02.06.2009
Miðvikudag og fimmtudag eru vordagar í skólanum, þá daga lýkur kennslu klukkan 12:30.
Föstudaginn 5. júní n.k. eru skólaslit.
1. - 4. bekkur mætir kl. 10:00, 5. - 9. bekkur mætir kl. 11:00 og 10. bekkur í Glerárkirkju kl. 18.00.
Lesa meira
25.05.2009
Laugardaginn 23. maí kom fyrsti útskriftarárgangur Síðuskóla
í heimsókn í tilefni þess að nú eru 20 ár síðan hópurinn lauk grunnskólaprófi. Mætingin var góð og
komu 20 af 23 sem í hópnum voru. Einnig mætti Ragnhildur Skjaldardóttir sem var umsjónarkennari þeirra í þrjú ár en Ragnhildur var
aðstoðarskólastjóri í mörg ár og skólastjóri í afleysingum. Árgangurinn var búinn að vera í ýmsum
skólum á Akureyri en þrjú síðustu árin var hann í Síðuskóla og alltaf elstu nemendurnir meðan þau voru
hér.
Í tilefni afmælisins færði hann Síðuskóla
málverk að gjöf sem ein úr hópnum, Guðrún Vaka (GVAKA, listamannsnafn) málaði af skólanum.
Smelltu á lesa meira til að sjá mynd af
málverkinu.
Lesa meira
25.05.2009
Þriðjudaginn 12. maí var haldin rýmingaræfing í Síðuskóla. Hvorki nemendur né starfsfólk vissi
að til stæði að halda æfingu. Tilgangurinn var að sjá hve langan tíma tæki að rýma skólann þegar enginn vissi hvað
stæði til. Æfingin gekk í alla staði mjög vel og tók 3.51 mín að tæma skólann. Slökkviliðið var heldur lengur á
ferðinni og stafaði það af gatnaframkvæmdum.
Myndir má sjá hér.
Öryggisnefnd.
Lesa meira
12.05.2009
Próftaflan fyrir nemendur í 7.-10. bekk er komin inn og má sjá hana hér.
Lesa meira
08.05.2009
Ákveðið hefur verið af stjórn FOKS að hætta við vorhátíð og halda í staðinn hausthátíð.
Hátíðin er áætluð 5.september. Í haust á Síðuskóli 25 ára afmæli og er það hugmyndin að
gera eitthvað sniðugt. Vegna skiplagningar langar okkur að biðja bekkjarformenn allra bekkja (nema 10. bekkjar) að hitta okkur 19. mai. kl.20.15. Þarætlum
við að fara yfir stöðuna, koma með hugmyndir og fleira. Við sendum bekkjarformönnum tilkynningu þegar nær dregur. Í stjórn FOKS vantar
gott fólk og á aðalfundi, sem verður 10. september þarf að kjósa í nýja stjórn. Við viljum biðja fólk um að láta
okkur vita ef það hefur áhuga á að vinna í skemmtilegu félagi með skemmtilegu fólki.
Lesa meira
08.05.2009
Í dag, föstudaginn 8. maí, fóru nemendur í 1. bekk í heimsókn til eldriborgara í félagsmiðstöðina í
Lindasíðu.
Þar sýndu nemendur árshátíðaratriði sitt, umhverfisverkefnið og tóku svo nokkur lög í lokin.
Þessi heimsókn var upphafið af áframhaldandi samstarfi bekkjarins og eldri borgara í félagsmiðstöðinni um ókomin ár. Næsta
heimsókn er áætluð í september næstkomandi.
Myndir má sjá hér.
Lesa meira
08.05.2009
Það var verkefni 4. bekkjar sem bar sigur úr býtum í umhverfissamkeppni Síðuskóla. Verkefni þeirra var að endurnýta
eggjabakka á fjölbreyttan hátt.
Við óskum þeim til hamingju með sigurinn.
Lesa meira
07.05.2009
Í dag, fimmtudaginn 7. maí fór fram sýning á verkefnum nemenda í umhverfissamkeppni skólans: Verum umhverfisvæn - Gerum vel.
Myndir frá sýningunni má sjá hér.
Sigurvegarar verða svo tilkynntir á morgun, föstudaginn 8. maí.
Lesa meira
06.05.2009
Miðvikudaginn 6. maí var öryggisnefnd Síðuskóla með rýmingaræfingu á D- gangi. Verið var að kanna hve langan tíma
það tæki að senda nemendur og starfsfólk á D- gangi út um neyðarútganga. Í stuttu máli
þá stóðu sig allir eins og hetjur og gerðu þetta á mettíma eða þremur mínútum. Þarna fóru út fimm
bekkjardeildir og sérdeildin.
Lesa meira
06.05.2009
Allar myndir frá árshátíðinni eru komnar inn.
Myndir frá fimmtudegi má sjá hér.
Myndir frá föstudegi má sjá hér.
Lesa meira