ÍSAT

Heimkoma 7. bekkjar

Nemendur og kennarar 7. bekkjar lögðu af stað frá skólabúðunum Reykjaskóla klukkan 11:45 í dag. Reikna má með heimkomu rétt um klukkan 14:30 í dag.
Lesa meira

7. bekkur á Reykjum

7. bekkur í Síðuskóla er staddur í skólabúðunum að Reykjum þessa viku. Með Síðuskóla eru tæplega 60 börn frá Hólabrekkuskóla og eru krakkarnir saman í allskonar hópavinnu. Það er unnið m.a. með náttúrufræði, sögu og fjármál. Allir fara á byggðasafnið, skoða umhverfið og fara í íþróttir og sund. Á kvöldin eru kvöldvökur sem krakkarnir stjórna sjálfir og oft mikið fjör. Myndir frá ferðinni má finna hér og bætast myndir við á hverjum degi. Fimmtudagur: Í dag fór fram hópmyndataka og hárgreiðslukeppni. Myndir frá henni sjást hér. Föstudagur: Nokkrar myndir frá lokadeginum, kveðjustund o.fl.
Lesa meira

Fótboltamót mið- og unglingastigs

Að undanförnu hafa verið haldin fótboltamót á unglingatigi og á miðstigi. Keppt er á milli bekkja með innanhúsfótboltafyrirkomulagi. Keppnirnar hafa reynst hin besta skemmtun fyrir krakkana og hart barist en heiðarlega. Sigurvegarar á unglingastigi voru stelpurnar í 10. ÞÓ og strákarnir í sama bekk báru sigur úr býtum í piltaflokknum. Á miðstigi þurfti 6. bekkur að senda eitt lið vegna fámennis og stóð það uppi sem sigurvegari. Í fimmta bekk var það sama uppi á teningnum hjá stelpunum, eitt lið frá þeim en sigurvegarar þar urðu 7.JS. Hér má sjá myndir sem teknar voru í einum leiknum og á verðlaunaafhendingunni.
Lesa meira

Lokahátíð stóru upplestrarkeppninnar

Lokahátíð stóru upplestrarkeppninnar á Akureyri fór fram í gær. Fulltrúar Síðuskóla í keppninni, þær Elísabet Eik Jóhannsdóttir og Rakel Alda Steinsdóttir, stóðu sig með stakri prýði og má skólinn vera stoltur af þeirra flutningi og frammistöðu. Varamaður þeirra var Þorgerður Katrín Jónsdóttir. Á þessari hátíð er hefð fyrir að nemendur 7. bekkjar flytji tónlistaratriði og að þessu sinni spilaði Aldís Þóra Haraldstóttir á flautu og Byndís Anna Magnúsdóttir á píanó. Fleiri myndir
Lesa meira

Samvera á sal - 100 miða hátíð o.fl.

Í morgun söfnuðust nemendur skólans á sal þar sem tíu nemendur sem dregnir höfðu verið út í 100 miða leik skólans, voru tilkynntir. 100 miða leikurinn er árviss viðburður í skólastarfinu sem hluti af SMT skólafærninni. Þeir nemendur sem dregnir voru út fóru svo með stjórnendum í kynningarferð á N4 þar sem starfsemi þess fyrirtækis var kynnt fyrir þeim, og þegar í skólann var komið aftur fengu nemendurnir pizzu og ís. Formanni nemendafélagsins, Halldóri Birgi Eydal, var afhent viðurkenning fyrir Lífshlaupið en nemendur Síðuskóla urðu í þriðja sæti. Það voru þeir Viðar og Ingi Þór frá ÍSÍ sem afhentu viðurkenninguna. Einnig var tilkynnt við þetta tilefni að nemandi í úr 4. bekk, Sveinar Birnir Sigurðsson, átti verðlaunamynd í teiknisamkeppni Mjólkursamsölunnar í ár. Alls fengu 10 myndir viðurkenningu, en yfir 1400 myndir bárust í keppnina, en gaman er að segja frá því að í fyrra fékk nemandi Síðuskóla einnig viðurkenningu í þessari sömu keppni. Myndir frá þessari skemmtilegu samveru má sjá hér, en myndin sem fylgir fréttinni er af þeim nemendum sem dregnir voru út í 100 miða leiknum.
Lesa meira

Stóra upplestrarkeppnin

Miðvikudaginn 21. febrúar sl. var undankeppni stóru upplestrarkeppninnar haldin hér í Síðuskóla. Þá lásu 12 nemendur úr 7. bekk sem komust höfðu áfram eftir 1. umferð. Þau stóðu sig öll mjög vel og voru skólanum til sóma. Valdir voru tveir aðalfulltrúar og einn varafulltrúi til að taka þátt í úrslitum Stóru upplestrarkeppninnar sem haldin verður í Kvosinni í Menntaskólanum á Akureyri. Þeir nemendur úr Síðuskóla sem valdir voru í ár eru Rakel Alda og Elísabet Eik sem aðalmenn og Þorgerður Katrín til vara. Hér má sjá myndir frá keppninni, en myndin sem fylgir fréttinni er af vinningshöfum ásamt dómurunum, þeim Helgu Hauksdóttur og Sigríði Ásu Harðardóttur.
Lesa meira

Skákmót í Síðuskóla

Í dag var haldið skákmót Síðuskóla. Nemendum í 5. - 10. bekk var boðið að taka þátt og skráðu sig nokkrir nemendur til leiks. Fyrirkomulagið var þannig að tefldar voru samtals 5 skákir á tíma og nýjir andstæðingar í hverri umferð. Aron Sveinn Davíðsson í 9. bekk vann allar sínar skákir en keppnin var ansi jöfn og úrslit ekki ljós fyrr en eftir síðustu umferð. Við óskum Aroni til hamingju og þökkum keppendum öllum fyrir góða og drengilega keppni. Áskell Örn Kárason frá Skákfélagi Akureyrar fær bestu þakkir fyrir umsjón með framkvæmd. Þess má geta að Skákfélagið gaf sigurvegaranum eignarbikar. Myndir
Lesa meira

Fyrir foreldra verðandi 1. bekkinga, haust 2018

Opið hús í grunnskólum Akureyrar  2018  verður 22. og 23. febrúar, frá kl. 09:00 - 11:00. Skólunum er skipt niður á þessa tvo daga eins og hér segir: Fimmtudaginn 22. febrúar 2018, kl. 09:00 - 11:00  Brekkuskóli, Glerárskóli, Lundarskóli og Naustaskóli Föstudaginn 23. febrúar 2018 kl. 09:00 - 11:00    Giljaskóli, Oddeyrarskóli og Síðuskóli
Lesa meira

Starfskynningar í 8. bekk

Síðustu daga hafa nemendur í 8. bekk heimsótt og kynnt sér starfsemi hinna ýmsu fyrirtækja og starfa. Unnið var úr upplýsingum í skólanum. Allir hópar gerðu veggspjöld og útbjuggu bás og foreldrum og forráðamönnum var síðan boðið í heimsókn til að kíkja á afraksturinn og nemendum í 7. bekk og unglingadeild. Myndir  
Lesa meira

Heilnótan 2018

Heilnótan er samkeppni í tónsmíðum fyrir 4.-10. bekk í grunnskólum á Akureyri. Ungt fólk er hvatt til að senda inn tónsmíðar óháð stíl á rafrænu formi, nótnaskrift eða með hljóðritun. Lengd verks má vera 2-7 mínútur. Skilafrestur er 30. mars 2018 á netfangið tonlistarfelagakureyrar@gmail.com Dómnefnd verður skipuð  fagfólki sem velur úr innsendum tónsmíðum. Þau verk sem verða valin verða flutt í byrjun maí af höfundi eða því tónlistarfólki sem höfundur velur í samstarfi við stjórn tónlistarfélagsins.
Lesa meira