Ný aðalnámskrá

Á vefinn eru komin þrjú rit af sex um grunnþætti menntunar. Mennta- og menningarmálaráðuneytið gefur út í samstarfi við Námsgagnastofnun rit um grunnþætti í menntun. Grunn-þættirnir eru kynntir í nýjum aðalnámskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla 2011.  Grunnþættirnir eru: Læsi í víðum skilningi Sjálfbærni Heilbrigði og velferð Lýðræði og mannréttindi Jafnrétti Sköpun Grunnþættirnir snúast um læsi á samfélag, menningu, umhverfi og náttúru; einnig um framtíðarsýn, getu og vilja til að hafa áhrif og taka virkan þátt í að viðhalda samfélagi sínu, breyta því og þróa. Þeim er ætlað að undirstrika meginatriði í almennri menntun, stuðla að samfellu í skólakerfinu og ná til starfshátta, inntaks og námsumhverfis á öllum skólastigum. Heftunum er m.a. ætlað stuðla að því að grunnþættirnir verði leiðarvísar í skólastarfinu, auðvelda starfsfólki skóla, kennurum og skólastjórum að átta sig á inntaki þeirra og flétta þá inn í skólastarfið. Ekki er um beinar kennsluleiðbeiningar að ræða heldur má finna í þeim stutta fræðilega umfjöllun um hvern þátt, hugmyndir um leiðir og hagnýtar ábendingar. Að þessu sinni koma út þrjú rit, um sköpun, læsi og lýðræði og mannréttindi. Stefnt er að því að seinni þrjú ritin komi út í byrjun næsta árs. Öll ritin eru gefin út á rafrænu formi og í takmörkuðu upplagi á prentuðu formi. Rafrænu útgáfuna má nú nálgast í útgáfuskrá ráðuneytisins og vef Námsgagnastofnunar.  Grunnþættir menntunar – Læsi Grunnþættir menntunar – Sköpun Grunnþættir menntunar – Lýðræði og mannréttindi

Á vefinn eru komin þrjú rit af sex um grunnþætti menntunar.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið gefur út í samstarfi við Námsgagnastofnun rit um grunnþætti í menntun. Grunn-þættirnir eru kynntir í nýjum aðalnámskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla 2011. 


Grunnþættirnir eru:

  • Læsi í víðum skilningi
  • Sjálfbærni
  • Heilbrigði og velferð
  • Lýðræði og mannréttindi
  • Jafnrétti
  • Sköpun
Grunnþættirnir snúast um læsi á samfélag, menningu, umhverfi og náttúru; einnig um framtíðarsýn, getu og vilja til að hafa áhrif og taka virkan þátt í að viðhalda samfélagi sínu, breyta því og þróa. Þeim er ætlað að undirstrika meginatriði í almennri menntun, stuðla að samfellu í skólakerfinu og ná til starfshátta, inntaks og námsumhverfis á öllum skólastigum.

Heftunum er m.a. ætlað stuðla að því að grunnþættirnir verði leiðarvísar í skólastarfinu, auðvelda starfsfólki skóla, kennurum og skólastjórum að átta sig á inntaki þeirra og flétta þá inn í skólastarfið. Ekki er um beinar kennsluleiðbeiningar að ræða heldur má finna í þeim stutta fræðilega umfjöllun um hvern þátt, hugmyndir um leiðir og hagnýtar ábendingar.

Að þessu sinni koma út þrjú rit, um sköpun, læsi og lýðræði og mannréttindi. Stefnt er að því að seinni þrjú ritin komi út í byrjun næsta árs. Öll ritin eru gefin út á rafrænu formi og í takmörkuðu upplagi á prentuðu formi. Rafrænu útgáfuna má nú nálgast í útgáfuskrá ráðuneytisins og vef Námsgagnastofnunar. 


Grunnþættir menntunar – Læsi
Grunnþættir menntunar – Sköpun
Grunnþættir menntunar – Lýðræði og mannréttindi