ÍSAT

Útivistardagur

Í gær var útvistardagur Síðuskóla. Þá fóru allir nemendur og starfsmenn í Hlíðarfjall og skemmtu sér vel. Sumir renndu sér á skíðum á meðan aðrir renndu sér á brettum, þotum, sleðum eða fengu sér göngutúr í góða veðrinu. Allir komu heim með bros á vör eftir góðan dag í fjallinu. Hér má sjá myndir frá útvistardeginum.
Lesa meira

Útivistardagur í Hlíðarfjalli 2018

Fimmtudaginn 1. febrúar er fyrirhugaður útivistardagur í Hlíðarfjalli. Þá fara allir nemendur skólans með rútu í Hliðarfjall að morgni og koma til baka kringum hádegi. Þeir sem eru í 6. bekk og eldri mega vera lengur með skriflegu leyfi foreldra.  Spáð er köldu veðri þennan dag og afar mikilvægt að vera vel klæddur. Muna eftir góðu nesti sem auðvelt er að neyta utandyra.  Skóladegi  lýkur kl.  12:30 og nemendur sem skráðir eru í frístund fara þangað en aðrir fara heim.  Nemendur sem eru skráðir í mat borða þegar þeir koma úr fjallinu. • Hjálmaskylda er þennan dag og engar undantekningar leyfðar. Hægt er að fá lánaða hjálma í fjallinu.
Lesa meira

Skákdagurinn 26. janúar

Föstudaginn 26. janúar er Skákdagurinn haldinn hátíðlegur um allt land. Víða er teflt s.s. í skólum, vinnustöðum, heitum pottum, kaffihúsum og dvalarheimilum svo dæmi séu nefnd. Í Síðuskóla fengum við félaga úr Skákfélagi Akureyrar í lið með okkur og buðum upp á skákfræðslu og tækifæri til tefla í 5. - 10. bekk. Fjölmargir nemendur þáðu boðið og á meðfylgjandi myndum má sjá ánægða og áhugasama nemendur við taflborðin. Hugmyndin er að bjóða upp á skólaskákmót í framhaldi af þessum viðburði en það verður dagsett og auglýst síðar. Skákdagurinn 2018 er tileinkaður Friðriki Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga og fv. forseta Alþjóða skáksambandsins. Friðrik verður 83ára á Skákdaginn sjálfan. Myndir  
Lesa meira

Tónleikar í Hofi

Laugardaginn 27. janúar 2018 kl 14 verða barnatónleikar í Hömrum í Hofi. Er þessi viðburður hluti af 75 ára afmælisviku Tónlistarfélags Akureyrar. Blásarakvintettinn NorðAustan 5-6 flytur hið sívinsæla tónlistarævintýri um Pétur og úlfinn eftir Prokofiev. Flytjendur eru Hildur Þórðardóttir flautuleikari, Gillian Haworth óbóleikari, Berglind Halldórsdóttir klarinettuleikari, Dagbjört Ingólfsdóttir fagottleikari og Ella Vala Ármannsdóttir hornleikari. Sögumaður er Ívar Helgason. Miðaverð er 2500 krónur, 20% afsláttur fyrir félagsmenn Tónlistarfélags Akureyrar, frítt fyrir börn yngri en 12 ára í fylgd með fullorðnum. Hægt er að kaupa miða á mak.is og í miðasölu Hofs. Styrktaraðilar þessara tónleika eru Akureyrarstofa, Menningarfélag Akureyrar, Kea, Norðurorka og Rannís.
Lesa meira

Foreldraviðtöl

Næstkomandi mánudag og þriðjudag, 22. og 23. janúar, eru foreldraviðtöl í Síðuskóla. Þá daga mæta foreldrar til viðtals við umsjónarkennara með barni sínu. Aðrir kennarar verða einnig til viðtals í sínum heimastofum eftir þörfum.
Lesa meira

20.000 hrósmiða hátíð

Á föstudaginn sl. fögnuðum við þeim áfanga að hafa náð 20.000 hrósmiðum. Haldin er hátíð þegar þessum fjölda hrósmiða er náð þar sem allir nemendur taka þátt. Í ár dönsuðu allir Zumba í íþróttahúsinu undir stjórn Þórunnar Sigurðardóttur og Kolbrúnar Sveinsdóttur, sem jafnframt er starfsmaður skólans. Gaman var að sjá hvað allir skemmtu sér vel í dansinum eins og sést á myndunum sem fylgja fréttinni, en þær má sjá hér. Einnig má sjá skemmtileg myndbönd af hátíðinni hér.
Lesa meira

Erasmus+ í Síðuskóla

Síðuskóli er þátttakandi í Erasmus+ verkefni með 4 öðrum skólum í Evrópu. Verkefnið heitir Traces of Europe og snýst um það að þessir 5 skólar kynna hver fyrir öðrum kennsluaðferðir sem þeir nota og hafa nýst vel.  Pólland lagði inn í verkefnið aðferðina „lært í gegnum leik“ (Game based learning).  Við í Síðuskóla eigum að reyna að kokma þessum aðferðum áleiðis í aðra skóla og var það gert nú í byrjun janúar er farið var í Brekkuskóla og nokkrir námsleikir kynntir fyrir kennurum þar.  Vonandi ná einhverjir kennarar að nýta sér þessa leiki. Myndir frá heimsókninni í Brekkuskóla má sjá hér.
Lesa meira

Jólakveðja

Starfsfólk Síðuskóla óskar nemendum, foreldrum og öðrum velunnurum skólans gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með þökk fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. Nemendur mæta aftur í skólann fimmtudaginn 4. janúar samkvæmt stundaskrá.
Lesa meira

Litlu jólin 21. desember

Síðasti skóladagurinn í Síðuskóla fyrir jólafrí er 21. desember. Þá verða litlu jólin haldin frá klukkan 9:00-11:00. Dagskrá er með hefðbundnu sniði. Það mæta allir í sínar heimastofur klukkan 9:00. Það horfa allir á jólaleikrit 6. bekkjar á sal sem tekur um 20 mínútur en dvelja svo með umsjónarkennara í heimastofum. Þangað koma jólasveinar í heimsókn og færa nemendum mandarínur.  Um klukkan 10:00 verður farið inn í íþróttasal en þar munu allir nemendur skólans ganga saman kringum jólatré og syngja saman gömul og góð jólalög. Dagskrá lýkur klukkan 11:00 þennan morgun. Þá fara nemendur heim, nema þeir sem skráðir eru í Frístund þennan dag. Skóli hefst aftur að jólaleyfi loknu fimmtudaginn 4. janúar samkvæmt stundaskrá.
Lesa meira

Grenndargralið í Síðuskóla

Leitinni að Grenndargralinu er lokið þetta skólaárið en það var nemandi í 9. bekk, Halldór Birgir Eydal sem fann Grenndargralið í ár. Að launum fær hann verðlaunapening og veglegan farandbikar sem geymdur verður í skólanum næsta árið eða þar til keppninni lýkur að ári. Þeir sem þátt tóku í leitinni og skiluðu svörum við öllum þrautunum fengu einnig afhent viðurkenningarskjal fyrir framúrskarandi þátttöku.  Myndir af sigurvegara leitarinnar og nemendum sem skiluðu sínu með sóma.
Lesa meira