27.02.2012
Þann 30. janúar 2012 fóru nemendur
úr Síðuskóla í Rauðakrossinn og afhentu fatnað sem þeir hafa prjónað og saumað í vetur. Fatnaðurinn er að hluta saumaður uppúr gömlum fötum. Verkefnið heitir Föt sem
framlag.
Rauðikrossinn hefur sennt fatapakka m.a. til
Hvíta Rússlands. Það er gott og þarft að geta lagt til samfélagsins vinnu sína með gleði. Hér má sjá myndir af
fatnaðinum og afhendingunni.
Lesa meira
20.02.2012
Dagana 22. -24. febrúar er vetrarfrí í grunnskólum Akureyrar. Frístund er opin frá 8:00-16:15 fyrir þá sem þurfa á gæslu
að halda. Njótið vel frídaganna.
Kennsla hefst aftur mánudaginn 27. febrúar samkvæmt stundaskrá.
Bestu kveðjur, starfsfólk Síðuskóla
Lesa meira
17.02.2012
Í gær, fimmtudaginn 16. febrúar, kepptu 11 valdir nemendur úr 7. bekkjunum í Stóru upplestrarkeppninni. Velja þurfti þrjá fulltrúa
til að keppa í aðalkeppni grunnskólanna á Akureyri í mars. Það var erfitt val fyrir dómnefnd því þarna voru margir mjög
góðir upplesarar.
Að þessu sinni voru þrír drengir hlutskarpastir. Tveir aðalmenn voru valdir Jörundur Guðni Sigurbjörnsson og Steinar Logi Stefánsson,
varamaður var valinn Ríkharður Ólafsson. Hér má sjá nokkrar myndir frá keppninni.
Lesa meira
15.02.2012
BOLLA - BOLLA - BOLLA
Bolludagurinn er á mánudaginn og munu nemendur í 10.bekk að því
tilefni selja nemendum bollur til styrktar útskriftarferðalagi í vor.
Bollurnar sem hægt er að velja um eru gerbollur með súkkulaði, sultu og
rjóma og vatnsdeigsbollur með súkkulaði, sultu og rjóma. Hægt er að kaupa bollur án sultu eða rjóma en þá verður
það að koma fram á pöntunarblaði. Nemendur fengu í dag, miðvikudag, blað í hendurnar þar sem hægt er að velja
bollur.
Skila þarf blöðum á fimmtudag eða föstudag ásamt pening.
Nemendur fá bollurnar í sínum heimastofum á mánudag nema 8. - 10.bekkur
sem fær þær afgreiddar í sjoppunni.
Verð:
Gerbollur - 330
krónurVatnsdeigsbollur - 330 krónurBerlínarbollur - 180 krónur
BOLLA - BOLLA - BOLLA
Lesa meira
07.02.2012
Árshátíð Síðuskóla verður haldin á fimmtudag og föstudag.
Engin kennsla verður þessa daga. Skemmtun og ball fyrir 7. – 10. bekki verður á föstudagskvöldið. Nemendur í 1. – 6. bekk mæta
allir á skemmtun og ball á föstudagsmorgun. Skemmtunin hefst kl. 10:00 og stendur til u.þ.b. 12:30. Auk þess sýna þeir á einni sýningu fyrir
foreldra á fimmtudag eða föstudag, sjá dagskrá hér fyrir neðan.
Góða skemmtun!
>Dagskrá árshátíðarsýninga<
Sjáið myndirnar!
Lesa meira
06.02.2012
Fjölskyldudeild Akureyrarbæjar heldur Snillinganámskeið
fyrir krakka fædda 2002 og 2003 á vorönn. Námskeiði byrjar strax að loknu vetrarfríi 28. febrúar og lýkur 29. mars. Þetta
námskeið er ætlað krökkum með ADHD og skildar raskanir.
Nánari auglýsingu um námskeiðið
má finna hér og umsóknareyðublað hér.
Lesa meira
02.02.2012
Nemendur Síðuskóla (nema 7. bekkur sem er í Reykjaskólaferð) komu saman á sal 31. janúar til að ljúka 100 miða leiknum.
Tíu heppnir nemendur voru með hrósmiðana sína í verðlaunaröðinni og umbunin að þessu sinni er að fara í keilu með
skólastjóranum. Nemendur voru til fyrirmyndar á sal eins og vera ber við slíkt tækifæri.
Nöfn vinningshafa eru: Bergur 6. SEB, Bryndís Huld 6. HL, Elmar Már 1. MB, Esra 10. B, Eva María 9. B, Freyr Wium 5. ASR, Guðrún 8. KLM,
Jenný 7. JÁ, Marko 5. TS, Steinunn 6. SEB.
Til upprifjunar um leikinn má geta þess að tilgangur hans er að hvetja nemendur til að fara eftir SMT skólareglum. 10 nemendur fá sérmerktan
umbunarmiða þá 10 daga sem leikurinn stendur yfir eða samtals 100 miða. Nemendur sem fá miða frá starfsmanni setja þá á 100 miða
spjaldið og eiga með því möguleika á að vinna í leiknum. Vinningsröðin er ákveðin fyrirfram af skólastjóra svo og
umbunin.
Lesa meira
02.02.2012
7. bekkur er í skólabúðunum í Reykjaskóla þessa vikuna. Það er mikið að gera og allir mjög duglegir að taka
þátt. Það eru tímar í fjármálafræði og náttúrufræði, stöðvaleikur og íþróttir og
sögustundir á Byggðasafninu. Hópurinn stendur sig mjög vel og þá ekki síst á kvöldvökunum þar sem allskonar snillingar úr
Síðuskóla eru að slá í gegn.
Hér má sjá myndir frá leik og starfi og fleiri myndir eru á leiðinni.
Lesa meira
27.01.2012
Á miðvikudag var
Skákdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt. Sigurður Arnarson tefldi fjöltefli við rúmlega 30 nemendur úr unglingadeild í tilefni
dagsins og eru meðfylgjandi myndir teknar af viðburðinum.
Leikar fóru þannig að Víðir Steinar Tómasson náði jafntefli en öðrum skákum lauk með sigri
Sigurðar eftir harða baráttu.
Hér má sjá myndir frá fjölteflinu.
Lesa meira
26.01.2012
Miðvikudaginn 25.janúar komu börn af Krógabóli í
heimsókn til 10.B í Síðuskóla. Börnin eru á Spóanum þar og komu, lituðu og dönsuðu með 10.bekkingum. Það var
mjög erfitt að greina hvor hópurinn skemmti sér betur en óhætt er að segja að þetta braut upp dag beggja hópanna og gerði þeim
skammdegið aðeins léttara. Hókí pókí var að sjálfsögðu dansað enda uppáhaldsdans nemendanna í 10.B auk þess
sem Spóarnir fengu aðeins að hlusta á Latabæ - en ekki hvað...
Krakkarnir af Spóanum eru búnir að bjóða okkur í
heimsókn til þeirra síðar í vetur og munum við örugglega þiggja það heimboð og mæta galvösk á heimavöll
þeirra. Myndir frá heimsókninni má sjá hér.
Takk fyrir komuna krakkar.
10.B í Síðuskóla.
Lesa meira