Fréttir

Stóra upplestrarkeppnin sett í Síðuskóla

Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk 2011 – 2012 Á Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, var Stóra upplestrarkeppnin sett á sal Síðuskóla. Skólastjóri flutti ávarp og sagði frá keppninni sem nú er haldin í 12. sinn á Akureyri. Sagði hann að keppendur frá Síðuskóla hefðu alltaf staðið sig vel og verið skólanum til sóma og hvatti hann nemendur til þess að leggja sig fram. Einnig sagði hann frá því að þátttaka í upplestrarkeppninni hefði aldrei verið meiri, nú taka allir 7. bekkir á landinu þátt í henni.  Guðrún á bókasafninu ræddi um íslenskt mál og sagði frá Jónasi Hallgrímssyni og nemendurnir Kristrún Jóhannesdóttir, Oddur Pálsson og Ósk Tryggvadóttir, sem voru fulltrúar skólans í keppninni í fyrra, fluttu ljóð fyrir nemendurna í 7. bekk. Skólastjóri setti síðan keppnina formlega og nemendur fengu bókamerki keppninnar afhent og bækling til foreldra. Að dagskrá lokinni var útbúið kaffihús í stofum 7. bekkinga og lásu þau ljóð fyrir hvert annaða eftir Jónas Hallgrímsson við kertaljós og kaffihúsastemningu. Sjá má meira um Stóru upplestrarkeppnina á  heimasíðu Radda og myndir frá setningunni hér.
Lesa meira

Brunaæfing á D gangi!

Í dag var brunaæfing á D gangi, þar sem allir, nemendur og starfsfók, átt að forða sér út um gluggann á stofunni sem þeir voru staddir í þegar bjallan glumdi.  Teknar voru nokkrar myndir á meðan allir mjökuðust út og má sjá þær hér.
Lesa meira

Dagur íslenskrar tungu

Miðvikudaginn 16. nóvember er Dagur íslenskrar tungu og þá hittast allar unglingadeildir skólanna á Akureyri. 8. bekkingar hittast í Brekkuskóla og 10. bekkingar í Lundarskóla, allir 9. bekkingar  koma saman í Síðuskóla. Sérstök dagskrá er í skólunum sem taka á móti unglingunum og að þessu sinni er dagurinn tileinkaður íslenskum samtímaskáldum. Þessi háttur hefur verið hafður á undanfarin ár og tekist vel. Einnig fara nemendur í 4. bekk og lesa upp fyrir börn í leikskólum hér í nágrenninu. Í Háskólanum á Akureyri er dagskrá í tilefni dagsins og er hún helguð Jónasi Hallgrímssyni og hefst klukkan 17:00 og stendur til 18:30. Meðal dagskrárliða er að börn úr grunnskólum í Eyjafirði flytja ljóð eftir Jónas og segja frá nýyrðasmíði hans. Auður Katrín Ægisdóttir í fjórða bekk  mun þar flytja ljóð fyrir hönd Síðuskóla.
Lesa meira

Vinátta

Vinátta er eitt af einkunnarorðum Síðuskóla. Dagana 7.-11. nóvember leggja nemendur og starfsfólk sérstaka áherslu á vináttuna. Allir leggja sitt af mörkum til að minna á hversu vináttan er mikils virði.  Vinnáttan snýst um svo margt, ekki eingöngu um besta vininn eða bestu vinina. Við hugsum líka um þá sem eru einir og skiljum engan útundan. Við hjálpumst öll að og erum góð hvert við annað. Munuð ætíð að ein leið til að eignast vin er að vera vinur sjálfur.
Lesa meira

Haustfrí 24. og 25. október

Kæru foreldrar og forráðamenn. Þemadögum var að ljúka hjá  okkur og fóru þeir vel fram að venju. Nemendur unnu mörg skemmtileg verkefni, fóru í vettvangsferðir og fengum við marga góða gesti í skólann. Myndir frá þemadögum má sjá hér.  Nú er komið að haustfríi mánudag og þriðjudag 24. og 25. október. Við vonum að sem flestir sjái sér fært að gera sér dagamun með börnum sínum og njóti vel  þessara daga. Frístund verður opin frá klukkan 8:00 – 16:00 fyrir þá sem þurfa að nýta sér þá þjónustu og hafa pantað. Skólastarf hefst aftur samkvæmt stundaskrá  miðvikudaginn 26. október. Með haustkveðju, starfsfólk Síðuskóla.  
Lesa meira

Norræna skólahlaupið

Síðuskóli, nemendur og starfsfólk, tók þátt í Norræna skólahlaupinu í ár eins og áður. Fimmtudaginn 6. október, rétt fyrir klukkan 10, brunuðu allir af stað og hlupu hver sem betur gat.  Veittar voru viðurkenningar fyrir besta árangur á hverju stigi fyrir sig, hjá stelpum og strákum. Margir nemendur stóðu sig ótrúlega vel og virkilega gaman að sjá áhugann hjá öllum þessum stóra hópi. Eftirfarandi nemendur hlutu viðurkenningu fyrir sína frammistöðu. 8.-10. beAndri Björn 8. SASverrir Örn 10. bekkSvavar 8. KLM Helena 10. BEErla Sigríður 9. BEAuður Kristín 10. B  5.-7. beBjarki 7. JÁSævar Þór 6. HLSindri Már 5. ASR Snædís Sara 7. JÁHulda Björg 6. SEBHelga K.. 7. SÁB  1.-4. BEElmar Þór 4. JSElvar Örn 4. KHBergsveinn Ari 4. JS Eva Björk 4. KHBirgitta 4. KHHugrún 4. KH Myndir úr skólahlaupinu munu birtast hér.
Lesa meira

Danskur sendikennari í Síðuskóla

Danskur sendikennari, Mette Lybæch, hefur verið hjá okkur í Síðuskóla í 5 vikur.  Undanfarin 12 ár hefur verið mikil og góð samvinna á milli Menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur. Samvinnan felst í því að að tveir danskir kennarar koma til Íslands með það að markmiði að aðstoða og vinna með íslenskum dönskukennurum þar sem megináhersla er lögð á að efla talað mál. Mette segir það forréttindi að hafa fengið aðra af  þessum eftirsóttu stöðum. Að auki finnst  henni hún sérlega heppin að fá að  vera hér á Akureyri. Hún verður hér í vetur og mun vinna með dönskukennurum í öllum grunnskólum Akureyrar. Læs mere om projektet.
Lesa meira

ICT4U Comenius verkefni Síðuskóla

Þessa dagana eru 6 nemendur á ferðalagi á vegum Síðuskóla í Ungverjalandi. Nemendurnir koma úr 9. og 10.bekk og eru það allt stelpur að þessu sinni. Ferðin hefur gengið vel og allir eru heilir heilsu, hressir og kátir. Menningarmunur landanna hefur reyndar komið eilítið á óvart og eru dömurnar sem hér eru afar hneykslaðar á reykingarvenjum Ungverja sem kveikja sér í sígarrettum þar sem þeir standa og gildir þá einu hvar þeir eru. Þetta myndi ekki gerast uppi á Fróni.   Stelpurnar vinna hörðum höndum að verkefninu sem snýst um forrit sem geta nýst kennurum í kennslustofum og eru ný af nálinni. Forritin eru til þess fallin að nemendur fái aðra sýn á verkefni sem lögð eru fyrir og hægt er að nota þau líka til að fá nýja nálgun á viðfangsefnin auk þess sem skil á verkefnum verða fjölbreyttari þegar um fleiri leiðir er að velja en að skrifa ritgerð eða gera glæru sýningu. Við höfum bækistöð í Eger en skóli þar er samstarfsskóli okkar í verkefninu ásamt skólum í Belgíu, á Spáni og í Grikklandi en þangað er fyrirhuguð ferð í vor. Eger er í 130 km fjarlægð frá Budapest og förum við þangað á þriðjudag í skoðunarferð. Í dag, mánudag, er hins vegar skipulögð skoðunarferð um Eger og okkur sýnt það helsta í borginni t.d. kirkjuna sem er sú næst stærsta í Ungverjalandi.  Það bera sig sem sagt allir vel hér í landi Ungverja og hlakka til að sjá og heyra meira af landinu.    Bibbi, umsjónarmaður Comeniusverkefnis Síðuskóla
Lesa meira

Umhverfisnefnd Síðuskóla

Ný umhverfisnefnd hefur tekið til starfa í skólanum. Fyrsti fundur var haldinn í gær og gekk hann mjög vel. Farið var yfir verkefni sem vinna á að næstu vikur og aðeins byrjað að marka stefnu fyrir veturinn. Fulltrúar nemenda í nefndinni fyrir: 2. bekk eru Almar Ingi Jóhannsson og Baldur Freyr Jóhannsson, varamenn þeirra eru Klara Fönn Arnedóttir og Eiríkur Gunnar Sigurðsson. 4. bekk eru Elvar Örn Jónsson og Kristján Páll Steinsson, varamenn þeirra eru Bergsveinn Ari Baldvinsson og Unnar Hafberg Rúnarsson. 6. bekk eru Elmar Blær Hlynsson og Sævar Þór Fylkisson, varamaður þeirra er Hulda Margrét Sveinsdóttir. 8. bekk eru Ásdís María Antonsdóttir og Svavar Sigurður Sigurðarson, varamenn þeirra eru Gabríel Ómar Stefánsson og Óskar Björn Jóhannsson. 10. bekk eru Alda Rós Ágústsdóttir, Elfa Jónsdóttir, Helena Rut Pétursdóttir og Þóranna Lilja Þórbergsdóttir. Auk nemenda eru í nefndinni Helga Ingibjörg Jóhannsdóttir en hún er fulltrúi foreldra og fyrir starfsfólk eru Arnfríður Jóhannsdóttir, Gunnar Þór Jónsson, Hafdís Kristjánsdóttir, Sigríður Ása Harðardóttir og Sigrún Sigurðardóttir.
Lesa meira

Ýmislegt framundan

Framundan eru nokkrir öðruvísi dagar á skóladagatalinu.  Mánudaginn 10. október fá nemendur frí í skólanum á skipulagsdegi kennara, þá er Frístund opin til hádegis. Þriðjudaginn 18. október og miðvikudaginn 19. október eru þemadagar í skólanum. Þá verður aðeins brotið upp hefðbundið skólastarf og unnið í hópum en ekki í föstum bekkjum. Þemað 2011 er heimabyggðin. 24. og 25. október, mánudag og þriðjudag, er síðan komið að haustfríi Síðuskóla. Frístund er opin í haustfríi.
Lesa meira