Sumarbúðir Norrænu félaganna

Spennandi tilboð fyrir 11-14 ára börn. Árlegar sumarbúðir Norrænu félaganna verða í Hillerød í Danmörku frá 28. júní til 5. júlí með þátttöku 90 barna frá öllum Norðurlöndunum. Boðið verður upp á spennandi kanósiglingu, ýmsar íþróttir, útivist, tónlist og skapandi smiðjur. Norræna félagið í Noregi og Norræna félagið á Akureyri greiða þátttöku tveggja barna frá Akureyri. Skilyrði er að foreldrar séu í Norræna félaginu. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Norrænu upplýsingaskrifstofunnar www.akmennt.is/nu Skráning er með tölvupósti til mariajons@akureyri.is og í síma 462 7000 til og með 29. apríl.

Spennandi tilboð fyrir 11-14 ára börn.

Árlegar sumarbúðir Norrænu félaganna verða í Hillerød í Danmörku frá 28. júní til 5. júlí með þátttöku 90 barna frá öllum Norðurlöndunum. Boðið verður upp á spennandi kanósiglingu, ýmsar íþróttir, útivist, tónlist og skapandi smiðjur.

Norræna félagið í Noregi og Norræna félagið á Akureyri greiða þátttöku tveggja barna frá Akureyri. Skilyrði er að foreldrar séu í Norræna félaginu.

Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Norrænu upplýsingaskrifstofunnar www.akmennt.is/nu

Skráning er með tölvupósti til mariajons@akureyri.is og í síma 462 7000 til og með 29. apríl.