Síðuskóli sigraði!

Síðuskóli sigraði Akureyrarriðilinn í Skólahreysti í gær.  Keppendur voru þau Melkorka Ýrr, Inga Sól, Hrannar og Svavar öll úr 10. bekk. Sigurður og Harpa einnig úr 10. bekk voru varamenn. Þetta var frábær frammistaða hjá hópnum en Síðuskóli vann fjórar greinar af fimm keppnisgreinunum. Það var mikil stemning í höllinni og við í skólanum erum afskaplega stolt af þeim. 15. maí verður síðan lokakeppnin í Laugardalshöll, þar sem okkar fólk keppir við sigurvegara úr öðrum riðlum. Fjölmargar myndir voru teknar, bæði af keppendum og stuðningsliði.

Síðuskóli sigraði Akureyrarriðilinn í Skólahreysti í gær. 

Keppendur voru þau Melkorka Ýrr, Inga Sól, Hrannar og Svavar öll úr 10. bekk. Sigurður og Harpa einnig úr 10. bekk voru varamenn. Þetta var frábær frammistaða hjá hópnum en Síðuskóli vann fjórar greinar af fimm keppnisgreinunum.

Það var mikil stemning í höllinni og við í skólanum erum afskaplega stolt af þeim. 15. maí verður síðan lokakeppnin í Laugardalshöll, þar sem okkar fólk keppir við sigurvegara úr öðrum riðlum.

Fjölmargar myndir voru teknar, bæði af keppendum og stuðningsliði.