Fréttir

Skólaslit Síðuskóla

Í dag var Síðuskóla slitið, 1. - 9. bekkir mættu á skólaslit í skólanum í morgun og 10. bekkur mætti svo í Glerárkirkju þar sem glæsileg útskriftarathöfn fór fram. Um leið og við óskum 10. bekk innilega til hamingju með útskriftina óskum við öllum gleðilegs sumars og þökkum fyrir samstarfið í vetur.
Lesa meira

Umhverfisdagur og skólaslit

Síðasti skóladagur vetrarins var í dag og voru nemendur út um allan bæ með starfsfólki við leik og störf á síðari umhverfidegi vorsins. Veðrið lék við alla og heppnaðist dagurinn vel. Í lok dags komu svo allir saman í garðinum þar sem grillaðar voru pylsur. Hér má sjá myndir frá þessum skemmtilega degi. Við minnum svo á skólaslitin á morgun, þau er sem hér segir: Klukkan 9.00  1. - 4. bekkur Klukkan 10.00  5. - 9. bekkur Klukkan 15.00   10. bekkur Nemendur í 1.-9. bekk mæta fyrst á sal og þá mun skólastjórinn kveðja fyrir hönd skólans. Síðan fara nemendur í sínar heimastofur, fá vitnisburðarblöð eftir veturinn og kveðja sína umsjónarkennara. 10. bekkur ásamt aðstandendum og starfsfólk mæta í Glerárkirkju og síðan verður kaffi á eftir í skólanum.
Lesa meira

Afhending Grænfána

Í dag, 31. maí var Grænfáninn afhentur í Síðuskóla í 6. sinn en við fengum hann fyrst árið 2006. Athöfnin í dag var haldin í íþróttahúsi og var hátíðleg og skemmtileg. Veittar voru viðurkenningar fyrir myndasamkeppni í tengslum við umhverfismál og 4. bekkur sem henti minnstu í keppninni um minnstu matarsóunina fékk viðurkenningu. Þarna voru flutt tónlistaratriði og þrír fulltrúar nemenda í umhverfisnefnd fluttu stutt erindi. Hér má sjá nokkrar myndir frá þessari skemmtilegu athöfn.
Lesa meira

Söngsalur og verðlaunaafhending

Á föstudaginn sl. var söngsalur hjá okkur og úrslit í lestrarkeppninni kynnt í leiðinni. Þar voru veitt verðlaun á hverju stigi og síðan fékk bekkurinn sem las mest, verðlaun. Verðlaunahafarnir voru Bergur í 10. bekk, Halldór Birgir í 7. bekk, Svavar Máni Geislason í 5. bekk og Íris Embla í 3. bekk sem fengu viðurkenningu og 3. bekkur fékk bekkjarverðlaunin, en hann fær ísveislu. Á myndinni með fréttinni má sjá verðlaunahafa fá verðlaunin afhent. Hér má líka sjá fleiri myndir frá verðlaunaafhendingunni og söngsal.  
Lesa meira

Húsdýr

Nemendur í 1. bekk hafa verið að læra um húsdýr. Þau hafa fengið fræðslu um dýrin, smíðað sitt eigið dýr, búið til hugtakakort og sögur um dýrið sitt. Þegar verkefninu var lokið buðu þau foreldrum sínum í skólann í kaffi og kökur og sögðu þeim frá húsdýrunum. Myndin sem fylgir fréttinni er frá þeirri sýningu.
Lesa meira

Fræðsluerindi í boði SAMTAKA

Samtaka er búið að fá Akureyringinn Sigga Gunnars, Útvarpsmann á K-100, til að koma og vera með fyrirlestur fyrir 8 – 10 bekk í öllum grunnskólunum á Akureyri dagana 17. og 18. maí næstkomandi og verður hann í Síðuskóla þriðjudaginn 17. maí klukkan 8:10. Í tilefni þess höfum við ákveðið í samstarfi við Sigga Gunnars að bjóða einnig foreldrum upp á fyrirlestur með honum og verður hann haldinn í Giljaskóla þriðjudagskvöldið 17. maí klukkan 20:00
Lesa meira

Vorhátíð Síðuskóla 2016

Hin árlega Vorhátíð Síðuskóla verður haldin sunnudaginn 8. maí n.k. klukkan 14:00-16:00 Hátíðin hefst með smá athöfn á sal skólans. Á vorhátíðinni verður margt í boði s.s.: Kökuhlaðborð, Andlitsmálning, Hoppukastalar, Tombóla, Grillaðar pylsur, Popp og svali, Töframaður, Söngatriði. Vonumst til að sjá sem flesta Foreldra- og kennarafélag Síðuskóla
Lesa meira

1. maí hlaup UFA

Að vanda stendur UFA fyrir 1. maíhlaupi í ár. Sem fyrr verður um keppni á milli skóla að ræða og eru nemendur hvattir til að taka þátt og skapa þannig skemmtilegan viðburð um leið og þeir spretta úr spori. Nánari upplýsingar má sjá í hér. 
Lesa meira

UNICEF hlaupið í Síðuskóla

UNICEF hlaupið var haldið í Síðuskóla í morgun. Það er fræðslu- og fjáröflunarverkefni þar sem íslenskum börnum gefst tækifæri á að fræðast um aðstæður jafnaldra sinna víða um heim og með hollri hreyfingu safna fé fyrir starfi í þágu barna í fátækari ríkjum heims. Nemendur fá fræðslu um líf barna í löndum sem UNICEF starfar í og safna áheitum í sínu nánasta umhverfi. Heitið er á frammistöðu þátttakenda í sérstöku "apahlaupi" sem fram fer á góðgerðardaginn. Það þýðir að styrktaraðilar heita upphæð að eigin vali á hverja vegalengd sem börnin eiga að reyna að hlaupa/ganga eins oft og þau geta og vilja innan ákveðins tímaramma. Við í Síðuskóla tókum að sjálfsögðu þátt og stóðu nemendur sig mjög vel, en myndir frá hlaupinu má sjá hér. Hér má svo sjá fleiri myndir af eldra stigi.
Lesa meira

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla

Kæru foreldrar og skólafólk.   Við minnum á að frestur til að skila inn tilnefningum til Foreldraverðlaunanna rennur út  á morgun, þann 27. apríl.   Hægt er að senda inn tilnefningar  hér:    Einnig er hægt að tilnefna sérstaklega til dugnaðarforkaverðlauna:  
Lesa meira