Fréttir

Matseðill fyrir nóvember

Minnum á að matseðill fyrir nóvember er kominn inn. Hann má nálgast hér.
Lesa meira

Lífið í Mósambik

Ína fyrrum nemandi í Síðuskóla kom í heimsókn í 8. bekk í landafræðitíma hjá Sigrúnu Sigurðardóttur í morgun. Hún sagði frá dvöl sinni og starfi í Mósambik þar sem hún hefur verið á undanförnum árum. Ína hefur verið við nám í kennaraskóla í Danmörku þar sem hluti af náminu fellst í því að fara og kenna á ýmsum stöðum í heiminum. Ína sagði skemmtilega frá og sýndi margar myndir frá lífinu í Mósambik. Nemendur hlustuðu af athygli og voru duglegir að spyrja. Þetta var ekki fyrsta heimsókn Ínu til okkar og vonum við að hún geti komið til okkar aftur á næstu árum. Ína heldur aftur til Mósambik í desember og óskum við henni alls góðs í framtíðinni.
Lesa meira

Myndir frá 6. bekk

Nýjar myndir eru komnar inn í myndaalbúm 6. bekkjar. Myndirnar má sjá hér.
Lesa meira

Myndir frá afmælishátíð Síðuskóla

Laugardaginn 5. september var haldið upp á 25 ára afmæli Síðuskóla. Myndir frá hátíðinni má sjá hér. ATH: Bætt hefur verið við myndum frá afmælishátíðinni sem má nálgast hér.
Lesa meira

Göngum í skólann og skólatöskuverkefni

Við í Síðuskóla tökum nú í annað sinn þátt í alþjóðlega verkefninu Göngum í skólann. Október er alþjóðlegur skólagöngumánuður - og alþjóðlegi „göngum í skólann“ dagurinn er 9. október 2009. Á Íslandi ákvað verkefnisstjórn að verkefnið hæfist 9. september og ljúki formlega á alþjóðlega Göngum í skólann deginum 9. október næstkomandi. Við settum verkefni okkar með árlegu skólahlaupi okkar. Allir nemendur og starfsmenn hlupu eða gengu skólahringinn. Kennarar hafa síðan kannað í bekkjum sínum hversu margir nemendur koma gangandi, hjólandi, með almenningsvögnum eða með einkabíl í skólann. Í næstu viku (og einnig í vikunni 5. - 9. október) verður skráð í öllum bekkjum hvernig nemendur og starfsmenn koma í skólann. Þá munu einnig verða svokallaðir skólatöskudagar því það er margt sem hafa þarf í huga þegar þessi hlutur er notaður. Markmiðið er að læra hvað gott sé að hafa í huga við val á skólatösku, hversu þung taskan megi vera, og hvernig æskilegast er að bera töskuna og raða sem best í hana. Nemendur þurfa að bera námsgögn á milli heimilis og skóla og því er þetta verkefni valið að þessu sinni. Í skólanum starfar iðjuþjálfi sem mun fara á milli bekkja með hjúkrunarfræðingi og námsráðgjafa. Þeir munu vigta töskur og nemendur og sjá um fræðsluna. Við hvetjum alla nemendur og starfsmenn til að koma gangandi eða hjólandi til vinnu. Það er bæði umhverfisvænt og hollt. Því fylgir góð hreyfing og útivera verður meiri. 
Lesa meira

Matseðill fyrir október

Minnum á að matseðill fyrir september er kominn inn. Hann má nálgast hér.
Lesa meira

Myndir frá 6. bekk

Á myndasíðu 6. bekkjar eru komnar inn nýjar myndir frá umhverfisdeginum, ferð niður að Hundtjörn og frá siglingu með HúnaII. Myndirnar má sjá hér.
Lesa meira

Viðbragðsáætlun vegna inflúensu

Hér vinstra megin á síðunni hefur verið settur inn hlekkur á viðbragðsáætlun Síðuskóla vegna inflúensu. Viðbragðsáætlun þessi segir fyrir um skipulag og stjórn aðgerða í Síðuskóla í samræmi við áætlun Almannavarna um viðbrögð við heimsútbreiðslu inflúensu. Markmið viðbragðsáætlana skóla eru að tryggja skipulögð og samræmd viðbrögð allra skólastofnana sem og starfsmanna þeirra þegar til inflúensufaraldurs kemur. Biðjum við alla um að kynna sér þessa áætlun. Viðbragðsáætlun vegna inflúensu
Lesa meira

Norræna skólahlaupið 2009: úrslit

Í dag miðvikudaginn 9. september var Norræna skólahlaupið haldið. Hlaupið gekk mjög vel fyrir sig og stóðu nemendur sig mjög vel. Verðlaun voru veitt fyrir fyrstu 3 sætin í hverjum aldursflokk og hér má sjá hverjir náðu bestu tímunum að þessu sinni. Myndir má sjá hér. Til að sjá úrslit hlaupsins smelltu þá á lesa meira.
Lesa meira

Aðalfundur Foreldra-og kennarafélags Síðuskóla (F.O.K.S.)

F.O.K.S. býður upp á súpufund fimmtudaginn 10. september 2009 klukkan 18:00 Dagskrá:Fundarsetning Ávarp skólastjóra Skýrsla stjórnar Afgreiðsla reikninga Alice Harpa Björgvinsdóttir, sálfræðingur flytur fyrirlesturinn. Gaman saman: Mikilvægi jákvæðs hugarfars Kosning í stjórn Önnur mál Gaman væri að sjá sem flesta Stjórn F.O.K.S.
Lesa meira