Stóra upplestrarkeppnin 2010 - 2011

Frá vinstri Kristrún Jóhannesdóttir, Urður Andradóttir og Fannar Már Jóhannssonþ
Frá vinstri Kristrún Jóhannesdóttir, Urður Andradóttir og Fannar Már Jóhannssonþ
Uppskeruhátíð Stóru upplestrarkeppninnar var haldin í Kvosinni, sal Menntaskólans á Akureyri í gær miðvikudaginn 23. mars. Keppendur voru 17 frá grunnskólunum á Akureyri auk fulltrúa frá Hrísey og Grímsey og hafa aldrei verið fleiri. Fulltrúar Síðuskóla voru Kristrún Jóhannesdóttir og Ósk Tryggvadóttir. Varamaður þeirra var Oddur Pálsson. Uppskeruhátíðin tókst í alla staði vel og var hátíðleg stund. Ávörp voru flutt og nemendur Tónlistarskólans, sem eru í 7. bekk, fluttu nokkur tónlistaratriði.  Nemendur okkar stóðu sig með mikilli prýði og erum við afar stolt af þeim. Úrslit keppninnar urðu þau að Fannar Már Jóhannsson úr Lundarskóla hlaut 1. sæti, Kristrún Jóhannesdóttir úr Síðuskóla varð í 2. sæti og Urður Andradóttir úr Lundarskóla varð í 3. sæti. Hér má sjá myndir frá uppskeruhátíðinni.

Uppskeruhátíð Stóru upplestrarkeppninnar var haldin í Kvosinni, sal Menntaskólans á Akureyri í gær miðvikudaginn 23. mars.

Keppendur voru 17 frá grunnskólunum á Akureyri auk fulltrúa frá Hrísey og Grímsey og hafa aldrei verið fleiri.

Fulltrúar Síðuskóla voru Kristrún Jóhannesdóttir og Ósk Tryggvadóttir. Varamaður þeirra var Oddur Pálsson.

Uppskeruhátíðin tókst í alla staði vel og var hátíðleg stund. Ávörp voru flutt og nemendur Tónlistarskólans, sem eru í 7. bekk, fluttu nokkur tónlistaratriði. 

Nemendur okkar stóðu sig með mikilli prýði og erum við afar stolt af þeim.

Úrslit keppninnar urðu þau að Fannar Már Jóhannsson úr Lundarskóla hlaut 1. sæti, Kristrún Jóhannesdóttir úr Síðuskóla varð í 2. sæti og Urður Andradóttir úr Lundarskóla varð í 3. sæti.

Hér má sjá myndir frá uppskeruhátíðinni.