, forvarnir og sorg."
"(Suicide Prevention and Grief and Bullying in Workplace, Home and School").
Laugardagur 20. Mars kl. 12.00 – 15.30 í Síðuskóla
Skráning á fyrirlestur í gegnum netfangið jericoakureyri@gmail.com
Sr. Tony Byrne og systir Kathleen Maguire ætla að miðla okkur af þekkingu sinni og fræða um sína reynslu í þeirra starfi. Þau sinna
námskeiðshaldi og fyrirlestrum sem snúa að uppbyggingu einstaklingsins og fjölskyldunnar. Fyrst og fremst reyna þau að gera fólk meðvitaðra um
vandamálin sem við er að glíma og kenna hvernig best er að fást við vandamálin og horfast í augu við þau.
Lesa meira
19.03.2010
Myndir frá árshátíðinni má sjá hér.
Lesa meira
17.03.2010
Þann 11. mars síðastliðinn fór fram keppni í skólahreysti hér á Akureyri. Stóðu nemendur Síðuskóla sig mjög
vel og enduðu í 2. sæti.
Við óskum keppendum til hamingju með árangurinn.
Lesa meira
17.03.2010
Myndir frá skíðaferðinni 16. mars eru komnar inn á myndasíðuna.
Myndir má sjá hér.
Lesa meira
16.03.2010
/*
/*]]>*/
Bólusett verður hér í Síðuskóla þann 25. mars. Auk skólahjúkrunarfræðings mun annar
hjúkrunarfræðingur og skólalæknir sjá um bólusetninguna.
Foreldrar eru beðnir að láta vita ef börn eru búin að fá bólusetningu eða ef þeir kæra sig ekki um að börn þeirra
séu bólusett. Sjá áður sendar upplýsingar í netpósti.
Dóra Björk Jóhannsdóttir, Skólahjúkrunarfræðingur Síðuskóla
Lesa meira
12.03.2010
Útivistardagur er áætlaður þriðjudaginn 16. mars ef veður leyfir. Engin hefðbundin kennsla verður
þennan dag.
Mæting í skólann er kl. 8:00. Farið verður upp í Hlíðarfjall og fyrsta
rúta leggur af stað þangað ca. 8:30.
Nemendur velja hvort þeir fara á skíði, bretti, gönguskíði, sleða, snjóþotu eða í
göngutúr.
Þessi ferð er nemendum að kostnaðarlausu!
Heimferð með kennurum er kl. 12:00 og 12:15 en þeir nemendur í 5.-10. bekk sem ætla að vera lengur verða að koma sér heim sjálfir.
Nemendurþurfa að koma með skriflegt leyfi að heiman ef þeir ætla að vera lengur en til 12:00 uppi í fjalli.
Nemendur í frístund fara þangað eins og venjulega.
Nemendur sem eru skráðir í mat borða þegar þeir koma úr fjallinu.
Skóla er lokið eftir hádegismatinn.
Muna eftir næringaríku og góðu nesti og klæða sig vel!
Við hvetjum ykkur eindregið til að sjá um að börnin ykkar noti hjálm og bendum á að það er hægt að fá lánaða
hjálma í fjallinu.
Starfsfólk Síðuskóla.
Lesa meira
10.03.2010
Komnar eru inn myndir frá æfingum nemenda.
Myndir má sjá hér.
Lesa meira
10.03.2010
Fimmtudaginn 11. mars fer Skólahreysti fram í íþróttahöllinni á Akureyri og hefst keppnin klukkan 18:00.
Síðuskóli hefur sína fulltrúa á svæðinu og eru þeir eftirfarandi:
Fyrir stráka keppa:
Páll Hólm Sigurðarson og Arnór Þorri Þorsteinsson.
Fyrir stelpur keppa:
Auður Kristín Pétursdóttir og Helena Rut Pétursdóttir.
Varamenn eru Hákon Guðni Hjartarson og Vilborg Austfjörð.
Lesa meira
08.03.2010
Mánudaginn 8. mars var foreldrasýning á verkefni um Snorra Sturluson og Sturlungaöldina sem 6. bekkur hefur verið að læra um í
samfélagsfræði.
Myndir má sjá hér.
Lesa meira
08.03.2010
Föstudaginn 5. mars fóru fram undanúrslit í stóru upplestrarkeppninni í Síðuskóla.
Aldís Sveinsdóttir og Kjartan Atli Ísleifsson voru valin til að keppa fyrir hönd Síðuskóla í úrslitunum sem fara fram miðvikudaginn
17. mars.
Berglind Pétursdóttir var kjörinn varamaður.
Lesa meira