24.11.2016
Í dag var umbun hjá 1. bekk og fóru allir út að gera
snjókarla. Hér má sjá myndir og skemmtu allir sér vel, eins og sjá má á þessum
myndum.
Lesa meira
24.11.2016
Einkunnarorð Síðuskóla eru ábyrgð, virðing og vinátta. Við höldum þessum orðum á lofti alla daga en árlega höldum við vináttudag. Þá hittast vinaárgangar og gera eitthvað skemmtilegt í tilefni dagsins.
í dag fór 6. bekkur í heimsókn í íþróttatíma í 1. bekk og lék með og aðstoðaði yngstu nemendur skólans. í 2. bekk og 7. bekk spiluðu eldri og yngri nemendur saman en það var einnig gert í 3. bekk og 8. bekk, sem og 4. bekk og 9. bekk. Að þessu sinni ætla 5. bekkur og 10. bekkur að hittast á morgun þar sem önnur störf eru meira aðkallandi í dag. Hér má sjá myndir frá vináttudeginum.
Lesa meira
23.11.2016
Í gær voru kynnt úrslit í Lestrarkeppni Síðuskóla sem er
nýlokið. Hún fór þannig fram að nemendur 2. – 10. bekkjar söfnuðu klst. sem
þeir lásu, þær voru skráðar og í lokin var reiknaður út meðaltími á hvern
nemanda í hverjum bekk fyrir sig. Úrslitin urðu þau að 4. bekkur vann með 4,93
klst. að meðaltali á nemanda. Allir nemendur komu á sal í morgun þar sem
úrslitin voru kynnt. FOKS, Foreldra- og kennarafélag Síðuskóla, gaf
verðlaunin sem voru pizzuveisla og komu þeir Sigmundur og Heimir og afhentu gjafabréf. Myndin sem fylgir fréttinni er af verðlaunabekknum, en hana má
einnig sjá hér.
Lesa meira
16.11.2016
Í dag, 16. nóvember, minnumst við fæðingardags Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu. Í skólanum er hefð fyrir því að brjóta upp hversdagsleikann á þessum degi og njóta þess að nýta tungumálið okkar á fjölbreyttan hátt.
Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk og litla upplestrarkeppnin í 4. bekk voru settar á sal skólans við hátíðlega athöfn. Síðan tekur við æfingatímabil sem lýkur með lokakeppni í vor. Hér má sjá myndir frá setningunni.
Lesa meira
15.11.2016
Landsamband hjólreiðamanna (LSH) sendi skólum landsins ósk
um aðstoð við að kanna reiðhjólanotkun grunn- og framhaldsskólanema á þessu
skólaári. Um er að ræða mánaðarlega talningu hjóla og upplýsingar um viðeigandi
geymslubúnað s.s. hjólagrindur, við skólann.
Fyrsta talning fór fram á vegum sérdeildar og er skemmst frá
því að segja að hjólin voru 104 talsins og hjólagrindurnar 110. Hins vegar eru
þær illa nýttar. Ennfremur er eftirtektarvert hversu mörg hjólin voru án
ljósabúnaðar og bjöllu sem er áhyggjuefni þar sem mikið myrkur er úti þegar við
leggjum af stað í skólann á morgnana.
Þetta er skemmtilegt verkefni sem áhugavert verður að
fylgjast með.
Lesa meira
14.11.2016
Nemendur 5. bekkjar hafa undanfarna föstudaga verið að læra félagsvist undir leiðsögn kennara sinna, þeirra Huldu og Hrannar. Markmiðið er að grípa í spilin á hverjum föstudegi núna í nóvember. Myndin sem hér fylgir er frá sl. föstudegi þegar nemendur spiluðu félagsvist, og ekki annað sjá en allir skemmti sér hið besta.
Lesa meira
11.11.2016
Í dag, 11. nóvember er þemadagur í Síðuskóla. Að þessu sinni eru íþróttir, tónlist og dans þeir þættir sem við leggjum áherslu á. Nemendur var skipt í hópa eftir stigum þannig að á yngsta stigi eru aldursblandaðir hópar nemenda í 1. - 4. bekk, síðan blandast 5. - 7. bekkingar saman í hópa og unglingarnir í 8. - 10. bekk blandast og skiptast svo í sex hópa.
Hver hópur fer á 6-7 stöðvar um morguninn. Í boði eru útileikir, heilaleikfimi eða spil, fjöltefli, dans, jóga, fjöldasöngur, tónlistarsaga, tarsanleikur, orusta í íþróttasal svo dæmi séu nefnd. Nemendaráð tók að þessu sinni að sér undirbúning þemadags og kom með tillögu að útfærslu og hugmynd að verkefnum á stöðvum. Nokkrir nemendur af unglingastigi tóku að sér að stýra stöðvum með aðstoð kennara s.s. dansi og fræðslu og grunnæfingum í jui-jitsu.
Það er gaman þegar allir leggjast á eitt við að láta svona uppbrotsdag ganga upp. Allir sinntu sínu með sóma, bæði starfsfólk og nemendur :)
Hér má sjá nokkrar myndir frá deginum.
Lesa meira
08.11.2016
Í dag, 8. nóvember, er baráttudagur gegn einelti. Við í
Síðuskóla lögðum okkar að mörkum með ýmsum hætti. Í morgun var samverustund á sal þar
sem yngsta stigið kom saman, rætt var um samskipti og 4. bekkur sýndi leikrit
sem undirstrikaði mikilvæg atriði í samskiptum. Eftir löngu frímínútur fóru svo
allir út, bæði nemendur og starfsfólk og mynduðu vináttukeðju á skólalóðinni. Þrjár stúlkur í þriðja bekk útbjuggu vinabönd handa bekkjarfélögum, sjá nánar á bekkjarsíðu 3. bekkjar. Hérna má sjá myndir frá deginum.
Lesa meira
07.11.2016
Sú hefð hefur myndast að 7. bekkur taki þátt í verkefninu
,,Jól í skókassa“ sem er á vegum KFUM/K á Íslandi. Krakkarnir safna öllu
mögulegu í skókassana og leggur hvert þeirra fram 1200 kr. t.d. til að kaupa
nauðsynjavörur sem á að fara í kassana. Það eru munaðarlaus og fátæk börn í
Úkraníu sem fá jólaglaðning frá okkur en jólin hjá þeim er 7. janúar. Hér má sjá myndir frá því er 7. bekkur vann að verkefninu.
Lesa meira
04.11.2016
Í gær, fimmtudaginn 3. nóvember, fengum við góða heimsókn í
skólann. Þá kom blásarasveit úr Tónlistarskólanum, undir stjórn Ellu Völu
Ármannsdóttur, og spilaði fyrir nemendur á yngsta stigi. Ella Vala kynnti einnig hljóðfærin fyrir nemendum milli laga. Ekki var annað að sjá en nemendur skólans kynnu
vel að meta tónlistina, og var hljómsveitinni vel tekið. Myndin sem fylgir
fréttinni sýnir hljómsveitina og Ellu Völu stjórnanda hennar.
Lesa meira