Kynningarblað um nýjar
aðalnámskrár og nýr upplýsingavefur
Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur gefið út kynningarblað um nýju aðalnámskrárnar og er því dreift um allt land. Blaðinu er ætlað að kynna nemendum, foreldrum og öðrum hagsmunaaðilum nýjar áherslur í menntun leikskólabarna, grunn- og framhaldsskólanemenda. Þá hefur einnig verið opnaður nýr vefur namtilframtidar.is , þar sem veittar eru upplýsingar um námsskrárnar, áherslur í menntamálum og fleira.
Hér má sjá kynningarblað á PDF-formi.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti 12.
apríl 2013
Arnór Guðmundsson, skrifstofustjóri