Í morgun söfnuðust nemendur skólans á sal þar sem tíu nemendur sem dregnir höfðu verið út í 100 miða leik skólans, voru tilkynntir. 100 miða leikurinn er árviss viðburður í skólastarfinu sem hluti af SMT skólafærninni. Þeir
nemendur sem dregnir voru út fóru svo með stjórnendum í kynningarferð á N4 þar
sem starfsemi þess fyrirtækis var kynnt fyrir þeim, og þegar í skólann var komið aftur fengu nemendurnir pizzu og ís. Formanni nemendafélagsins,
Halldóri Birgi Eydal, var afhent viðurkenning fyrir Lífshlaupið en nemendur
Síðuskóla urðu í þriðja sæti. Það voru þeir Viðar og Ingi Þór frá ÍSÍ sem
afhentu viðurkenninguna. Einnig var tilkynnt við þetta tilefni að nemandi í úr
4. bekk, Sveinar Birnir Sigurðsson, átti verðlaunamynd í teiknisamkeppni
Mjólkursamsölunnar í ár. Alls fengu 10 myndir viðurkenningu, en yfir 1400
myndir bárust í keppnina, en gaman er að segja frá því að í fyrra fékk nemandi
Síðuskóla einnig viðurkenningu í þessari sömu keppni. Myndir frá þessari
skemmtilegu samveru má sjá hér, en myndin sem fylgir fréttinni er af þeim
nemendum sem dregnir voru út í 100 miða leiknum.