eTwinning verkefni

Síðuskóli er þátttakandi í e-Twinning samfélaginu sem Evrópusambandið setti á laggirnar árið 2005.  Síðuskóli hefur tekið þátt frá árinu 2006 og hefur verið með nokkur verkefni í gangi á hverju ári. eTwinning verkefnið ICT4U hefur verið valið sem eitt af 10 bestu samstarfsverkefnum í Evrópu.  Síðuskóli er einn af þeim skólum sem standa að þessu verkefni og er í samstarfi við skóla í Belgíu, Grikklandi, Ungverjalandi og á Spáni.  Einnig koma aðrir skólar að þessu verkefni á netinu.  Verkefnið snýst um að finna forrit á netinu og nota þau í kennslu.  Nemendur tileinka sér ákveðin forrit og reyna að finna ákveðnar námsgreinar sem forritið gæti virkað í sem kennslugagn eða verkfæri til að ná á annan hátt til nemenda í nútíma skóla.  Ýmis verkfæri hafa verið prófuð s.s. animoto, facebook, googledocs, screencast og fleiri. Verkefnið er mjög skemmtilegt og fjölbreytilegt.

Síðuskóli er þátttakandi í e-Twinning samfélaginu sem Evrópusambandið setti á laggirnar árið 2005.  Síðuskóli hefur tekið þátt frá árinu 2006 og hefur verið með nokkur verkefni í gangi á hverju ári.

eTwinning verkefnið ICT4U hefur verið valið sem eitt af 10 bestu samstarfsverkefnum í Evrópu.  Síðuskóli er einn af þeim skólum sem standa að þessu verkefni og er í samstarfi við skóla í Belgíu, Grikklandi, Ungverjalandi og á Spáni.  Einnig koma aðrir skólar að þessu verkefni á netinu. 

Verkefnið snýst um að finna forrit á netinu og nota þau í kennslu.  Nemendur tileinka sér ákveðin forrit og reyna að finna ákveðnar námsgreinar sem forritið gæti virkað í sem kennslugagn eða verkfæri til að ná á annan hátt til nemenda í nútíma skóla. 

Ýmis verkfæri hafa verið prófuð s.s. animoto, facebook, googledocs, screencast og fleiri.

Verkefnið er mjög skemmtilegt og fjölbreytilegt.