Umhverfisdagur
Á umhverfisdegi Síðuskóla fór 4. bekkur í gönguferð. Farið var með strætó að Eikarlundi og þaðan gengið fram hjá golfvellinum, um Naustaborgir og endað í Kjarnaskógi. Stoppað var á Hömrum þar sem krakkarnir léku sér góða stund í leiktækjum. Veðrið var frábært þennan dag og allir skemmtu sér vel.
Umbun - andarnefjur
Síðastliðinn föstudag fór 4. bekkur í óvissuferð. Farið var með strætó
niður í bæ og þaðan labbað og andarnefjur skoðaðar.
Myndir má sjá hér.