Dagur stærðfræðinnar

Í íþróttasalnum var m.a. margfaldað, deilt og fundið meðaltal.
Í íþróttasalnum var m.a. margfaldað, deilt og fundið meðaltal.
 Flötur, samtök stærðfræðikennara, hvetur skóla til að gera stærðfræði sérstaklega hátt undir höfði fyrsta föstudag í febrúar ár hvert.  Við í Síðuskóla höfum tekið virkan þátt í mörg ár og skipulagt dag stærðfræðinnar sérstaklega. Að þessu sinni unnu nemendur á hverju stigi saman og voru verkefnin fjölbreytt en þó öll á einhvern hátt tengd þemanu stærðfræði og spil. Í íþróttasal voru leikir tengdir stærðfræði. Markmið með degi stærðfræðinnar er tvíþætt. Það er að vekja nemendur og sem flesta aðra til umhugsunar um stærðfræði og hlutverk hennar í samfélaginu, einnig að fá nemendur til að koma auga á möguleika stærðfræðinnar og sjá hana í víðara samhengi. Ekki var annað að sjá en nemendur væru áhugasamir og ánægðir á stöðvunum í morgun eins og sjá má á þeim myndum sem teknar voru. Fullt af myndum voru teknar á mismunandi vinnustöðvum sem sjá má hér.
 Flötur, samtök stærðfræðikennara, hvetur skóla til að gera stærðfræði sérstaklega hátt undir höfði fyrsta föstudag í febrúar ár hvert. 

Við í Síðuskóla höfum tekið virkan þátt í mörg ár og skipulagt dag stærðfræðinnar sérstaklega. Að þessu sinni unnu nemendur á hverju stigi saman og voru verkefnin fjölbreytt en þó öll á einhvern hátt tengd þemanu stærðfræði og spil. Í íþróttasal voru leikir tengdir stærðfræði.

Markmið með degi stærðfræðinnar er tvíþætt. Það er að vekja nemendur og sem flesta aðra til umhugsunar um stærðfræði og hlutverk hennar í samfélaginu, einnig að fá nemendur til að koma auga á möguleika stærðfræðinnar og sjá hana í víðara samhengi. Ekki var annað að sjá en nemendur væru áhugasamir og ánægðir á stöðvunum í morgun eins og sjá má á þeim myndum sem teknar voru.

Fullt af myndum voru teknar á mismunandi vinnustöðvum sem sjá má hér.