Síðuskóla var slitið við hátíðlega athöfn þann 8. júní síðastliðinn. Að þessu sinni útskrifuðust 36 nemendur úr 10. bekk. Um leið og við óskum þeim innilega til hamingju með útskriftina þökkum við kærlega fyrir samstarfið í vetur. Hér er að finna myndir.
Í dag skoruðu nemendur í 10. bekk á starfsmenn að keppa við sig í blaki, fótbolta og skotbolta.
Nemendur unnu þrjár viðureignir af fjórum.
Í dag var hátíðisdagur í Síðuskóla þegar fulltrúi Landverndar Guðrún Schmidt afhenti skólanum Grænfánann í áttunda skiptið. Síðuskóli hefur verið Grænfánaskóli síðan 2006 og vorið 2020 var stefnan að fá fánann en vegna samkomutakmarkana var ákveðið að fresta því. Á þessu skólaári hefur ekki verið hægt að koma saman innandyra með alla nemendur skólans og var því ákveðið að blása til hátíðar utandyra og ekki spillti veðrið fyrir. Þema skólans fyrir umsókn um fánann var lýðheilsa og var heildarútkoma úttektarinnar eftirfarandi:
Síðuskóli var með víðtæk markmið í tengslum við lýðheilsu og úrgang og fann fjölbreyttar leiðir til þess að vinna að þeim. Starfsfólk í grænfánanefnd og verkefnastjóri eru áhugasöm og kraftmikil og greinilegt að verkefnið nær að valdefla nemendur. Í Síðuskóla er unnið flott starf í menntun til sjálfbærni og hvetjum við ykkur til áframhaldandi góðra verka. Þið hafið náð þeim góða árangri að fá grænfánann afhentan í 8. sinn. Innilega til hamingju með það!
Í gær voru veittar viðurkenningar fræðsluráðs en skv. skólastefnu Akureyrarbæjar skal árlega veita þeim einstaklingum eða stofnunum sem skarað hafa fram úr í skólastarfi viðurkenningar. Að þessu sinni fengu tveir nemendur Síðuskóla viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í námi sínu og störfum. Þetta voru þau Rakel Alda Steinsdóttir í 10. bekk og Rúnar Daði Vatnsdal Sveinsson í 5. bekk. Við óskum þeim innilega til hamingju með viðurkenningarnar, en myndin sem fylgir fréttinni var tekin af verðlaunahöfunum í gær að lokinni athöfn.
Þriðjudaginn 1. júní komu verðandi 1. bekkingar í heimsókn til okkar ásamt foreldrum. Þetta er flottur hópur og við hlökkum til samstarfsins með þeim.
Í morgun var haldin vel heppnuð rýmingaræfing í skólanum. Skólinn var rýmdur á þremur mínútum. Æfingar sem þessar eru nauðsynlegar til að tryggja öryggi nemenda og starfsfólks en einnig að tryggja fumlaus viðbrögð komi upp aðstæður sem krefjast rýmingar. Slökkvilið Akureyrar kom á staðinn og leyfði nemendum að skoða bílana að æfingu lokinni. Samstarf við slökkviliðið hefur verið einstaklega gott og eru þau alltaf klár í að æfa með okkur. Á myndinni sem fylgir fréttinni má sjá þegar slökkviliðskonurnar sem komu til að taka þátt í æfingunni útskýrðu tækjabúnað bílsins fyrir áhugasömum nemendum.
Í gær hélt 10. bekkur af stað í skólaferðalag í Skagafjörð. Hópurinn mun njóta þess sem þar er í boði s.s. flúðasiglingar, kajakferðir, litabolti, sund og fleira. Heimkoma er á miðvikudag.
Hér eru nokkrar myndir.
Vegna fjöldatakmarkana sem enn eru í gildi mæta nemendur í 1.-9. bekk einir á skólaslit.
Árgangar mæta í heimastofur, farið saman í sal. Skólastjórinn kveður fyrir hönd skólans á sal, síðan fara nemendur í sínar heimastofur þar sem hópurinn er kvaddur.
Útskrift 10. bekkjar kl. 14:30
Nemendur í 10. bekk mega taka með sér tvo gesti á útskriftina sem fram fer í Glerárkirkju. Þangað mætir starfsfólk skólans og síðan verður kaffi á eftir í skólanum.Í vikunni kom góður gestur í 8.-10. bekk. Hún heitir Margrét Embla og var skiptinemí í Brasilíu. Hún sagði frá dvöl sinni þar, til stóð að hún yrði í ár en endaði á að koma fyrr heim vegna Covid. Jakkinn sem hún er í á myndunum er jakki sem allir skiptinemar hjá Rotarý fá. Þau hitta marga aðra skiptinema þarna úti og þeir gefa hver öðrum eitthvað til að hengja á jakkana. Margrét Embla er núna í 2. bekk í MA og sér ekki eftir þessari ferð. Hún er í góðu sambandi við fjölskyldurnar sem hún dvaldi hjá og vinina sem hún eignaðist frá mörgum löndum sem voru skiptinemar eins og hún.
Þetta var í fyrsta skipti í langan tíma sem unglingarnir okkar komu saman á sal en núna mega 100 koma saman.
Komið er að því að nemendur í tilvonandi 8.-10. bekk velji sér valgreinar fyrir næsta skólaár. Kennslustundafjöldi á viku í þessum bekkjum er samtals 37 og af þeim eru sex kennslustundir valgreinar. Nemendur hafa fengið kynningu á valgreinunum.
Valgreinar eru í boði hálfan veturinn þannig að nemendur velja sér greinar fyrir tvö tímabil, þ.e. fyrir áramót og eftir áramót. Í sumum tilvikum er hægt að velja sömu valgrein fyrir og eftir áramót.
Allar upplýsingar um valgreinar er að finna á þessum tengli.
Ef einhverjar spurningar eru þá hafið samband við Helgu Lyngdal deildarstjóra (helgal@akmennt.is).