10. bekkingar hyggjast hafa markaðsdag í skólanum laugardaginn 27. nóvember n.k. og mun allur ágóði hans renna í fjáröflunarsjóð bekkjanna fyrir útskriftar-ferð þeirra vorið 2011. Hugmyndin er sú að hafa þetta eingöngu endurnýtanlegan efnivið í anda þeirrar umhverfisstefnu sem ríkjandi er í Síðuskóla. Leitum við nú til ykkar með efnivið á markaðinn og nú er akkúrat tíminn til að skoða í skápa, geymslur og háaloftið eftir varningi sem hentar á markað sem þennan.
Tekið er við eftirtöldu á markaðinn:
Fatnaði af öllum gerðum og stærðum.
Skóm og töskum af öllum gerðum og stærðum.
Skartgripum, úrum og öðru skrautlegu.
Bókum, DVD diskum og geisladiskum.
Vinsamlegast afhendið fatnað flokkaðan; Stúlku-, drengja-, unglinga-, konu- og karlaföt.
Tekið verður á móti varningi, miðviku-, og fimmtudag 24.-25. nóvember frá kl. 17-19.
Með fyrirfram þökk til allra sem geta lagt okkur lið,
nemendur og foreldrar 10 bekkja 2010-2011
Ath: Ef það verður eitthvað eftir af varningi í lok markaðsdags mun það renna óskipt til Mæðrastyrktsnefndar á Akureyri.