Hafdís og Helena ásamt Ólafi skólastjóra og Önnu Sigrúnu umsjónarkennara
Fimmtudaginn 31. maí var nemendum, kennurum og starfsmönnum við
skóla Akureyrarbæjar veitt viðurkenning fyrir að hafa skarað fram úr í starfi. Þetta er í þriðja sinn sem skólanefnd stendur
fyrir samkomu sem þessari en hún er í samræmi við áherslur í skólastefnu Akureyrarbæjar.
Helena Ósk Hilmarsdóttir nemandi í
Síðuskóla hlaut viðurkenningu fyrir ótrúlega þrautseigju og dugnað. Helena gefst aldrei upp þó að á móti blási en hún glímir við
líkamlega fötlun. Alltaf jákvæð og glöð í bragði. Flott stelpa í alla staði.
Hafdís Kristjánsdóttir, deildarstjóri í
Síðuskóla hlaut viðurkenningu fyrir frumkvöðlastarf í umhverfismálum. Hafdís hefur verið leiðandi í umhverfismálum skólans sem er
grænfánaskóli og hefur verið undanfarin 6 ár. Hafdís hefur verið leiðandi í því verkefni enda mikill eldhugi um umhverfismál
almennt.