Stóra upplestrarkeppnin

  Undankeppni í stóru upplestrarkeppninni var haldin á sal skólans þriðjudaginn 8. mars.  Þar lásu þeir 14 nemendur úr 7. bekk, sem komust áfram eftir fyrstu umferð. Þau stóðu sig frábærlega vel og voru sér og skólanum til sóma.   Velja þurfti tvo nemendur og einn til vara til að taka þátt í úrslitum Stóru upplestrarkeppninnar, sem haldin verður miðvikudaginn 23. mars í Kvosinni í Menntaskólanum á Akureyri kl. 17:00. Þar mætast fulltrúar allra grunnskólanna í bænum auk nemenda frá Hrísey og Grímsey.  Þeir nemendur sem verða fulltrúar Síðuskóla í ár eru:    Aðalmenn:  Kristrún Jóhannesdóttir og Ósk Tryggvadóttir   Varamaður:  Oddur Pálsson Myndir af hópnum.

 

Undankeppni í stóru upplestrarkeppninni var haldin á sal skólans þriðjudaginn 8. mars.  Þar lásu þeir 14 nemendur úr 7. bekk, sem komust áfram eftir fyrstu umferð. Þau stóðu sig frábærlega vel og voru sér og skólanum til sóma.   Velja þurfti tvo nemendur og einn til vara til að taka þátt í úrslitum Stóru upplestrarkeppninnar, sem haldin verður miðvikudaginn 23. mars í Kvosinni í Menntaskólanum á Akureyri kl. 17:00. Þar mætast fulltrúar allra grunnskólanna í bænum auk nemenda frá Hrísey og Grímsey.  Þeir nemendur sem verða fulltrúar Síðuskóla í ár eru:

 

 Aðalmenn:  Kristrún Jóhannesdóttir og Ósk Tryggvadóttir 

 Varamaður:  Oddur Pálsson


Myndir af hópnum.