20.03.2012
Páskabingó.
Páskabingó verður haldið í Síðuskóla,
föstudaginn 23. mars kl 19:30.
Veglegir vinningar vinningar í boði og mikið
fjör. Við hvetjum alla sem geta til að mæta.
Spjaldið á kr. 500 - eftir hlé á kr.
300. Í hléi verður selt kaffi, kleinur o.fl.
10. bekkur í Síðuskóla
Lesa meira
19.03.2012
Mikið hefur verið um lús í skólum Akureyrar og nágrennis í vetur og virðist í mörgum tilfellum ganga mjög illa að
ráða niðurlögum hennar. Það er því mjög mikilvægt að allir fylgist vel með og séu duglegir að kemba reglulega yfir allan
veturinn þrátt fyrir að það sé ekki endilega tilkynnt um lús í viðkomandi skóla á þeim tíma.
Stærstu lýsnar eru þær sem sjást best í hárinu en þær allra minnstu grafa sig ofan í rótina og hársvörðinn.
Það þarf því að rýna vel til þess að sjá þær. Þeim er erfitt að ná með kambinum einum saman og dugir
þá jafnvel ekkert annað en að plokka þær úr með fingrunum. Ekki finna allir fyrir kláða eða óþægindum þótt
lúsin sé til staðar. Það getur því vel verið lús í hárinu þó að enginn kláði sé til
staðar.
Ef lús finnst þá er alveg nauðsynlegt að tilkynna það í skólann svo að hægt sé að bregðast við og leita
sérstaklega í bekk barnsins og hjá börnum á sama gangi skólans. Þegar lús finnst þarf líka alltaf meðhöndlun með
lúsasjampói og gott að barnið sé heima einn dag eftir meðferð og sé svo með buff nokkra daga á eftir.
Lesa meira
14.03.2012
Síðuskóli er þátttakandi í e-Twinning
samfélaginu sem Evrópusambandið setti á laggirnar árið 2005. Síðuskóli hefur tekið þátt frá árinu 2006 og
hefur verið með nokkur verkefni í gangi á hverju ári.
eTwinning verkefnið ICT4U hefur verið valið sem eitt af 10 bestu
samstarfsverkefnum í Evrópu. Síðuskóli er einn af þeim skólum sem standa að þessu verkefni og er í samstarfi við skóla
í Belgíu, Grikklandi, Ungverjalandi og á Spáni. Einnig koma aðrir skólar að þessu verkefni á netinu.
Verkefnið snýst um að finna forrit á netinu og nota þau í kennslu. Nemendur tileinka
sér ákveðin forrit og reyna að finna ákveðnar námsgreinar sem forritið gæti virkað í sem kennslugagn eða verkfæri til að
ná á annan hátt til nemenda í nútíma skóla.
Ýmis verkfæri hafa verið prófuð s.s. animoto, facebook, googledocs, screencast og fleiri.
Verkefnið er mjög skemmtilegt og fjölbreytilegt.
Lesa meira
09.03.2012
Lokahátíð Stóru
upplestrarkeppninnar var haldin á sal Menntaskólans á Akureyri, 7.mars síðast liðinn.
Keppendur í ár voru 15 frá grunnskólum bæjarins þar af einn nemandi frá Hrísey.
Skáld keppninnar í ár voru Kristín Helga Gunnarsdóttir og Gyrðir Elíasson.
Lásu nemendur brot úr bókinni Draugaslóð eftir Kristínu og eitt ljóð eftir
Gyrði. Einnig lásu þau eitt ljóð að eigin vali. Fulltrúar Síðuskóla í keppninni voru Jörundur Sigurbjörnsson, Steinar Logi Stefánsson og Valgerður
Pétursdóttir sem var varamaður.
Þetta var hátíðleg stund
og stóðu nemendurnir sig frábærlega. Steinar Logi náði verðlaunasæti,
varð í þriðja sæti, en keppendur úr Lundarskóla hlutu 1. og 2. sæti.
Ólafur skólastjóri tók nokkrar myndir af keppendum og áhorfendum sem má
finna hér.
Lesa meira
08.03.2012
Það er ekki vitað í dag hvenær Síðuskóli fær úthlutað dag í fjallinu. Það verður tilkynnt um leið og verður
ákveðið.
Lesa meira
27.02.2012
Þann 30. janúar 2012 fóru nemendur
úr Síðuskóla í Rauðakrossinn og afhentu fatnað sem þeir hafa prjónað og saumað í vetur. Fatnaðurinn er að hluta saumaður uppúr gömlum fötum. Verkefnið heitir Föt sem
framlag.
Rauðikrossinn hefur sennt fatapakka m.a. til
Hvíta Rússlands. Það er gott og þarft að geta lagt til samfélagsins vinnu sína með gleði. Hér má sjá myndir af
fatnaðinum og afhendingunni.
Lesa meira
20.02.2012
Dagana 22. -24. febrúar er vetrarfrí í grunnskólum Akureyrar. Frístund er opin frá 8:00-16:15 fyrir þá sem þurfa á gæslu
að halda. Njótið vel frídaganna.
Kennsla hefst aftur mánudaginn 27. febrúar samkvæmt stundaskrá.
Bestu kveðjur, starfsfólk Síðuskóla
Lesa meira
17.02.2012
Í gær, fimmtudaginn 16. febrúar, kepptu 11 valdir nemendur úr 7. bekkjunum í Stóru upplestrarkeppninni. Velja þurfti þrjá fulltrúa
til að keppa í aðalkeppni grunnskólanna á Akureyri í mars. Það var erfitt val fyrir dómnefnd því þarna voru margir mjög
góðir upplesarar.
Að þessu sinni voru þrír drengir hlutskarpastir. Tveir aðalmenn voru valdir Jörundur Guðni Sigurbjörnsson og Steinar Logi Stefánsson,
varamaður var valinn Ríkharður Ólafsson. Hér má sjá nokkrar myndir frá keppninni.
Lesa meira
15.02.2012
BOLLA - BOLLA - BOLLA
Bolludagurinn er á mánudaginn og munu nemendur í 10.bekk að því
tilefni selja nemendum bollur til styrktar útskriftarferðalagi í vor.
Bollurnar sem hægt er að velja um eru gerbollur með súkkulaði, sultu og
rjóma og vatnsdeigsbollur með súkkulaði, sultu og rjóma. Hægt er að kaupa bollur án sultu eða rjóma en þá verður
það að koma fram á pöntunarblaði. Nemendur fengu í dag, miðvikudag, blað í hendurnar þar sem hægt er að velja
bollur.
Skila þarf blöðum á fimmtudag eða föstudag ásamt pening.
Nemendur fá bollurnar í sínum heimastofum á mánudag nema 8. - 10.bekkur
sem fær þær afgreiddar í sjoppunni.
Verð:
Gerbollur - 330
krónurVatnsdeigsbollur - 330 krónurBerlínarbollur - 180 krónur
BOLLA - BOLLA - BOLLA
Lesa meira
07.02.2012
Árshátíð Síðuskóla verður haldin á fimmtudag og föstudag.
Engin kennsla verður þessa daga. Skemmtun og ball fyrir 7. – 10. bekki verður á föstudagskvöldið. Nemendur í 1. – 6. bekk mæta
allir á skemmtun og ball á föstudagsmorgun. Skemmtunin hefst kl. 10:00 og stendur til u.þ.b. 12:30. Auk þess sýna þeir á einni sýningu fyrir
foreldra á fimmtudag eða föstudag, sjá dagskrá hér fyrir neðan.
Góða skemmtun!
>Dagskrá árshátíðarsýninga<
Sjáið myndirnar!
Lesa meira