Allir lögðu sig fram
Í morgun var lokahátíð Litlu upplestrarkeppninnnar haldin í 4. bekk. Nemendur lásu upp
ljóð, þulur og sögur og sýndu hvað þeir hafa lært í vetur í framsögn og tjáningu. Allir stóðu sig með sóma
og skiluðu sínu vel. Tónlistaratriði voru á milli atriða þar sem fjórar stúlkur í bekknum spiluðu á píanó,
klarinett og þverflautu.
Til hamingju með árangurinn nemendur í 4. bekk.